41
Almennt Spjall / Hjálp, amerísk röra og slöngu mæli eining -AN??
« on: April 28, 2009, 21:23:28 »
hverning útfærist -6 an eða -8 an í milllimetrum? ef ég er með slöngu með 8mm innan mál, hvort vantar mig -6 eða -8 AN fittings?
This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.
Vék úr sæti fyrir dverginn Frank Höybye Christensen til að jafna út stærðarhlutföll.
„Einn stórleikari tekur við af öðrum," segir Jón Páll Leifsson, rekstrarstjóri tryggingafélagsins Elísabetar. Til þessa hefur Jón Páll leikið í auglýsingu fyrir fyrirtækið þar sem Austin Mini er lagt við hliðina á löngum jeppa, til marks um muninn á verði trygginga Elísabetar og annarra tryggingafélaga. Nú er farin í gang ný herferð undir yfirskriftinni Nútímaleg og betri Elísabet og hefur gamla Mini-inum verið skipt út fyrir nýjan sem er þó stærri í sniðum.
„Til þess að jafna út stærðarmun bílanna ákvað ég að ráða til mín þennan knáa dverg sem fór í mín föt í bókstaflegri merkingu," segir Jón Páll og á þar við hinn smágerða Frank Höybye Christensen.
Fyrri útgáfan og sú nýja eru báðar sýndar í nýju auglýsingunni. Sú fyrri er þó spiluð hratt. „Ég held að þetta sé eina auglýsingin í sjónvarpi í dag sem er spiluð hratt," segir Jón Páll. Hann segir auglýsingaherferðina ætlaða til þess að kynna tvær breytingar á tryggingafélaginu.
„Við erum hætt að tryggja kraftmikla smábíla en einnig erum við búin að taka upp sérstakt gjald sem fólk þarf að greiða, ætli það að keyra á kvartmílubrautum eða öðru slíku. Í hvoru tveggja er mikið um tjón og með þessum aðgerðum miðum við að því að geta lækkað iðgjaldið hjá hinum viðskiptavinunum," segir Jón Páll Leifsson, rekstrarstjóri og stórleikari.
-shs