Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Jón Bjarni on May 20, 2011, 22:00:27

Title: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu 4 júní
Post by: Jón Bjarni on May 20, 2011, 22:00:27
Skráning er hafinn í fyrstu umferð íslandsmótsins í kvartmílu.

Keppnin verður haldinn laugardaginn 4 júní


Til að taka þátt þarftu að hafa:

Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur Akstursíþróttarklúbb innan ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda

Keppt verður í eftirfarandi flokkum.

Til að flokkur sé keyrður þurfa 2 eða fleiri að skrá sig
.
OF - http://kvartmila.is/is/sidur/of-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/of-flokkur)
MS - http://kvartmila.is/is/sidur/ms-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/ms-flokkur)
GT - http://kvartmila.is/is/sidur/gt-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/gt-flokkur)
SE - http://kvartmila.is/is/sidur/se-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/se-flokkur)
RS - http://kvartmila.is/is/sidur/rs-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/rs-flokkur)
MC - http://kvartmila.is/is/sidur/mc-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/mc-flokkur)
OS - http://kvartmila.is/is/sidur/os-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/os-flokkur)
TD - http://kvartmila.is/is/sidur/ts-dot-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/ts-dot-flokkur)
HS - http://kvartmila.is/is/sidur/hs-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/hs-flokkur)
TS - http://kvartmila.is/is/sidur/ts-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/ts-flokkur)
DS - http://kvartmila.is/is/sidur/ds-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/ds-flokkur)
Bracket - http://kvartmila.is/is/sidur/bracket-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/bracket-flokkur)
LS - http://kvartmila.is/is/sidur/ls-flokkur (http://kvartmila.is/is/sidur/ls-flokkur)
Mótorhjól - http://kvartmila.is/is/sidur/motorhjolaflokkar (http://kvartmila.is/is/sidur/motorhjolaflokkar)

Skráningarfrestur.

Formlegri Skráningu lýkur Miðvikudaginn 1 júní.
Hægt verður að skrá sig til 6:00 laugardaginn 4 júní en þá bætist við 2500 kr aukagjald
Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum en þá bætist við 5000Kr auka gjald

Keppnisgjöld:

Keppnisgjald verður 5000kr og það er hægt að greiða það á 2 vegu
Annarsvegar kaupa keppnisgjaldið í gegnum vefverslunina okkar eða leggja inn á klúbbinn.
Vefverslun - http://kvartmila.is/is/vorur (http://kvartmila.is/is/vorur)
Reikningsnúmerið er:#1101-26-111199 Kennitala:660990-1199

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið:

jonbjarni@kvartmila.is

Nafn
Kennitala
Keppnistæki
Bílnúmer
Flokkur
GSM

Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á kvartmíluspjallinu.

Dagskrá:

9:30 – 11:00   Mæting Keppanda
11:00      Pittur lokar
11:15      Fundur með keppendum
10:30 – 11:55   Æfingarferðir
11:55      Tímatökur hefjast
13:20      Tímatökum lýkur
13:20 – 13:45   Hádegishlé
13:45      Keppendur Mættir við sín tæki
14:00      Keppni Hefst
16:25      Keppni lýkur – Kærufrestur Hefst
16:55      Kærufrestur liðinn
17:00     Verðlaunaafhenting á pallinum

Nánari upplýsingar

Skrifa í þráðinn.
Senda mér PM
eða hringja í 8473217

Jón Bjarni


Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu -- skráning --
Post by: SPRSNK on May 20, 2011, 23:40:37
 :D
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu -- skráning --
Post by: bæzi on May 22, 2011, 18:06:39
:D

tad er keppnisss........

nu er bara velja ser flokk.... ur nog er ad taka  ](*,)

kv baezi
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu -- skráning --
Post by: Kjarri on May 22, 2011, 19:21:26
Verður keppnisæfing á fimmtudag eða föstudag ?
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu -- skráning --
Post by: Jón Bjarni on May 23, 2011, 22:44:13
það næst líklega ekki  :-(
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu -- skráning --
Post by: Buzy84 on May 27, 2011, 08:19:40
Spáin er orðin góð :) spáð sól en skýjað með köflum, þetta lýtur vel út  :mrgreen:
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu -- skráning --
Post by: 1965 Chevy II on May 27, 2011, 08:45:10
Hmmm vedurstofan og yr.no spá rigningu eða skúrum. http://www.yr.no/place/Iceland/Capital_Region/Hafnarfj%C3%B6r%C3%B0ur/ (http://www.yr.no/place/Iceland/Capital_Region/Hafnarfj%C3%B6r%C3%B0ur/)
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu -- skráning --
Post by: Buzy84 on May 27, 2011, 09:06:36
Hmmm vedurstofan og yr.no spá rigningu eða skúrum. http://www.yr.no/place/Iceland/Capital_Region/Hafnarfj%C3%B6r%C3%B0ur/ (http://www.yr.no/place/Iceland/Capital_Region/Hafnarfj%C3%B6r%C3%B0ur/)

ekki rétt

http://www.vedur.is/vedur/spar/stadaspar (http://www.vedur.is/vedur/spar/stadaspar)

Vedurstofan er búin að breyta :)
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu -- skráning --
Post by: 1965 Chevy II on May 27, 2011, 09:14:56
Farðu á forsíðuna og skoðaðu úrkomukortið  :wink:
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu -- skráning --
Post by: SPRSNK on May 27, 2011, 09:19:12
Það er ekki bara veðrið sem skiptir hér máli - undirbúningi á yfirborði brautarinnar, eftir að startið var steypt, hefur ekki tekist að ljúka í tíma - af ýmsum ástæðum.
Þeir sem sjá um þann undirbúning vilja með því tryggja endingu framkvæmdanna til langs tíma.
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu -- skráning --
Post by: Buzy84 on May 27, 2011, 09:20:51
Þannig að það verður að öllum lýkindum ekki keppni  :?:
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu -- skráning --
Post by: Jón Bjarni on May 27, 2011, 12:34:52
við þurfum því miður að fresta þessari keppni.

nánar upplýsingar hér:

http://kvartmila.is/is/frett/2011/05/27/1._umferd_islandsmotsins_i_kvartmilu_-_frestad (http://kvartmila.is/is/frett/2011/05/27/1._umferd_islandsmotsins_i_kvartmilu_-_frestad)
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: Racer on May 27, 2011, 14:22:54
betra er að fresta en að halda af stað í vonbrigði.

veit að öllum hlakkar mikið til að prófa brautina en þetta er eins og með stefnumótin.. ef maður gerir ekki hlutina rétt þá fær maður enga almennilega skemmtun eftir deitið.
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: 1965 Chevy II on May 27, 2011, 14:27:33
Góður Davíð  :mrgreen:
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: Jón Bjarni on May 31, 2011, 00:56:09
minni á það er opið fyrir skráningu :)
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: Kjarri on June 02, 2011, 01:23:10
Er fjórhjóladrif alveg bannað í HS ?
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: Stebbik on June 02, 2011, 02:06:54
Er ekki gefinn út listi yfir keppendur þar sem skráningaefrestur er liðinn.....(býð spennntur hvort ég sé 1. í flokk )


Það hvíslaði að mér fugl að þessi breytting á brautinni væri svo mögnuð jafnvel sæmilegustu bílar ættu eftir að hendast áfram  =D>

og harðsviruðustu keppendernur OF /GF DS vonandi gleymi ég engum hvað þessir flokkar allir heita,  væru bara orðnir pínu hræddir við að mætta því tra :twisted:kið værri orðið meirra en menn höfðu áður dreymt um \:D/

kv, Stefán k sem vonnandi getur keppt í sem flestum keppnum  í sumar  :twisted: :twisted: :twisted:




Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: Stebbik on June 02, 2011, 12:58:48
HALLÓ

er  hægt að fá að vita hvort það sé einhver skráning í þessa keppni ,svo hægt sé að gera ráðstafanir varðandi að taka frí í vinnu ,frekar dapurt að taka sér frí og síðan er þessu kannski slegið á frest vegna lélegrar þáttöku
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: Jón Bjarni on June 02, 2011, 13:04:22
það er ágæt skráning. Ég set listann inn eftir smá stund :)
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: Jón Bjarni on June 02, 2011, 13:27:53
keppandalistinn er svona,  en ég minni á að það er enn hægt að skrá sig!

Flokkur   Nafn    Tæki
Bracket   Birkir R Gudjonsson   2004 MINI Cooper S
bracket   Guðni Brynjar Sigfússon   Opel Astra Turbo
      
HS   Garðar Ólafsson   Road Runner 76
      
RS   Sigurjón M. Jóhannsson   Ford Sierra RS Cosworth
RS   Ólafur Rúnar Þórhallsson   Opel OPC
RS   Daníel Már Alfredsson   Honda Civic Type R
      
OS   Kjartan Viðarsson   Mmc Eclipse
OS   Einar J. Sindrason.   Honda prelude 91
      
TD   Ingimundur Helgason   2007 Shelby GT 500
TD    Bæring jón Skarphéðinsson    Corvette c5 50th 402ci
      
OF   Örn Ingólfsson   Konan
OF   Stefán Kristjánsson   dragster
OF   Leifur Rósenberg   Pinto
OF    Finnbjörn Kristjánsson   Volvo kryppa
OF   Gretar Franksson   Dragster 358cid
      
      
      
Flokkur   Nafn    Tæki
I   Eiríkur ólafsson   suzuki gsxr 1000
I   Reynir Reynisson   Yamaha R1
I   Ingi björn sigurðsson   yamaha yzf 2007
I   Hallgrím Einar Hannesson   Yamaha R1
I   Fannar Freyr Bjarnasson   Yamaha R1
      
G   Hafsteinn Eyland   CBR 929
      
J   Björn Sigurbjörnsson   Suzuki GSXR 1000 Brock's
      
M   Þórir Hálfdánarson   Susuki Hayabusa 2008
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: Stebbik on June 02, 2011, 13:38:23
Flott Jón Bjarni

Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: 1965 Chevy II on June 02, 2011, 19:10:35
Gripið verður örugglega mjög gott miðað við það prufur, við biðjum samt alla að fara varlega, við hefðum viljað sjá meira gúmmí í brautinni en þetta kemur til.

Að öðru þá sýnist mér sunnudagurinn vera þurr en rigning á laugardag  :evil:
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: SMJ on June 02, 2011, 22:25:07
Gripið verður örugglega mjög gott miðað við það prufur, við biðjum samt alla að fara varlega, við hefðum viljað sjá meira gúmmí í brautinni en þetta kemur til.

Að öðru þá sýnist mér sunnudagurinn vera þurr en rigning á laugardag  :evil:

Verður keppt um helgina? Einhver rigning á að vera skv. spánni....
Title: Re: 1 umferð íslandsmótsins í kvartmílu frestað til 4 júní
Post by: 1965 Chevy II on June 02, 2011, 23:56:33
Já við ætlum að láta reyna á þetta.