Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Topics - Þórður A.

Pages: [1]
1
BÍLAR til sölu. / Corolla 95 220 þús eða tilboð
« on: April 25, 2012, 14:27:49 »
Er með Corollu 95 til sölu. Ekin 23x.xxx ný skoðuð. Verð 220 þús eða tilboð.

Þórður A. 865-8943


2
Bílarnir og Græjurnar / Toyota Corolla '77
« on: October 11, 2011, 00:32:31 »
Datt í hug að stofna þráð til að halda utan um þetta verkefni hjá mér.

Ég keypti mér þessa corollu fyrir stuttu, en ég er ekki með sögu hennar á hreinu. Það sem ég veit er að þetta var tveggja dyra bíll upphaflega, en vegna ryðs var honum splæst saman við fjögurra dyra bíl. Hann er beinskiptur með 1.6 l vél úr Datsun, en sú vél er þó gerð af Toyota. Hann er fagurblár eins og staðan er núna, en blái liturinn víkur smátt og smátt fyrir beru stáli. Ég á eftir að ákveða lit á bílinn. Kem með uppástungur seinna og reyni að fá viðbrögð við þeim hér.
Ég var mjög ánægður þegar að ég sá þessa Corollu auglýsta til sölu þar sem að ég er mikill Toyotu maður. Hef átt 16 eða 17 bíla síðan að ég fékk prófið, og af þessum bílum hafa Toyotur alltaf staðið sig vel.
Bíllinn er á nýum plötum (hvítum) en fer á steðjanúmer fljótlega, þar sem að nýju plöturnar fara svona gömlum bíl illa.

Ef einhver veit um vinstra frambretti eða sæmilega inréttingu í svona bíl má hann láta mig vita. 865-8943 Þórður.

Í kvöld, 10.10.11 byrjaði ég á verkefninu (vil ekki segja uppgerð, þar sem að það er svo mismunandi hvað menn kalla uppgerð).
Það sem að ég gerði var að rífa bæði frambrettin og framstuðarann af. Brettunum stillti ég upp inni í skúr og leysti lakkið af þeim en bíllinn hafði verið rúllaður. Annað brettið er ekki original og ber það með sér. Ég varð fyrir smá vonbrigðum með ástandið á framparti bílsinns, en það er lítið annað að gera að en bæta úr því.

Myndir frá kvöldinu:


Svona var bíllinn þegar að ég fékk hann. Barnabílstóllinn er reyndar frá mér.

Eins og sést er framendinn frekar ryðgaður, því miður.

Orginal bensínlokið fékk ég með bílnum. Það fer á seinna.



Hér eru brettin komin af, og málningin að detta af.


Framtíðarplön: Ryðbæta, mála og keyra :D

Kv. Þórður A.

3
BÍLAR til sölu. / Mazda 626 diesel '98 Seld
« on: September 25, 2011, 17:34:41 »
Seld.

4
Varahlutir Óskast Keyptir / Vantar öxul í mözdu 626 diesel 98
« on: September 14, 2011, 13:10:45 »
Hæ.

Veit einhver um öxul, eða partabíl sem ég gæti rifið úr? Mazda 626 diesel '98.

Vaka átti bara til eldri gerðina af öxul og engin partasala virðist eiga þetta. Nú og svo kemur umboðið ekki til greina.

Kv. Þórður A. 865-8943.

5
BÍLAR til sölu. / Isuzu Trooper 1999 35"
« on: March 01, 2010, 00:42:58 »
Til sölu Isuzu Trooper árgerð 1999

Gerð: Isuzu Trooper
Árgerð: 1999
Ekinn: 238.xxx
Eldsneytistegund: Diesel
Litur: rauður
Ástandslýsing : Vél gírkassi og kram allt í góðu lagi. Ný gróf 35" nagladekk. Allt nýtt í bremsum að framan, nýtt púskerfi. Beinskiptur dísel, 7 manna. Mér skillst að það sé búið að gera eitthvað gott fyrir vélina, en nánari upplýsingar veitir hann pabbi, Þórður, í 896-2212
Verð: 800Þ
Sími: 896-2212 Þórður.

Fínn í snjóinn sem er núna út um allt! hehe.



6
Bílarnir og Græjurnar / Ford Galaxie 500 '67
« on: January 26, 2010, 00:21:51 »
Er að setja þetta inn fyrir frænda minn en hann er að gera upp og endurbæta Ford Galaxie 500 '67.

Bíllinn er rauður og var 6 cyl (minnir mig) en hann er að setja 8 cyl vél í. (ég veit ekkert um nöfnin á þessum vélum, þau bíða þar til frændi minn kommentar um það...ef hann gerir það...)

Ég kíkti á hann áðan þar sem hann var að dunda sér í bílnum og tók nokkrar myndir.












Pages: [1]