Hvernig er það er verið að breyta GF í einhvern smábílaflokk ? Er það rétt skilið að lágmarksþyngdin sé nú komin niður í 2640 lbs. fyrir V 8 bíla ? Ég man ekki eftir því að svoleiðis bílar hafi nokkurtímann verið smíðaðir í fyrir vestan haf ? Þeir eru til í Japan og Evrópu. Þetta er sama þyngd og flestir OF hurðabílar vikta.
Getur einhver góðfúslega útskýrt helstu ástæður fyrir þeim breytingum sem er verið að stinga upp á
Fyrir örfáum dögum þurftu bílar að vikta 220 lbs. meira en í þessum nýju tillögum, eða 1300 kg.. Er einhver tilbúinn til að benda áhugasömum á hvar þessi 220 lbs. eða 100 kg. er að finna í svona venjulegum verksmiðju framleiddum bíl. Því ekki má breyta neinum málmum, búið að stroka allt ál í burtu og allar rúður eiga að vera til staðar og að renna upp og niður, s.s. hurðir úr málmi, því það er ill mögulegt að troða venjulegu gleri í plasthurðir. Hvað er þá eftir ? fíber framsamstæða? það dugar ekki til, enn er því langt í land með að þessi 100 kg. náist ?
Hvernig er það er ekki full stutt í sumarið til þess að menn eigi að fara að standa í meiri háttar breytingum á bílum ? örfáar vikur til stefnu.
Væri gaman að heyra af öllum þessum léttu smábílum sem verða þarna í sumar í baráttunni, getið þið félagarnir Nóni og Hálfdán sagt okkur forvitnum félögum í KK einhver leyndarmál ?
Nóni ég veit að þú ert áhugamaður um smábíla verður þú með eitthvað 4 cyl . vopn tilbúið í sumar
Ekki feiminn láttu allt flakka
P.S. Er sammála tillögu Krissa hér að ofan
kv.
Ari