101
Alls konar röfl / Re: Ja hérna....
« on: August 07, 2009, 11:18:08 »
Sæll Ragnar
Já hárrétt lýsing hjá þér á atburðarásinni sem er orðin eins og reifari. Ég skaut nú inn smá spurningum á þennan viðskiptavin um hans fortíð sem er ansi skrautleg, þ.e. með 5 ára fangelsisdóm á bakinu fyrir skotbardaga við lögreglu, kókaínneyslu fyrir milljónir USD að eigin sögn og þjófnaði á sjálfskiptingum. Sú reynsla sem ég og aðrir sem ég þekki hafa haft af VPRC er góð, ekkert nema þægilegheitin hjá þessu fólki. En það er væntanlega þannig með fyrirtæki sem hefur smíðað hundruð tækja í gegnum tíðina að sumir viðskiptavinirnir geta haft skrautlegan bakgrunn og eru óútreiknanlegir.
En ótrúlegt með svona risa vefsíðu að þarna ægir saman allskonar liði sem sem þekkir ekkert til málanna en tekur afstöðu með eða á móti út og suður.
Já það magnað með Internetið, þar geta menn leitað síns réttar með hógværum hætti og fengið leiðréttingu sinna mála, en síðan getur þetta líka snúist upp í andhverfu sína þar sem menn nota þennan miðil til að ráðast á fyrirtæki með grófum og óvægnum hætti eins og þetta dæmi sýnir.
kv.
Ari