Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Topics - natas

Pages: [1]
1
Bílar Óskast Keyptir. / Óska eftir Toyota Touring
« on: August 29, 2013, 10:43:15 »
Sælinú

eins og segir í fyrirsögninni, óska ég eftir Toyota Touring eitthvað í kringum 1990 (gamla boddýið) helst í góðu ástandi og lítið ryðgaðan.

Hægt er að senda mér skilaboð og myndir á ariel@is.is og hringja í mig í 7750466

Aríel

2
BÍLAR til sölu. / Suzuki Swift GTI ´95 smá verkefni
« on: October 23, 2012, 22:50:09 »
Bíllinn sem um ræðir er 1995 módel af Swift GTi, 1300 16v twincam, 101hö og aðeins 790kg, þarf að laga sílsa, gólf og ryð í lakki.

Bíllinn er sprækur sem lækur eftir að ég hef gert það sem þarf eftir að hann stóð í dálítinn tíma. Er nýbúinn að skipta um kerti, kertaþræði, loftsíu og dútla eitthvað við hann svo að kram-lega séð er hann orðinn alveg 100%. Bíllinn er alveg stráheill að innan fyrir utan bílstjórasætið.


Það sem er að er þó eftirfarandi:

1) Sílsarnir eru ryðgaðir og þarf að smíða nýja ásamt því að bæta/smíða nýtt gólf á köflum.
2) Bílstjórasætið (það eru sportsæti í GTi-inum) er brotið, og rifið - annaðhvort eitthvað fyrir laghentan/skipta um sæti
3) Brotið hurðarhandfang bílstjóramegin (fylgir annað með)
4) Lakk er lélegt og ryðblettir

Þetta er bíll sem gæti orðið sturlaður götuskunkur í réttum höndum þess sem mundi bæta ryð & sprauta eða sem öskrandi rallykerra.

Ég hef aldrei orðið jafnhissa og þegar ég var búinn að skipta um kerti og tilkeyra bílinn hvað það er mikill kraftur í þessu kvikindi.

Verðhugmynd: 225 þúsund

ariel@is.is
7750466
Aríel

3
Varahlutir Til Sölu / Grams í Ford Mustang Ghia 1979
« on: May 17, 2011, 19:32:29 »
Sælinú. Á til alls kyns grams í Ford Mustang Ghia 1979, langt síðan bíllinn fór í parta svo ég hef ekkert við þetta að gera.

Um er að ræða allskonar innréttingargrams; mælaborð, plöst, skotthillu, olíusíu, drif, heddpakkning o.m.fl.

Ég nenni satt best að segja ekki út í skúr að gera lista yfir þetta allt saman, en ég vil glaður losna við þetta og fer góssið því á lítið.

Aríel Pétursson
7750466

4
Bifhjól/Bifhjólahlutir Til Sölu/Óskast / Honda Shadow VT 500 1983
« on: December 03, 2008, 16:00:31 »
Ég er með gullfallegt mótorhjól til sölu, ótrúlega vel með farið og í toppástandi. Reyndar fílaði ég ekki alveg hauskúpurnar sem eru á hjólinu á myndinni og skipti þeim út fyrir venjulegt króm:D Þessi mynd er frá fyrri seljanda, en ég keypti hjólið seinasta vor.

Hjólið er í því sem kallast Mint Condition, og er algjörlega flekklaust að öllu leyti. Það er fínn kraftur í því og æðislegt að hjóla á því. Mér líður eins og ég sé einhver James Dean á því:P

Hérna eru þeir spekkar sem ég veit um hjólið

Honda VT 500 C Shadow
1983 módel
ekið um 25 þúsund mílur
þyngd um 200kg
6 gírar.



Ég er ekki despó í kreppunni. Ég set á hjólið 300 og það er óumsemjanlegt. Hægt er að hafa samband við mig í pm, á natasx@hotmail.com (email/adda á msn) eða í síma 8643942 og nafnið er Aríel



Pages: [1]