41
Ford / Re: svalur
« on: November 26, 2010, 14:07:51 »
Glæsilegur
This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.
Er ekki sama deiling á 4ra gata Mözdu felgum og Toyotu felgum.
Ef að það væri meiri samstaða inní þessari stétt væri þetta ekki að koma upp.
Það þarf ekki annað en að líta á aðrar iðngreinar herna á klakanum til að sjá það, t,d húsamálarar, ef eithver er að taka að ser verk eða bjóða í verk án réttinda er hann kærður samstundis, það sama má segja um rafvirkja.
Ef þú leggur rafman í hús án réttinda verður allt brjálað útaf öryggis kröfum, en þú mátt grautta saman eithverjum tjóna haug og fara á honum út í umferðina án þess að hafa nokkur réttindi. Ef þetta bílgreinasamband væri að hugsa eithvað!! um hag þessara starfs stétta væri þetta ekki svona,
Niður með bílgreinasambandið
Það er verið að hengja sig á Evrópureglur þarna en tímasetningin á þessu er frekar furðuleg og vægasagt er skítalykt af þessu .Sammála síðasta ræðumanni, hvernig væri að efla eftirlit með því hver og hvernig gert er við bíla eftir tjón eða flóð í stað þess að koma með endalaus boð og bönn. Það er endalaust migið yfir fagmenn í þessum geira með boðum og bönnum og enginn segir neitt! Hvað er það? Menn eru búnir að mennta sig og sérhæfa á þessum sviðum viðgerða. Það er í raun verið að segja með þessum endalausu bönnum að stéttin sé getulaus og óhæf til þeirra hluta sem við erum menntaðir til! Það þarf að efla eftirlit með þessum viðgerðum, ekki banna viðgerðirnar. Það er rétt að Bílgreinasambandið er og hefur verið rekið sem umboðsmafía í fjölda ára. Hvernig væri að brjóta það upp?
Það hefði nú verið nær að taka fyrst fyrir uppboð tryggingafélagana og hverjir fá að kaupa bíla þar.
Það ætti auðvitað bara að vera réttindamenn sem ættu að fá að kaupa þar en ekki hvaða gúbbi sem er oft með takmarkaða þekkingu og aðstöðu til viðgerða.
En þar sem að tryggingafélögin græða svo fjandi mikið á því að selja hverjum sem er þessi ökutæki þá skiptir umferðar öryggi engu máli en það er eina að forsendunum sem þeir hengja sitt mál á þegar að það kemur að því að banna Ameríska tjónabíla.
Það læðist að manni sá grunur að þetta hafi verið pantað af umboðamafíunni sem er bílgreinasambandið.
Við sem störfum í þessum geira ættum að hafa undaþágu frá þessum reglum því þetta er beinn tekjumissir fyrir okkur en Bílgreinasambandið vinnur fyrst og fremst fyrir bílaumboðin en hugsar ekkert um restina af bílgreinunum
Ég hefði til dæmis vilja leggja það til að eingöngu að menn með réttindi gætu flutt inn bíla og gert við þá og í leiðinni hefði verið hægt að láta það vera svo að menn þyrftu að taka ábyrgð á viðkomandi ökutæki í einhver ár gagnvart hugsanlegum göllum jafnvel að skylda menn til að eiga viðkomandi ökutæki í 6 mánuði eftir að bíll hefur verið settur á númer það eitt og sér myndi valda því að menn væru ekki að þessu í tonnavís og ég myndi telja að það kæmu frekar minnaskemmdir bílar hingað heim og alls ekki hugsanlegir flóðabílar.
En þar sem að við búum í einu spilltasta og ruglaðasta samfélagi í heimi þá er ekki von á neinu öðru en tómu rugli og þvælu aftur og aftur.
félagi minn henti einni 1981 fiestu fyrir 3 mánuðum sem hefði mátt hirða eitthvað úr