Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Stefán Már Jóhannsson on October 08, 2008, 21:22:49

Title: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Stefán Már Jóhannsson on October 08, 2008, 21:22:49
Mig langar að vita hvað varð um 1979 árgerð af LeBaron sem var seldur á Akureyri kringum árið 1990. Hann var brúnn, með V8 (440 er líklegt) tveggja dyra og með T-topp. Eini sinnar tegundar á landinu á sínum tíma.

Ef einhver veit um eiganda og/eða ástand bílsins eru upplýsingar vel þegnar.
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Dodge on October 08, 2008, 22:49:43
440 þykir afar ólýklegt í 79 lebaron.
Annars átti Gulli Hrafnkels einn svona fák með 360 "police special :lol: "
Ekki man ég hvað varð um hann.
Svo rambaði ég á einn svona rétt hjá skagaströnd, á junk jardi þar.
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Ramcharger on October 09, 2008, 07:26:10
440 þykir afar ólýklegt í 79 lebaron.
Annars átti Gulli Hrafnkels einn svona fák með 360 "police special :lol: "
Ekki man ég hvað varð um hann.
Svo rambaði ég á einn svona rétt hjá skagaströnd, á junk jardi þar.

Sammála því, þessir voru ekki að koma með 440.
Þeir voru iðulega með 318 eða 360.
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Ingi Hrólfs on October 09, 2008, 14:58:16
440 þykir afar ólýklegt í 79 lebaron.
Annars átti Gulli Hrafnkels einn svona fák með 360 "police special :lol: "
Ekki man ég hvað varð um hann.
Svo rambaði ég á einn svona rétt hjá skagaströnd, á junk jardi þar.

Var það ekki HP "High Performance"

K.v.
Ingi Hrólfs
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Halli B on October 09, 2008, 15:29:41
Það er einn 79 lebaron inní skúr hjá mér
Grænn með hálfum hvítum vinyl
318 í húddinu
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Stefán Már Jóhannsson on October 09, 2008, 18:16:25
Já það var víst eitthvað misminni hjá fyrrverandi eiganda. Það var 360 í húddinu. Hann var með T-topp og var víst eini svoleiðis LeBaron á landinu.

440 þykir afar ólýklegt í 79 lebaron.
Annars átti Gulli Hrafnkels einn svona fák með 360 "police special :lol: "
Ekki man ég hvað varð um hann.
Svo rambaði ég á einn svona rétt hjá skagaströnd, á junk jardi þar.

Manstu hvort þessir voru/eru með T-topp?
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Dodge on October 09, 2008, 20:48:33
Þetta er svona kaldhæðni með Police special dæmið... en þannig var sagan í den :)

Báðir svona bílarnir sem ég hef séð voru nokkuð örugglega með t-topp..
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: HK RACING2 on October 09, 2008, 23:11:58
Það stendur einn brúnn 2 dyra á hjallabraut í Hafnarfirði,held að hann sé með T-topp
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Sigtryggur on October 10, 2008, 00:29:38
Man eftir brúnum með T-topp sem sonur Valgarðs partasala átti hér í denn.Sá þann bíl fyrir allmörgum árum þá orðinn nokkuð ryðgaður.Fyrir nokkrum  árum kom hvítur svona bíll frá Blönduósi.Sá er rauður að innan,á póleruðum álfelgum og breiðum dekkjum,mjög heill og góður.Mig minnir að  hann sé með T-topp.
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Guðmundur Björnsson on October 13, 2008, 16:30:13
  Sæll Sigtryggur,

Er þessi frá Blönduósi, sá sem var í eigu Húnfjörðs-ættarinar?
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Addi on October 13, 2008, 20:41:51
Man eftir brúnum með T-topp sem sonur Valgarðs partasala átti hér í denn.Sá þann bíl fyrir allmörgum árum þá orðinn nokkuð ryðgaður.Fyrir nokkrum  árum kom hvítur svona bíll frá Blönduósi.Sá er rauður að innan,á póleruðum álfelgum og breiðum dekkjum,mjög heill og góður.Mig minnir að  hann sé með T-topp.

Miðað við lýsinguna þá stendur þessi bíll inni í skúr við Hrísateig í Rvk, og eins og þú segir...mjög heill
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: 1966 Charger on October 13, 2008, 21:03:28
Þegar hér er komið sögu er vert að skjóta inn mynd af H-bílnum, og auðvitað verður eigandinn að fljóta með; Mister Beggi Boeing. Það er sko völlur á kallinum þeim......flugvöllur.

Góðar stundir

Err
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Packard on December 06, 2008, 07:48:43
Það komu nokkrir með T-topp.T.d átti Raggi Bjarna einn gullfallegan blóðrauðan með hvítum víniltopp
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Helgi Sig on January 28, 2009, 18:29:54
Heyriði það var ég sem vantaði upplýsingar um þennan bíl.

Mig langar þá að fá að vita bílnúmer á þessum bílum ef það er möguleiki. Um er að ræða eins og áður segir Chrysler LeBaron árgerð 1979(sennilega) brúnn með 360 í húddinu(allavega þá) og T-topp. Bíllinn var seldur á Akureyri kringum 1990. Bílar sem falla undir þetta.

í einkapósti eða hér...með fyrirfram þökk
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: dodge74 on January 28, 2009, 18:37:10
sæll veit um þennan umtala le baron hann er brúnn með 360police special 1979arg
hann stendur inni lónsbraut í hafnarfirði  :wink:
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: AlliBird on January 28, 2009, 21:10:53
Kalli málari á- eða átti svona LeBaron, minnir að hann hafi verið brúnn.
Kæmi mér ekki á óvart að hann hafi troðið einhverju skrímsli í húddið á honum.
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Kiddi J on January 28, 2009, 21:40:41
Það var Dodge Diplomat 82-86 árg. 4 dyra...með volgum 360.
Title: Re: Chrysler LeBaron 1979
Post by: Helgi Sig on January 30, 2009, 18:16:23
sæll veit um þennan umtala le baron hann er brúnn með 360police special 1979arg
hann stendur inni lónsbraut í hafnarfirði  :wink:

Snilld. Hvernig er ástandið á honum og eru ekki til myndir af honum?