Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Jón Þór Bjarnason on March 09, 2004, 17:36:18

Title: Porsche á 64 millur
Post by: Jón Þór Bjarnason on March 09, 2004, 17:36:18
Nú er einn sprækur Porsche á leið til landsins. Það væri nú ekki leiðinlegt að sjá hann á kvartmílunni í sumar eða hvað finnst ykkur. Hann er aðeins 3,8 sek í 100 og 9,9 sek í 200 þetta er bara hin þokkalegasta græja.
Title: spurning dagsins
Post by: firebird400 on March 10, 2004, 19:55:50
Það hjóta margir vera að velta því fyrir sér hver eigi gripinn. Ef einhverjir telja sig vita, endilega látið í ykkur heyra. Mér datt helst í hug Benna sjálfann en maður er svosem búinn að heyra ýmsa nefnda.
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Jón Þór Bjarnason on March 10, 2004, 23:06:44
Það sem mér finnst fyndnast við þetta er það að maðurinn vill ekki láta mikið á sér bera........ 8)
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Moli on March 11, 2004, 01:52:57
það kemur nú bara einn Porsche til greina, væntanlega er þetta Carrera GT en endilega tjáðu þig meira.. hver er að versla þetta?  :shock:
Title: Porsche á 64 millur
Post by: jakob on March 11, 2004, 02:06:42
Hmmm...
Er semsagt einhver íslendingur búinn að kaupa þetta kvikindi eða er þetta
ekk bara sýningarbíll ?
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Caprice78 on March 11, 2004, 13:36:26
það virðast fáir vita hver eigi hann en ég veit að hann var keyptur að öðrum og síðan seldur aftur fyrir aðeins hærri upphæð :)
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Jón Þór Bjarnason on March 11, 2004, 18:01:54
Þær upplýsingar sem ég hef fékk ég beint uppúr FORMULA 1 blaðinu sem fékkst ókeypis á bensínstöðum um síðustu helgi og þar segja þeir að það sé einhver bílaáhuga maður sem sé búinn að kaupa Porsche Carrera GT á 64 millur. Þar segir einnig að maðurinn vilji ekki láta mikið á sér bera. Ég bara spyr hvers vegna eru menn að flytja svona bíl inn til landsins þegar það er ekki einu sinni vegir til að keyra svona bíl á. En allavega verður þessi bíll first til sýnis hjá Benna áður en eigandinn fær hann. Það er hægt að lesa um bílinn á http://www.benni.is
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Caprice78 on March 11, 2004, 23:43:00
það er allveg hægt að keyra hann , það er bara mjög takmarkað þar sem hægt er að keyra hann :)
Title: Porsche á 64 millur
Post by: JHP on March 13, 2004, 02:12:44
Sagan segir að hann sé Ísfirðingur þessi kappi og selji hann strax aftur og græði 10 kúlur eða svo og hann er sagður gröfukall :roll:
Title: Porsche á 64 millur
Post by: firebird400 on March 14, 2004, 23:41:10
Maður hefur svo sem heyrt álíka sögur en hvaða gröfukall hefur ráð á að liggja með 64 millur í meira en tvö ár án þess að ávaksta þeim. Ætli einhverjir aðrir en Jón Ásgeir séu nógu klikkaðir til að punga út svona summu fyrir bíl. Eru ekki einhverjir nógu hugaðir til að hringja í kallinn og bara spyrja :D En allavegana verðum við að komast að því hver á hann, ef svona kerra vekur ekki áhuga okkar þá erum við ekki miklir bíla áhuga menn
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Ívar-M on March 15, 2004, 00:26:01
ég þekki þann sem pantaði, hann á glæsilegan porsche fyrir, og nonni er alls ekki svo langt frá þessu
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Moli on March 15, 2004, 00:42:50
Quote from: "nonni vett"
Sagan segir að hann sé Ísfirðingur þessi kappi og selji hann strax aftur og græði 10 kúlur eða svo og hann er sagður gröfukall :roll:


kannski alls ekki svo vitlaust að framkvæma eitthvað svona, er þetta ekki bíll sem er uppseldur í Evrópu eitthvað fram á næstu ár og auðkýfingarnir í Evrópu berjast um? selur hann svo ekki svo bílinn eitthvað út aftur? með þessu móti er kannski hægt að græða eitthvað!  :roll:
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Drundur on March 17, 2004, 12:46:25
Ég veit að þetta var ekki Jón Ásgeir eða Björgólfur og svoleiðis kallar, pabbi er þarna niðrí bílabúð benna og neitaði að segja mér hver þetta er, en eitt er fullvíst að þetta mun virkilega koma á óvart hver keypti þennan bíl :)
Title: Porsche á 64 millur
Post by: firebird400 on March 17, 2004, 20:34:06
Er kaupandinn með alla þjóðina á mútum eða erum við bara alveg útúr öllum tengslum við umheiminn, á ég að trúa því að það sé ekki enn komið í ljós hver keypti bíllinn. :x  Ég verð bara að viðurkenna að forvitnin er alveg að fara með mig, loksins alvöru SUPERCAR á íslandi og við erum bara CLUELESS.
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Ingvar Gissurar on March 17, 2004, 21:28:19
Þetta er nátturulega bara snilld að koma með svona græju hingað :roll:
Ef við verðum heppin verður kanski leifður 100 km hraði á nýju
Reykjanes(hrað)brautinni :oops:  Þetta á örugglega eftir að njóta sín þar (í firsta gír)  :roll:  :mrgreen:  :oops:
En grínlaust, ef þetta er rétt að þessi bíll sé að koma hingað þá hlýtur að vera að það sé eingöngu til að selja hann aftur en þetta snarhækkar vafalaust í verði á fyrsta árinu :roll:
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Drundur on March 17, 2004, 22:22:01
Það eina sem ég veit sem gamli setti uppúr sér er að maðurinn pantaði þennan bíl á sportbílasýningunni sem var í höllinni fyrir 2 eða 3 árum og þá var bíllinn metin á 200millur (áður en hann var fjöldaframleiddur) (og ég fékk að sitja í honum dýrasta bíl í heimi  :D . Menn hafa pantað bíla og borgað eitthvað út og selt svo kaupréttinn á bílunum á svimandi háu verði. Samanber manninn útí  USA sem pantaði fyrsta Diablo SVR hér um árið og seldi svo kaupréttinn og græddi á því um 30milljónir. Hver veit nema þessi aðili muni selja bílinn eitthvert í evrópu á gígantískar upphæðir. Það er jú 3 eða 4 ára bið eftir honum í evrópu...... Var búinn að heyra að þetta væri maður á ísafirði eða nálægt ísafirði. Það verður gaman að sjá það í vor hver á þetta........
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Firehawk on March 23, 2004, 12:59:06
Hmmmm!

http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&item=2467463368&category=6058

-j
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Raggi McRae on March 23, 2004, 14:03:03
Eg eg átti svona bíll þá mundi eg taka vekk ur húsinu mínu og koma honum fyrir í stofuni

Mér dettur ein maður í hug sem gæti átt þennan bíll hann er búinn að spá mikið og leingi í svona bílum sem eru yfir 50millur hann vildi ekki Imprezu því hun var svo kraft laus var að sá í nýa Vipernum en svo komst hann að því að hann var ekki nó og kraft mikill fyrir hann svo bara bíða og sjá þessi maður gefur sig fram. ef svo verður ekki þá er bara að láta alla taka myndavelina með sé og þegar þeir sjá bílinn að taka mynd og láta Lögguna ransaka málið :D
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Moli on March 23, 2004, 17:05:23
Quote from: "Firehawk"
Hmmmm!

http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&item=2467463368&category=6058

-j


Starting bid:  US $560,000.00  
Estimate your monthly payment  
Ended:  Mar-21-04 11:45:37 PST  
Start time: Mar-15-04 17:47:18 PST
History: 0 bids  
High bidder:  User ID kept private
 
 
Item location:  Iceland
Iceland  
Featured Plus! Listing
 
Ships to:  Worldwide  
Shipping and payment details
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Caprice78 on March 23, 2004, 19:45:26
ef þetta er satt , þá hefði hann nú mátt bíða með að auglýsa allavegana þartil að bíllin er komin til landsins svo að hann geti tekið myndir og skráð vin númer svo að einhver trúi þessari auglýsingu ...
Title: Porsche á 64 millur
Post by: 1965 Chevy II on March 24, 2004, 22:33:24
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&item=2468206555&category=6058
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Ívar-M on March 25, 2004, 20:15:02
raggiMcrae eða eitthvað þetta er ekki sá, sá sem á bílin er ekki talin ríkur kall, ég þekki hann nokkuð vel, og hann vill fyrir alla muni að engin komist af þessu og þannig verður það
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Binni GTA on March 31, 2004, 17:12:32
ok ok..ÞAÐ KOMST UPP UM MIG úff  :cry: .....Hverjum langar að fá að prófa ? :lol:
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Jón Þór Bjarnason on April 08, 2004, 11:18:43
Það hefur bara ekkert heyrst frá þessum bíl. Veit einhver hvort að hann kom einhverntímann til landsins. Bílabúð Benna ætlaði að sýna bílinn í Mars en ég sá þennan bíl aldrei þar?
Title: Porsche á 64 millur
Post by: BMW3 on April 10, 2004, 18:13:54
dýrasti íll í heimi kostar nú mikið meira enn 200 millur það er allavegana til einn ferari sem kostar um 650 millur og eru til um 100 slíkir ílar í heiminum
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Caprice78 on April 10, 2004, 23:41:27
nei ... dýrasti ferrari sem hefur komið úr verksmiðju fer á um 1 milljón dollara úr verksmiðju ... það eru rétt um 70 milljónir ísl. kr
og það er Enzo (tribute til Enzo Ferrari stofnanda Ferrari Bílaframleiðanda)
síðan eru einhverjir gamlir safngripir sem eru selldir dýrum dómum ...

en hver á Benzann ? jón ásgeir kannski :)
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Einar Birgisson on April 11, 2004, 01:57:27
GEISP
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Amer on April 14, 2004, 01:24:52
Það á víst að sína þennan bíl um næstu helgi í perlunni :D

Róbert
CarinaE
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Sævar Pétursson on April 14, 2004, 11:22:57
Æi greyin. Gaman í sandkassanum?
Title: Porsche á 64 millur
Post by: lozerr on April 14, 2004, 18:14:12
kallin sem er að fara kaupa hann mun ekki ráða við hann 9,9 sek í 200 shit allavega mindi eg klessann á fyrstu beijunni :) ef eikker kaupir sona tæki mun hann klessa það.... ég bara giska á það  :)
Title: Porsche á 64 millur
Post by: lubricunt on April 15, 2004, 19:35:40
Ef einhver hefur efni á að kaupa sér 64 milljóna bíl, þá hefur viðkomandi léttilega efni á því að klessa hann
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Bird on April 15, 2004, 23:36:59
Heyrði að gaurinn hefði selt kaupréttinn fyrir 3 millur - en sel það samt ekki dýrara en ég keypti það :roll:
Title: Porsche á 64 millur
Post by: Ingvar Gissurar on April 17, 2004, 23:29:07
Jæja þá er hann loksins kominn :roll:
http://www.vf.is/default.aspx?path=/resources/Controls/47.ascx&C=ConnectionString&Q=Front1&Groups=0&ID=15878&Prefix=241