Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Messages - villidakota

Pages: [1]
1
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: May 27, 2014, 01:15:47 »
svo afþví maður var ekkert að rifna úr dugnaði þetta mánudags kvöldið á fór ég í það að æfa mig í að sjóða með koparsuðunni og pússa niður suður, skipti um einn bút í innrabrettinu sem ég gat notað úr gamla brettinu sauð hann í nýja brettið og pússaði niður og ég er ekki frá því að maður sé bara allur að koma til í þessu \:D/

2
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: May 27, 2014, 01:03:48 »
alveg eitthvað buið að ske núna frá því síðast búið að mála innan í toppinn og grindina undir honum, toppurinn fastur og búið að sparsla gróflega í hann,
búið að sandblása hurðirnar og enn ein innrabretti sem ég fékk notuð, eitthvað byrjað að vinna niður hurðarnar og innra brettin eru í ryðbætingu.

tók aðeins og prufaði að máta innra brettið í nýja brettið afþví menn eru alltaf sí hræddir um að hlutir teygjist þegar þeir eru sandblásnir enn það vottaði ekki fyrir því svo maður getur andað léttar með hvað það varðar.

3
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: May 21, 2014, 00:36:15 »
jæja þá er loksins búið að sjóða síðasta stykkið í toppinn búið að grunna innaní toppinn og grindina undir honum og svo afþví að maður var búinn að vera svo duglegur þá leyfði maður sér að opna kassann af öðru frambrettinu

4
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: May 19, 2014, 01:43:25 »
svo var komið að því að sjóða toppinn saman og er nú mest allt að verða komið í þennan topp nema smá bútar sitthvorum megin sem koma bakvið hurðina
stefni ég á að koma festa toppinn niður í miðri viku.

5
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: May 19, 2014, 01:32:32 »
nú er maður búinn að vera að vinna á fullu þótt maður hafi ekkert nennt að setja inn myndir enn það sem ég var að brasa í síðustu viku var að smíða í toppinn og klára að pússa innan í.
 nú er þessi fjandans toppur buinn að valda mér miklum höfuðverk og veseni honum tókst meira að segja að láta mig öskra á sunnudags morguninn þar sem ég byrjaði að líma fremsta hlutann á með metal bond og þegar ég ætlaði að laga eina beyglu um morguninn þá fór toppurinn á límingunum bókstaflega.
 svo ég þurfi þá að pússa allt upp aftur og sjóða svo saman með kopar enn það kom bara mjög vel út svo ég er alveg sáttur.

6
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: May 13, 2014, 00:26:01 »
neinei eigum við ekki bara að leyfa 360 vélinni að sjá um að drífa hana áfram henni er búið að takast það vel hingað til og er ekkert að fara að versna á næstunni. Ég er alveg að verða hættur að sjá í stofuborðið hjá mér fyrir usa pökkum

7
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: May 12, 2014, 01:01:43 »
læt svo eina mynd fylgja hérna frá því fyrir nokkrum árum áður enn hún var máluð þarna sést augljóslega ahverju toppurinn er svona í dag

8
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: May 12, 2014, 00:53:52 »
þá er það fjandans toppurinn á eftir að sjá framm á mikið höfuð verk við að ná honum góðum enn við ákváðum að taka hann af til að geta stoppað ryðið í honum og bitunum undir. Eftir að hafa séð hversu auðvelt var að taka hann af þá bölvaði maður því í sand og ösku hversu erfitt væri að fá suma varahluti í þetta hefði verið ljúft að smella nýjum á og þurfa ekki að hafa meiri áhyggjur af því

9
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: May 12, 2014, 00:43:38 »
jæja þessa helgina gerðist helling gólfið komið í báðum megin og toppurinn kominn af og smíði í hann byrjuð þar sem ekki er séns á að fá nýjann

10
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: April 30, 2014, 00:01:02 »
þar næst tók ég og sand blés allt bodyið eins og það lagði sig og kláraðist 1000l fiskikar af sandi við það. Þó varð einn og einn blettur eftir og ekki var það að undra því helmingin af tímanum sandblés ég í snjókomu og hinn í myrkri  8-) var sól og blíða þegar ég byrjaði enn þar sem maður býr á ólafsfirði verður maður að búast við öllu og taka því sem maður fær.
Og ekki voru góðar þær fréttir sem sandurinn færði manni því undan honum komu tveir ónýtir sílsar og ónytur toppur með háklassa vinnubrögðum
þá er bara heyra í hreinræktuðu fagmönnunum í jeppasmiðjunni og sjá hvort þeir geti reddað toppi og sílsum

11
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: April 29, 2014, 23:39:19 »
takk fyrir Magnús enn nú var ég búinn að vera pínu latur að taka myndir enn duglegur samt að vinna svo það er afsakanlegt tók body festinguna úr og sandblés og snittaði rónna og skipti um blikk skúffuna sem stoppar rónna var frekar tæpur á að ná boltanum úr og nennti ekki að lenda í veseni þegar maður setur saman og skipti svo líka um smá bút í eldveggnum gleymdi vísu að taka mynd eftir að ég var búinn að pússa suðuna.
Enn þar sem þetta er fyrsta skiptið sem ég fer útí bodyvinnu (er bifvélavriki að atvinnu) þá er ég stöðugt að læra og prófa mig áfram í þessu svo ef menn hafa eitthvað útá þetta að setja eða vilja skjóta inn ráðum þá er það bara gott mál

12
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: April 22, 2014, 02:01:35 »
svo í lokinn var maður byrjaður að sandblása smá í bodyinu

13
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: April 22, 2014, 01:56:27 »
svo var farþega hurðin fjandi slæm og meðan maður beið eftir að límið þornaði ú hurðunum þá var bodyinu kippt af

14
Bílarnir og Græjurnar / Re: blá Dakota í uppgerð
« on: April 22, 2014, 01:46:31 »
verið að taka framstykkið

15
Bílarnir og Græjurnar / blá Dakota í uppgerð
« on: April 22, 2014, 01:36:16 »
Hérna er ég með solltið sem við erum tveir drengir að vinna í  þessa dagana og verðum örugglega nokkra að viðbót í. Enn það er uppgerð á 94 Dakotu
Bíllinn leit aldrei neitt það illa út úr fjarska enn það var búið að rúlla hana áður og farið að sjást í nokkur göt. þó maður vissi nú alltaf að bíllinn væri ryðgaður þá leyndist meira undir málningunni enn maður bjóst við eins og nógu mikið af trefjaspasli til að búa til árabát úr.
byrjað var að tæta sundur fram endan og pússa hann niðir og sandblása, frambrettin enduðu í ruslinu ásamt trebbabitunum úr þeim eftir sandinn og eru ný á leiðinni. framstykkið slapp með smá af nyju blikki og húddinu var látið næja sandblástur.
Nú er komið að bodyinu var það rifið af um páskana og byrjað að skoða það svo virðist sem stórhluti af gólfinu verði smíðaður nýr og eitthvað af sílsunum toppurinn fær svo eitthvað af nýju blikki í staðinn fyrir trebba kögglana ég læt fullt af myndum fylgja hér með þessu.

16
Chrysler / Re: hver veit mest?
« on: February 24, 2014, 19:05:08 »
Er þetta SN777 :?:

Ef að þetta er hann þá er 383 í honum en ekki 318... og reground street ás...

vantar bara læsta drifið og öflugari hedd...
ég á sn777 ertu alveg viss með þetta þar sem mér hefur nú aldrei fundist neinn óeðlilegur kraftur í henni og verksmiðjunúmerið á blokkinni segir 318 framleidd 1995 ef ég man rétt

17
BÍLAR til sölu. / dodge stratus 1997
« on: September 05, 2013, 07:52:51 »
Er með til sölu dodge stratus. bíllinn er 1997 mdl 2,4l vél sjálfskiptur og framhjóla drifinn hann er með 14 skoðun mikið búið að endurnýja í bilnum í sumar t.d. nedri klafi sem er bæði spindilkúla og klafafóðringar, hjólalega framan, ballansendi, vökvastýrisreim og rúðuþurrkur.
Þennan bíl er svakalega gott að keyra og fer vel með mann í akstri .
eina sem hægt er að setja útá bíllinn er að hann er aðeins beyglaður og byrjað að koma ryð í hægra afturbretti

Ásett er 400þús enn er opinn fyrir tilboðum og skiptum sími 6626812

selst á 250 þús staðgreitt nú fær hver að vera síðastur að næla sér í frábærann bíl á lítinn pening

myndir hérna á bland   https://bland.is/classified/entry.aspx?classifiedId=1878435

18
mig vantar eitt og annað til að geta komið vélinni í gang hjá mér eins og blöndung (4 hólfa 750) trissuhjól á sveifar ás, alternator, viftuspaða, vökvastýrisdælu, olíu pönnu af 5.2 magnum í dodge dakotu, ekki væri verra ef menn ættu afturdrifs gírkassa til að koma aftan á vélina svo hún fari af stað eftir að hún fari í gang. Vélin er 84mdl síminn hjá mér er 6626812 eða einkaskilaboð.

Pages: [1]