já hvað er að frétta af kvartmílubrautinni fyrir norðan sem litli fuglinn á gluggasillunni minni er alltaf að tala um
Já, hvað er að frétta af Kvartmílubrautinni fyrir norðan
Þetta er spurning sem ég hef nú þurft að svara nokkuð oft síðastliðin ár og skal því ekki vera feiminn við að svara einu sinni enn, það er nú einu sinni þannig í þessu jaðarsporti sem við stundum að þar er það þolinmæðin sem má ekki klikka!!
Akureyrarbær er búinn að festa kaup á framtíðarlandsvæði fyrir Bílaklúbbinn og er það staðsett fyrir ofan bæinn, nánar tiltekið í landi Glerár. Þeir sem hafa slysast á torfærukeppnir hjá okkur hafa einmitt við það tækifæri þrammað um land "Glerár".
Íþrótta- og tómstundaráð bæjarins samþykkti nú einnig í vor fyrir sitt leyti að þarna yrði sett upp framtíðarsvæði fyrir allar akstursíþróttir sem og æfinga- og ökukennslu. Málið er því í dag komið í deiliskipulag og búið er að teikna enn á ný frumdrög af svæðinu eins og við viljum sjá það líta út - með höfuðáherslu á full-size kvartmílubraut sem atriði nr. 1., 2. og 3.
Á 30 ára afmælisdegi félagsins fengum við svo bæjarstjórann okkar til að koma og kvitta upp á þessar framkvæmdir að félagsmönnum, fjölmiðlum og öðrum velunnurum viðstöddum. (hér er mynd af þeim nöfnum Kristjáni bæjarstjóra og Kristjáni formanni við gjörninginn;
http://www3.akureyri.is/frettir/2004/05/28/nr/5048 )
Við erum því að verða fjallkátir með þetta, en vonum að sjálfsögðu að deiliskipulagi fari að ljúka svo hægt sé að drífa alla okkar menn í gúmmístígvél og hrinda af stað fyrstu framkvæmdum á svæðinu!
Við munum að sjálfsögðu pósta inn upplýsingum hér um leið og við höfum næstu góðu fréttir, til að skemma ekki liðsandann
Bestu kveðjur og góða skemmtun í kvöld, lýst gríðarlega vel á þennan viðburð hjá ykkur!!
Björgvin