Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: maggifinn on December 13, 2007, 00:52:13

Title: hver hefði trúað þessu?
Post by: maggifinn on December 13, 2007, 00:52:13
ég er bara alveg bit

 http://ruddar.spjallbord.net/default.aspx?g=posts&t=2106&find=unread



 http://dagskra.ruv.is/streaming/?file=4338514/0
Title: hver hefði trúað þessu?
Post by: Belair on December 13, 2007, 00:58:11
sem sagt ekkert go kart á næsta ári. ok plan B mig vantar þá hondu 1100 motor seta á haase og taka Evo í nefið  :D
Title: hver hefði trúað þessu?
Post by: Valli Djöfull on December 13, 2007, 02:00:06
já, maður á mjög erfitt með að trúa þessu  :lol:
Title: hver hefði trúað þessu?
Post by: 1965 Chevy II on December 13, 2007, 15:55:17
Hvar skyldu 100 milljónirnar vera sem þeir fengu í styrk frá ríkinu???
Title: hver hefði trúað þessu?
Post by: Gilson on December 13, 2007, 15:57:17
fóru örugglega bara beint í vasa eigenda þessara fyrirtækja  :?
Title: hver hefði trúað þessu?
Post by: Valli Djöfull on December 13, 2007, 16:16:47
Fengu þeir pening?

Þeir fengu "já" við að fá 200 milljóna króna lán frá byggðarstofnun eða eitthvað svoleiðis..  og annað hvort þessar 200 millz eða aðrar 200 millz frá reykjanesbæ eyrnamerktar ökugerði sem ekki er byrjað á, og peningar væntanlega ekki afhentir ennþá..
Title: hver hefði trúað þessu?
Post by: beer on December 13, 2007, 19:36:15
Ég trúi því ekki að marggjaldþrota menn hafi svo fengið pening frá ríkinu :shock: .
Hversu heimskt er það? Þetta er nógu lítið land að þetta á ekki að gerast. :evil:
Title: hver hefði trúað þessu?
Post by: Valli Djöfull on December 13, 2007, 20:01:36
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4338516/1

Æjj æjj...

Samt frekar ömurlegt fyrir starfsfólkið..
Title: Iceland Moto................
Post by: 429Cobra on December 13, 2007, 20:16:24
Sælir félagar. :)

Þetta skrifaði Vilhjálmur framkvæmdastjóri "Iceland Motopark" hér á spjallið fyrir nokkrum misserum:
Quote

Jæja,

Fyrir þann sem ætlaði að fagna þegar hann myndi sjá jarðýtur þá getur sá hinn sami tekið smá forskot á sæluna.

I dag var byrjað að taka fyrstu prufuholur og þær voru einmitt teknar í fyrirhugaðri kvartmílubraut. Á næstu dögum verður svo gerðar yfir 60 holur á svæðinu.

Formleg skóflustunga og upphaf verklegra framkvæmda verður þó ekki fyrr en 30. september kl 15:00. Allir velkomnir.

Ég vil endilega benda öllum sem hafa áhuga á að koma með hugmyndir eða athugasemdir að senda e-mail á vilhjalmur@icelandmotopark.com við höfum sérstaklega leitast við að gera sem flestum kleift að koma að verkefninu þannig að tekið sé tillit til séríslenskra aðstæðna.

Það er rétt að benda á að allar framkvæmdir og hönnun verkefnisins er gerð með það að leiðarljósi að brautin standist allar alþjóðlegar kröfur.

Og eins og ávallt þá óskum við eftir sem bestu samstarfi við KK og félaga þess.

Kær kveðja,

Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson


Þessu var beint til mín, en hvað nú........................................ :(
Title: hver hefði trúað þessu?
Post by: sindrib on December 13, 2007, 20:30:03
þeir eru ekki að standa sig. Ég og margir fyrrverandi vinnufélagar minir eru miklum vandræðum peningalega séð vegna þess að við vorum að vinna hjá þessu fyrirtæki, þetta kemur nátturulega á versta tíma, svona rétt fyrir jól, ég er bara feginn að hafa hætt í tæka tíð hjá þeim því ég kem alls ekki verst út úr þessu þótt ég sé að tapa mörg hundruð þúsundum í allskonar vanskila gjöld.
Title: hver hefði trúað þessu?
Post by: User Not Found on December 14, 2007, 01:43:58
Hef heyrt  að jarðvélar hafi fengið lán útá lóðarréttindin af atvinnuhúsa lóðunum sem eru þarna í kring um motopark og að bankinn þeirra hafi ráðstafað þeirri greiðslu beint í ákveðið atvinnulána fyrirtæki í sinni eigu/tengslum við sem jarðvélar skulduðu, að þeir peningar hafi verið eyrnamerktir í laun og launatengd gjöld gagnvart starfsmönnum jarðvéla sem áttu inni hjá jarðvélum.