Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Sterling#15 on February 22, 2011, 23:06:41
-
Hef verið í sambandi við Hermann hjá N1 og hann er til í að panta 106 til 115 okt bensín fyrir okkur sem yrði á einni dælu í bænum. Til að fá þetta á sem bestu verði þarf hann að panta 23.000 lítra og þá yrði verðið ca 270 til 290 krónur, eins og staðan er í dag. Það er mjög gott verð miðað við það sem ég keypti á síðasta sumar þá var líterinn á 720 kr hjá öðrum aðila, svo þetta er miklu betra verð og viðráðanlegt. Nú er bara spurning hvort við erum tilbúnir að kaupa þetta bensín ef það býðst? Hermann er tilbúinn að panta þetta fyrir okkur og ég held að 106 okt væri alveg nóg, eða hvað haldið þið? Eg er allavega til í svona bensín á mína Saleen bíla. \:D/
-
Það er aldeilis flott, veistu hvaða tegund af eldsneyti þetta er?
-
Veistu hvaða oktan gildi þetta eru þ.e.a.s. ron/pon/mon?
-
Nei, flott að fá þessar spurnignar því það er ekkert mál fyrir mig að spyrja tæknimenn N1 um það.
-
Ég er til :D
-
Sæll Hilmar
ég var einmitt að spá í að fara hringja í þig og spyrja frétta af þessu.
Það væri gaman að fá þessar upplýsingar sem Kiddi talar um hér ofar og hvaða verðmunur er t.d. á 106-115okt
Þetta er bara flott framtak =D>
kv bæzi
-
Grunnurinn er 99 okt bensín styrkt með touluene. Ron gildi 106
-
Grunnurinn er 99 okt bensín styrkt með touluene. Ron gildi 106
Vitiði hvað 106 RON er mikið í amerískum okt tölum..... svo að maður átti sig á þessu betur...
kv Bæzi
-
RON + MON / 2 = PON = Ísl. okt.
-
RON + MON / 2 = PON = Ísl. okt.
já ok, þá er spurning hvað MON tala er á 106 ron bensíninu
USA notar semsagt MON
kv Bæzi
-
USA notar meðalgildið af RON og MON á þessar bensínstöðvamerkingar (Anti Knock Index). Ég veit að 98RON dælubensín skv þýskum staðli er 88RON og þar með (http://www.foo.is/math/tex2png_86932.png) = 93 AKI samkvæmt USA staðli.
-
Sama hvaða bensín þetta yrði
Væri það selt á dælu fyrir almening á opinni stöð eða aðeins kvartmíluklúbbinn á okkar keppnissvæði þar sem ég hefði haldið að racebensín væri undanskilið vegsköttum og slíku og það væri grundvöllur fyrir ódýrt keppnisbensín
Er möguleiki að fá í gegnum N1 staðlað Keppnisbensín t.d frá Sunco eða álika en ekki Vpower með toluene út í :/
-
Fæst ekki mun betri árangur með toluene þegar það er bætt út í blýbensín eins og gamla Turbo Blue var byggt upp??
-
Sama hvaða bensín þetta yrði
Væri það selt á dælu fyrir almening á opinni stöð eða aðeins kvartmíluklúbbinn á okkar keppnissvæði þar sem ég hefði haldið að racebensín væri undanskilið vegsköttum og slíku og það væri grundvöllur fyrir ódýrt keppnisbensín
Er möguleiki að fá í gegnum N1 staðlað Keppnisbensín t.d frá Sunco eða álika en ekki Vpower með toluene út í :/
Verið að tala um að N1 selji þetta umrædda bensín á aðeins einni dælu á einni af bensínstöðvum N1 hér á höfuðborgarsvæðinu.
ef að það verður á N1 í Hafnafirði er það mikill kostur fyrir alla KK meðlimi, en auðvitað verða fleiri en bara kvartmílukeppendur sem eiga eftir að nýta sér þetta myndi ég halda.
kv Bæzi
-
Þetta verður í allmennri sölu og notað á bíla sem eru líka að keyra á götunum. Það mundi aldrei ganga að selja þetta bara á kvartmílubrautinni. Hver á að fylgjast með þvi hvort bíllinn er bara að keppa eða keppa og keyra á götunum líka.
Það er sjálfsagt hægt að rökræða hvort þetta eða hitt bensínið er betra, en spurningin er: Mundum við nota þetta bensín sem N1 er að bjóða okkur eða viljið þið eitthvað annað bensín? Eg hefði haldið að þetta væri skref uppá við að fá hærri oktan tölu. En eins og ég nefndi þá veit ég lítið um svona bensín.
Góður punktur með Hafnarfjörðinn. Eg skal nefna þá stöð við Hermann, en sjalfsagt fer þetta eftir fjölda tanka og eitthvað svoleiðis.
-
Hér er þetta frá N1
RON = Research Octane Number
MON = Motor Octane Number
PON = Pump Octane Number
RON er sú oktantala sem fæst við mælingu í prufuvél
MON er sú oktantala sem fæst við prófun í bílvél við raunverulegar aðstæður
PON er RON + MON deilt með 2.
Ef við miðum við venjulegar gæðareglur sem gilda um allan heim, þá er munur á RON og MON 10 til 12.
98 oktan RON hefur því MON ca 88, eða 98 + 88 = 186 : 2 = 93 PON.
-
En gaf N1 upp RON/MON fyrir þetta bensín sem fyrirhugað er að selja okkur "mögulega" í sumar?
-
Það er ekki spurning að betra bensín á miklu betra verði en hefur verið í gangi er eitthvað sem menn versla það er ekki spurning.
Það eru margir td. í vandræðum með bensín í torfærugeiranum og víðar í íslensku mótorsporti.
Er samt ekki um að gera að taka sem hæsta octantölu ef verðið er samt á svipuðu róli ?
-
Mér lýst vel á þetta, snilld að fá alvöru bensín á viðráðanlegu verði, ég veit um fullt af sleðaköllum sem eru spenntir fyrir þessu líka, þannig að það ætti að geta verið góð hreyfing á þessu yfir vetrartímann líka.
-
hvernig er með besín með þetta háu octan gildi (105/6) er þetta í lagi á mótor sem þjappar rúma 11
-
Ástæðan fyrir því að ég spyr með hvaða dælu og hvar því keppnisbensín ætti að vera undanskilið þessum veggjöldum svipað eins og vinnuvéla Olian sem er lituð en það væri bara fylgst eins með því og olíunni
Ef hún væri aðeins á lokuðu svæði eins og hjá KK eða aðilar með klúbbskírteini í akstursíþrótta klúbbum gætu aðeins keypt þetta því þetta væri ætlað á keppnistæki og utanvega akstur og þar með minni hætta á notkun þess á götunum og ætti að vera ódýrara en 23þús lítrar er slatti..
Ég þekki ekki samsetninguna á Turbo Blue en Toluene er mjög fínt út í hvaða bensín sem er sem octan booster en undirstaðan verður að vera góð því það er stór munur á EFI og blöndungsvélum með ýrun,þyngd og gufumyndun ect.. svo að Octan talan er ekki allt
F1 keyrði á 95% toluene og 5% N-Heptine þegar vélarnar voru að blása 5-6bör en kanski ekki hægt að miða við það en Toluene étur gummí pakkningar ect..
Þetta er mjög spennandi en ef þú gætir komist í frekari upplýsingar um hvaða bensín og octan þá væri það frábært
Er N1 ekki með t.d E85 eða Race E85 til sem hægt væri að nálgast?
-
hvernig er með besín með þetta háu octan gildi (105/6) er þetta í lagi á mótor sem þjappar rúma 11
++
alveg tilvalið Íbbi
og klárlega bætt 1-2° kveikju líka á móti t.d. 98 okt hér heima.... :mrgreen:
meira segja 12:1 þjöppu bílar geta keyrt á þessu hugsa ég
Þetta er bara snilld hvort sem það á við um hærri þjöppu mótora eða boosted mótora
kv Bæzi
-
hvernig er með besín með þetta háu octan gildi (105/6) er þetta í lagi á mótor sem þjappar rúma 11
++
alveg tilvalið Íbbi
og klárlega bætt 1-2° kveikju líka á móti t.d. 98 okt hér heima.... :mrgreen:
meira segja 12:1 þjöppu bílar geta keyrt á þessu hugsa ég
Þetta er bara snilld hvort sem það á við um hærri þjöppu mótora eða boosted mótora
kv Bæzi
Þú tapar afli á því á keyra á alltof háu octani og flýtingin er ekki heldur að hjálpa en er fínt á gasinu
Fer mjög eftir mótorum en 100oct dugar á töluvert háþrýstari vélar en 12:1 upp að 14:1 en það er DCR sem skiptir máli ekki SCR..
-
Sammála.. knasturinn spilar feitan faktor :!:
-
Hérna er reiknivél fyrir DCR http://www.wallaceracing.com/dynamic-cr.php
En annars flott framtak að fá svona bensín á dælu.
-
já það var pælingin hvort þetta væri óþarflega hátt, fyrir minn mótor þ.e.a.s
-
já það var pælingin hvort þetta væri óþarflega hátt, fyrir minn mótor þ.e.a.s
Það held ég ekki Íbbi
getur auðvitað keyrt a 98 okt a þessari þjöppu, ég er með SCR 11.4:1 DCR 9.8:1 og er ekki að knocka á því , en ég myndi persónulega kaupa þetta 100+ okt gæða bensín fyrir keppnir sjálfur og jafnvel alltaf, vitandi það að maður er þá með gott bensín, eins og bensínið var síðasta sumar veit maður aldrei hverju maður á að eiga von á... [-X
En það eru pottþétt fullt af bílium og tækjum sem muna nýta sér þetta
segji bara N1 go for it full force!!!!!! það er stutt í fyrsta mót ++++
Bæzi
-
Ég myndi segja að stæðsti markhópurinn væri 106-110okt.
-
Ég myndi segja að stæðsti markhópurinn væri 106-110okt.
sæll Frikki
ertu að tala um 106-110 RON okt
(maður ruglast pínu á þessu)
sýnist t.d. 98 okt sem við erum að nota vera um 92-93mon og þá um 103-104 RON
ef að maður notar þessa 10-12% viðmið
kv Bæzi
-
Ég myndi segja að stæðsti markhópurinn væri 106-110okt.
sæll Frikki
ertu að tala um 106-110 RON okt
(maður ruglast pínu á þessu)
sýnist t.d. 98 okt sem við erum að nota vera um 92-93mon og þá um 103-104 RON
ef að maður notar þessa 10-12% viðmið
kv Bæzi
Nei 98okt hjá okkur er 98RON.
-
Nei 98okt hjá okkur er 98RON.
Sæll Baldur
já ok , nú skil ég þetta loksins (fór líka að googla ) ](*,)
pínu tregur
MON+RON/2 = USA okt
ég hélt að það væri RON+MON(usa okt)/2 = okkar okt ....
(smá misskilningur) :-&
sorry
kv Bæzi
-
Smá innlegg frá Racebensin.com í þessa umæðu.
Burtséð frá verðinu þá hefur verið til hágæða Sunoco keppnisbensín hér á landinu undanfarin ár fyrir allt Íslenskt mótorsport hjá Racebensin.com.
Við höfum lagt okkur fram í því að hafa verðið í lágmarki þar sem við vitum að verðið á svona bensíni er mjög dýrt, keppendur hafa ekki verið sáttir við verðið enda er það mjög hátt miðað við venjulegt götubensín, við vitum þetta sjálfir mjög vel þar sem við erum sjálfir að keppa í mótorsporti . Þetta er rándýrt frá framleiðanda og hár flutningskostnaður, skattar og önnur gjöld gera verðið fáránlegt!
Samt höfum við náð að vera ódýrari en annarsstaðar í Evrópu og hafa keppendur meira segja farið með bensín sitt héðan til útlanda að keppa þar sem það hefur verið ódýrara hér heima.
Ekki er víst að við náum að vera ódýrari en Evrópa þetta árið ef á annað borð við flytjum inn bensín þetta árið! þar sem nýjar álögur hafa bæst við bæði hér heima og erlendis.
þetta er dýrt efni enda um topp bensín að ræða fyrir aflmestu vélar landsins. Við fögnum því að N1 ætlar að flytja inn uppskrúfað götubensín fyrir tjúnaða götubíla á sangjörnu verði! Því miður er ekki hægt að selja alvöru keppnisbensín á því verði sem hér hefur verið rætt um!
Það má minnast á að við erum þeir einu sem hafa flutt inn Alcahol fyrir Topp Alcahol keppnisgræjur,
þeir einu sem hafa flutt in Alcahol bætiefni fyrir keppnisgræjur,
þeir einu sam hafa flutt inn race E85 fyrir keppnisgræjur.
Ennfremur flytur racebensín.com inn keppnisolíur fyrir allar gerðir af keppnsimótorum frá 5hp til 3000hp og flytur einnig inn olíur fyrir muclecar bíla og fornbíla
Við flytjum bara inn vörur í topp gæðaflokki ekkert cirka efni eða „þetta hlítur að duga efni!!!
þeir sem vilja ekki það besta fara eitthvað annað.
Bestu Kveðjur Gunni og Teddi
-
=D>
-
Þið eruð með topp klassa vöru þarna hjá Racebensín en, við erum ekki alvega að tala um sama hlutinn. Því menn eru bara að leita af pumpubensíni sem virkar fyrir þessa bíla svo þeir gangi og eyðileggi ekki kertinn og fleyra. Það segir sig sjáft að þú keyrir ekki í daglegum akstri á ykkar bensíni en það er flott í keppni enda race bensín, maður mundi ekki tíma því. N1 er að tala um 23.000 lítra og segir sig sjálft að það er ódýrar heldur enn að taka þetta í 200 lítra tunnum, en samt ekki sömu gæði held ég og hjá ykkur.
Í sambandi við útreikninginn þá er þetta bensín sem talað er um 106 +88 /2 = 101 pon er það ekki, (usa okt)? Viljum við hafa það sterkara eða dugar þetta ekki. Þeir sem vilja hafa þetta veikara geta alltaf blandað þetta með hefðbundnu 98 okt sem er þá 93 pon
-
106RON +88MON /2 = 97 PON
-
Þið eruð með topp klassa vöru þarna hjá Racebensín en, við erum ekki alvega að tala um sama hlutinn. Því menn eru bara að leita af pumpubensíni sem virkar fyrir þessa bíla svo þeir gangi og eyðileggi ekki kertinn og fleyra. Það segir sig sjáft að þú keyrir ekki í daglegum akstri á ykkar bensíni en það er flott í keppni enda race bensín, maður mundi ekki tíma því. N1 er að tala um 23.000 lítra og segir sig sjálft að það er ódýrar heldur enn að taka þetta í 200 lítra tunnum, en samt ekki sömu gæði held ég og hjá ykkur.
Í sambandi við útreikninginn þá er þetta bensín sem talað er um 106 +88 /2 = 101 pon er það ekki, (usa okt)? Viljum við hafa það sterkara eða dugar þetta ekki. Þeir sem vilja hafa þetta veikara geta alltaf blandað þetta með hefðbundnu 98 okt sem er þá 93 pon
Akkurat ekki sami hluturinn......
þetta er bara gæða pumpubensín fyrir götubíla og þá auðvitað gott fyrir keppendur í götubílaflokki (þar sem skilyrði eru pumpubensín).
Er ekki að sjá að þeir sem hafa verslað racegas fyrir keppni séu að fara skipta því út fyrir þetta pumpubensín.
97 pon er auðvitað yfirdrifið gott pumpubensín..
kv bæzi
-
Reyndar hefur mér verið kennt að bensín sem hefur mjög mikinn mun á RON og MON mælingunni sé ekki gott, og að MON talan skipti miklu meira máli á mótorum sem keyra undir miklu álagi. Þar með væri bensín sem hefði hærri RON tölu en sömu MON tölu og 98 oktana bensínið tæplega mikið betra.
-
Sæll Hilmar er eitthvað af frétta af bensín málum ??
kv einn geggjað áhugasamur :shock:
Bæzi
-
Já við fáum þetta bensín og N1 er búinn að fá efnin í þetta og nú eru þeir að gæðaprófa þetta, svo þetta verur til fyrir sumarið. =D> \:D/
-
Er þetta benzín komið.
Kveðja Magnús.
-
er engin sem veit þetta það stytist í tímabilið og maður þarf tíma til að stilla.
Kveðja Magnús
-
Ég veit ekki betur en að þetta sé í þróun/prufu og við fáum alveg 100% að heyra það hér þegar þetta verður tilbúið. 8-)
-
Mér skildist á Hermanni seinast þegar ég heyrði í honum að þetta væri komið. Eg skal fá þetta staðfest hjá honum og hvenær þetta verður sett í sölu. Verður sjálfsagt aðeins erfitt að ná í hann núna með allar þessar eignabreytingar á N1. En ég sendi honum póst og athuga málið
-
Sælir, hvað heyrir af gæðaeldsneytinu :)