Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Jón Bjarni on August 26, 2014, 23:24:48
-
Skráningu í báðar keppnirnar lýkur miðvikudaginn 27 ágúst kl 22:00
http://kvartmila.is/is/frett/2014/08/23/thridja_umferd_islandsmotsins_i_kvartmilu_og_king_of_the_street (http://kvartmila.is/is/frett/2014/08/23/thridja_umferd_islandsmotsins_i_kvartmilu_og_king_of_the_street)
-
Keppendalistar eru komnir í fréttina
-
þetta lofar góðu =D> nú er bara vona að veður haldist í lagi :???:
-
Því miður eru líkurnar á þurru veðri um helgina afar litlar. :-(
-
Yr.no lítur vel út fyrir laugardaginn :)
-
Gæti orðið svona síðdegiskeppni . =D>
-
Við hlustum ekki á þessar veðurspár... þær eru aldrei réttar!
-
Það er spáð neistaflugi og sprengingum á morgun svo það er allt eins og það á að vera
-
..... og hvernig fór?? :roll: :roll:
-
Bara æfing.:-)
-
Preppið var lélegt... en það hefði alveg mátt keyra keppni...
Byrjaði með hóp-drift-keppni... í bleytunni hahaha... en endaði í frekar góðri æfingu bara, ég þakka fyrir góðan dag ;)
Hefði viljað sjá KOTS keyrt allavega, það var vel mögulegt...
-
Takk fyrir mig þetta var langur og blautur dagur. Það vantaði fleiri slikkabíla til spóla niður smá gúmmíi. Það var gaman að heyra hvað Pil , SantaPod stjóranum , fannst um brautina okkar. Við megum vera stolt af brautinni og umgjörðinni , við erum áhugamenn fyrst og fremst.
Mbk harry þór
-
Já, það var víst alveg epic á honum svipurinn þegar að hann sá Samma launcha....
-
Keppirnar munu fara fram næstu helgi
http://kvartmila.is/is/frett/2014/09/01/tilraun_2_thridja_umferd_islandsmotsins_og_kots (http://kvartmila.is/is/frett/2014/09/01/tilraun_2_thridja_umferd_islandsmotsins_og_kots)
-
Vegna óvissu með rigningu skv. veðurspám og í ljósi þess að síðasti laugardagur var langur, þar sem beðið var eftir að brautin yrði keppniskæf, þá hefur keppnisstjórn ákveðið að fresta báðum keppnum á morgun.
Enn er stefnt að því að halda keppnirnar í sumar/haust og verður ákvörðun tekin um það með hliðsjón af veðri.
Slík ákvörðun gæti verið tekin með skömmum fyrirvara og kynnt á þeim miðlum sem Kvartmíluklúbburinn hefur yfir að ráða!
-
geisp....
-
Er þetta ekki of fljótt til að fresta keppni, útlit er tvísýnt en gæti vel orðið þurrt á morgun. Að minu mati ætti að meta stöðuna milli kl 10 til 12 og gefa þá út um hvort keppni verði frestað. Það var venja hérna áður fyrr. Norska spáin er hagstæð milli 12 og 18 Það er komin September og haustar senn. Þannig að það er enn meiri ástæða til að skoða veðuraðstæður áður en keppni er frestað.
kv, Gretar Franksson
-
algjörlega á sama máli og Gretar F =D>
-
blablabla það er búið að fresta. :roll:
-
heimska að fresta þessu IMO...
BELGINGUR segir að það verði þurrt, norska segir að það gæti dropað um 5...
vedur.is gerir ráð fyrir rigningu við kleifarvatn...
sýnist þetta verða flottur dagur... leyfi mér að efast um að skylirði leyfi ekki keppni...
-
Þeir fiska sem róa.
Mbk harry þór
-
Þar sem ég var búinn að undirbúa keppnistækið til að mæta í keppni, komin með sponsor ofl. ákvað ég að fá mér göngutúr upp að braut kl 10 í morgun. Aðstæður eru ágætar þurrt og hiti 12°C Vindur S.S.V 5 til 7metrar.
Kv, GF.
-
og.... ekkert ???
-
Helvitis óheppni er þetta, búið að vera þurrt hérna á Völlunum í allan dag :oops:
-
Gaflaragrátkórinn byrjaður :lol:
-
Ég fór uppá braut kl ca 14.47 og það kom svona smá úði á framrúðuna , þetta er helvíti tæpt fyrir avöru racera kanski okey fyrir KOTS. Ætla rétt að vona að það fari rigna fyrir allan aurinn.
Eitthvað eiga sumir eftir að röfla.
Hef það eftir ábyggilegum heimildum að 20 sept verði frábær dagur.
Mbk harry þór
-
Fyrstu droparnir komu kl.15.30 það hefur verið alveg þurrt fram að því. Þetta staðfestir hversu veðurspáin er stundum óáreiðanleg. Mæli með að þegar veðurspáin er "tvísýn" með það hvort rigni eða ekki þá sé tekin ákvörðun sama dag og þá einnig hvort mögulegt sé að halda keppnina daginn eftir. Spáin fyrir morgundaginn er bara rigning og nokkuð örugg. Þessi skrif um veðrið og aðstæður er bara málefnaleg umræða sem ætti að vera sjálfsögð.
GF.
-
Undanfarin ár hefur verið nokkuð góð sátt um þá aðferð sem keppnisstjórn hefur notast við þ.e. að ákveða í síðasta lagi á hádegi á föstudegi hvort að fresta skuli keppni. Það er gert m.a. vegna þeirra sem koma utan af landi. Það hefur sýnt sig að erfitt er að reiða sig á veðurspár en ekki er um aðra kosti að velja. Í dag áttu að fara fram tvær keppnir og því nokkuð stór viðburður fyrir alla sem að koma og ekki má gleyma því að klúbburinn byggir starfsemi sína á tekjum af viðburðum sem þessum.
Upp úr kl. 3 byrjaði að rigna og því hefði ekki verið hægt að ljúka dagskrá dagsins.
Keppnisstjórn telur því að ákvörðun um frestun hafi verið rétt og ekki síður í ljósi þess hversu erfið biðin reyndist síðasta laugardag þegar ekki tókst að hefja keppni.
-
þetta er helvíti tæpt fyrir avöru racera kanski okey fyrir KOTS.
.
Mbk harry þór
Er þetta grín ?!?!?
-
Auðvitað er þetta grín. En öllu gríni fylgir einhver alvara. Akkurat kl ca 14.47 hefði trackið verið okey fyrir þá bíla sem mættu á KOTS um síðustu helgi. Það sýndi sig þrátt fyrir að starfsmenn reyndu hvað þeir gátu að tracka brautina ,enda gékk það ekki fyrir OF. Hef nettar áhyggjur af því hvað track vinna er dýr og tricky.
Maður hefur nú heyrt það áður frá alvöru racerum að allt annað en stórir slikkar er ekki racing.
Við hefðum getað keyrt KOTS um síðustu helgi og 3 umferð Íslandsmóts í dag , en maðurinn er aldrei eins vitur eins og eftirá.
Mbk Harry Þór
-
Sælir
Það eru nokkrir 8 og 9 sek bílar skráðir í KOTS sem eru að skila meira afli heldur en meirihlutinn í OF og allir á minni dekkjum, ef það er ekki racing þá veit ég ekki hvað. :wink:
Þó að þeir hafi ekki allir verið mættir í rigninguna síðast þá má nú varla reikna með því að þeir mæti ekki núna heldur, svo halda upprunalegar skráningar sér þó það sé frestað og alls ekki víst að menn komist þegar það er búið að fresta.
Við erum svo lánsamir að Piero hjá BJB pústþjónustu hefur styrkt okkur mikið og meðal annars með því að gefa okkur slikkana til að draga gúmmí en vissulega er töluverður kostnaður við að undirbúa brautina fyrir keppnir og æfingar. Það hefur þó gengið ágætlega reksturinn undanfarin ár og félagið átt peninga til að framkvæma helling.
Það hefði verið flott að keyra þessar keppnir þegar hinsegin dagar voru og á menningarnætur "degi", það voru með betri dögum á árinu en því miður ekki mannskapur til að keyra keppnir. Nú stendur til að þjálfa nýja menn upp í að læra á tímatökubúnaðinn svo það verður vonandi auðveldara að eiga við keppnishaldið og æfingar á næsta ári. Vonandi koma sem flestir
að læra á græjurnar. :smt023