Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Messages - Buddy

Pages: 1 ... 4 5 [6] 7 8 ... 23
101
Ford / Re: 50 ára Mustang sýning 3.-4.maí
« on: May 07, 2014, 02:01:58 »
Hér er myndasett frá sýninguni

https://www.flickr.com/photos/bb-kristinsson/sets/72157644433220346/

Nýjasti meðlimur Mustang flotans
Ford Mustang BOSS ´13 by B&B Kristinsson, on Flickr

Goðsagna kenndi ´71 Mach-1 bílinn hans Björn Emils
The Mustang show by B&B Kristinsson, on Flickr

Hljómsveitin Kaleo spilaði fyrir sýningargestum
Kaleo and Mustangs by B&B Kristinsson, on Flickr


102
Spáin fyrir morgundaginn(miðvikudaginn 7.maí) er flott þannig að við skellum á fyrsta hitting ársins. Ætlum að hittast á Fjarðarkaupsplaninu í Hafnarfirði kl.20. Tökum síðan smá rúnt um bæinn.

Muscle car cruise by B&B Kristinsson, on Flickr

103
Ford / Re: 50 ára Mustang sýning 3.-4.maí
« on: May 05, 2014, 23:50:51 »

Kaleo tók óskalag fyrir okkur á Mustang sýninguni  8-)


https://flic.kr/p/nwygqk

104
Ford / Re: 50 ára Mustang sýning 3.-4.maí
« on: May 03, 2014, 22:56:48 »

Hinn goðsagnakenndi Mustang í eigu Björn Emils á Mustang sýninguni

´71 built to perfection by B&B Kristinsson, on Flickr

Hljómsveitin Kaleo spilar á Mustang sýninguni kl.15

Kaleo - Automobile (Official audio)

105
Ford / Re: 50 ára Mustang sýning 3.-4.maí
« on: May 03, 2014, 02:43:33 »
Svona átti það að vera  8-)

The BOSS is back by B&B Kristinsson, on Flickr

107
Ford / 50 ára Mustang sýning 3.-4.maí
« on: April 28, 2014, 10:56:08 »
50 ára afmælissýning Ford Mustang verður um helgina í Brimborg – frítt inn!
Dýrmætustu og sjaldgæfustu Ford Mustang bílar landsins verða samankomnir í Brimborg um helgina á 50 ára afmælissýningu Ford Mustang.
Aðgangur er ókeypis og sýningin er opin frá kl. 11-16, bæði laugardag og sunnudag.

50 Mustang bílar í tilefni 50 ára afmælis
Hvorki meira né minna en 50 bílar verða á staðnum til að fagna 50 ára afmæli Ford Mustang. Meðal bíla sem verða á staðnum er Mustang Shelby GT-500 Eleanor ´67 sem er eftirlíking af Mustang bílnum úr myndinni Gone in 60 Seconds. Mustang Mach-1 ´71 verður líka á staðnum en sá bíll hefur verið í uppgerð í meira en 30 ár og er töluvert breyttur. 2013 Boss 302 sem er nýkominn til landsins.
Elsti Ford Mustang landsins verður einnig til sýnis. Sá bíll var framleiddur 8. maí ´64, eða einungis þremur vikum eftir að Ford Mustang kom fyrst á markað.
Mustang Boss 429 ´69 í upprunalegu ástandi verður líka á sýningunni en einungis 859 eintök af bílnum voru framleidd. Ekki má gleyma Mustang HCS ´66 en aðeins 333 eintök voru smíðuð og þessi bíll er eini bíllinn utan Bandaríkjanna.
Þetta er einungis brot af þeim bílum sem verð til sýnis en meðal fjölda annarra spennandi bíla verða Mustang Saleen Sterling S302E (einungis 25 framleiddir), Mustang LX´86 (hraðskreiðasti Mustang landsins) og Mustang Shelby GT-500 ´07 (margfaldur Íslandsmeistari í kvartmílu).

Mustang er tákngervingur frelsis
Árið 1964 var fyrsti Ford Mustang bíllinn framleiddur og allar götur síðan hefur hann verið tákngervingur frelsis, krafts og áhyggjuleysis.
Ford Mustang hefur notið gríðarlegra vinsælda um heim allan og jafnframt veitt fjölda tónlistarfólks innblástur. Hver kannast til dæmis ekki við lagið Mustang Sally með Wilson Picett og My Mustang Ford með Chuck Berry?
Auk þess hefur Ford Mustang gegnt hlutverki í fjölda kvikmynda, má þar nefna Urban Cowboys, Endurgerð Gone in 60 Seconds og Bond-myndina Diamonds are Forever. Nýjasta myndin með Ford Mustang er svo Need For Speed með Breaking Bad leikaranum Aaron Paul en sú mynd er einmitt í sýningu í kvikmyndahúsum þessa dagana.

Nýr Ford Mustang væntanlegur
Ford Mustang er stór áhrifavaldur vestrænnar dægurmenningar og ekkert er lát á vinsældum þessa glæsilega fáks. Nú í ár er væntanlegur nýr Ford Mustang og eftirvæntingin er vægast sagt gríðarleg.

Kraftabílar, óteljandi hestöfl og rabb við eigendur
Við hvetjum alla áhugasama til að kíkja í Ford salinn, Bíldshöfða 6, laugardag eða sunnudag, milli kl. 11-16. Það er frítt inn. Sjaldan gefst tækifæri til að sjá svona marga kraftabíla á einum stað. Meðlimir Íslenska Mustang klúbbsins verða til taks fyrir spjall um allt sem viðkemur Ford Mustang goðsögninni.
Sýningin í ár er sjötta sýningin sem Íslenski Mustang klúbburinn og Brimborg standa að. Hún er jafnframt sú stærsta og glæsilegasta sem hefur verið haldin til þessa.

Lokahóf á sunnudag
Á sunnudaginn kl. 15.00 mun hljómsveitin Kaleo spila og úrslit kosninga verða kynnt kl. 15.30. Ef veður leyfir verður farið á rúntinn kl. 16.00. Ekki missa af því þegar nokkrir tugir Ford Mustang keyra úr hlaði Brimborgar.

108
Ford / Re: Hittingur 3.apríl - Skúraheimsókn í Hafnarfirði
« on: April 05, 2014, 23:20:36 »

Myndir frá hittingnum eru komnar inná Flickr

https://www.flickr.com/photos/bb-kristinsson/sets/72157639097538775/







Kveðja,
Björn

109
Ford / Hittingur 3.apríl - Skúraheimsókn í Hafnarfirði
« on: April 01, 2014, 17:13:31 »
Apríl Mustang hittingurinn verður fimmtudaginn 3. apríl í Rauðhellu 8, Hafnarfirði kl. 20:00. Á staðnum verða nokkrir af öflugustu Mustang bílum landsins sem er verið að vinna í að gera enn öflugari fyrir sumarið.
Hvetjum Mustang eigendur til að mæta á Mustangunum ef vel viðrar. Grillaðar pylsur og gos verða á staðnum

110
Ford / Hittingur 13.feb - Skúraheimsókn
« on: February 11, 2014, 11:40:30 »
Febrúar hittingur Mustang klúbbsins er skúraheimsókn, næsta fimmtudag 13. febrúar.  Byrjum kvöldið kl. 20:00 á Café Meskí, Fákafeni 9  Reykjavík. (Sama húsi og Ísbúðin).  Við leggjum af stað kl. 20:30 í skúrinn, sem fullur af flottum bílum.

111
Ford / Hittingur 9.janúar á Café Meskí Fákafeni 9
« on: January 06, 2014, 17:41:38 »
Janúar hittingurinn verður haldin næsta fimmtudag 9. janúar, kl. 20:00 á Cafe Meskí í Fákafeni 9 (sama hús og Ísbúðin). 2014 Dagatali Mustang klúbbsins verður dreyft og spjallað yfir kaffibolla.  Vonumst til að hitta sem flesta.


112
Varahlutir Til Sölu / Re: Peugeot 206 felgur
« on: December 17, 2013, 17:17:01 »
Bump :)

113
Ýmislegt Til Sölu/Óskast / Rafstöð til sölu 2000w
« on: December 08, 2013, 15:08:35 »
Til sölu rafstöð, 196ccm, 50Hz, 2000w. Tvö tveggja fasa tengi. Lítið notuð. Verðhugmynd kr. 60.000,-

Áhugasamir hafi samband bjorn.k@simnet.is eða í einkaskilaboð

114
Varahlutir Til Sölu / Re: Peugeot 206 felgur
« on: November 11, 2013, 11:34:46 »
 8-)

115
Varahlutir Til Sölu / Re: Subaru Impreza spoiler
« on: November 11, 2013, 11:34:17 »
Upp  :wink:

116
Til sölu 16" Borbet typ E felguset, 5/100 gatadeiling 35ET offset. Ónotaðar enn í kassanum. Verðhugmynd kr.90.000,-







Áhugasamir hafi samband á bjorn.k@simnet.is eða í einkaskilaboð

117
Varahlutir Til Sölu / Re: Subaru Impreza spoiler
« on: October 23, 2013, 17:07:59 »
 8-)

118
Varahlutir Til Sölu / Re: Honda CRX spoiler
« on: October 23, 2013, 17:05:42 »
 8-)

119
Varahlutir Til Sölu / Re: Peugeot 206 felgur
« on: October 23, 2013, 17:04:59 »
 :wink:

120
Varahlutir Til Sölu / Re: Til sölu ónotaðir sportstólar-seldir
« on: October 11, 2013, 13:25:45 »
Seldir

Pages: 1 ... 4 5 [6] 7 8 ... 23