Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: SPRSNK on July 15, 2016, 15:45:07
-
Laugardaginn 23 júlí fer fram önnur umferð íslandsmótsins í kvartmílu 2016
Skráningu lýkur miðvikudaginn 20 júlí kl 22:00
Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl/mótorhjól
Hjálm
Vera meðlimur í akstursíþróttarklúbb innan AKÍS eða MSÍ
Skráð ökutæki þurfa vátryggingarviðauka en óskráð keppnistæki þurfa að vera með tryggingar
Þeir flokkar sem í boði fyrir bíla eru eru:
GF http://kvartmila.is/is/page/gf-flokkur
OF http://kvartmila.is/is/page/of-flokkur
MS http://kvartmila.is/is/page/ms-flokkur
GT http://kvartmila.is/is/page/gt-flokkur
SE http://kvartmila.is/is/page/se-flokkur
RS http://kvartmila.is/is/page/rs-flokkur
MC http://kvartmila.is/is/page/mc-flokkur
OS http://kvartmila.is/is/page/os-flokkur
HS http://kvartmila.is/is/page/hs-flokkur
ST http://kvartmila.is/is/page/st-flokkur
TS http://kvartmila.is/is/page/ts-flokkur
DS http://kvartmila.is/is/page/ds-flokkur
LS http://kvartmila.is/is/page/ls-flokkur
BRACKET http://kvartmila.is/is/page/bracket-flokkur
Fyrir hjólin eru eftirtaldir flokkar:
kvartmila.is/is/page/motorhjolareglur
Skráningarfrestur.
Formlegri skráningu lýkur miðvikudaginn 20. júlí kl. 22:00
Late skráning verður leyfð til föstudagsins 22. júlí kl 23:59 en þá bætast 2000 kr við skráningargjaldið
Keppnisgjöld:
Skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd.
Bílar: Keppnisgjald 7.000 kr., innifalið er keppnisskírteni
Mótorhjól: Keppnisgjald 6.000 kr., innifalið er keppnisskírteni
Keppnisgjöld er hægt að greiða á tvo vegu:
Annarsvegar kaupa keppnisgjaldið í gegnum vefverslunina okkar eða leggja inn á klúbbinn.
Veverslun - http://kvartmila.is/is/vorur
Reikningsnúmerið er: 0544-26-111199 Kennitala:660990-1199
Vinsamlegast setjið kennitölu keppanda með í skýringu
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast fylltu út eftirfarandi form:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSf0JYvHErFtU0NEIQEKfqkNlujzg9NZ5QKNnljTmk2Gls9IhQ/viewform
Ef vandamál koma upp með skráningu, vinsamlegast hafðu samband við undirritaðan.
Dagskrá:
10:00 Mæting Keppanda
10:00 Skoðun hefst
10:30 Pittur lokar
11:00 Skoðun lýkur
11:10 Fundur með keppendum
11:30 Æfingarferðir hefjast
12:20 Æfingarferðum lýkur
12:30 Tímatökur hefjast
13:30 Tímatökum lýkur
13:50 Keppendur Mættir við sín tæki
14:00 Keppni Hefst
16:00 Keppni lýkur - Kærufrestur Hefst
16:30 Kærufrestur liðinn
17:00 Verðlaunaafhenting á pallinum
Nánari upplýsingar í síma 8473217 eða í E-maili: jonbjarni@kvartmila.is
Sjá frétt á heimasíðu:
http://kvartmila.is/is/read/2016-07-15/onnur-umferd-islandsmotsins-i-kvartmilu2/
Sjá frétt á FB síðu:
https://www.facebook.com/events/713756432057489/
-
Keppandalisti er kominn í fréttina, Seinni skráningu lýkur föstudaginn 22 júlí kl 23:59
http://kvartmila.is/is/read/2016-07-15/onnur-umferd-islandsmotsins-i-kvartmilu2/
-
Herðu dómari!!! Erum við að tala um hunts camaro comeback??
-
Herðu dómari!!! Erum við að tala um hunts camaro comeback??
Dómarinn gefur grænt spjald á það
-
Festað vegna veðurs til sunnudagsins 24 júlí, mæting kl 11:00 fyrir keppendur
-
Er ekki bara málið að mæta kl 16 á þriðjudag?
-
Hræddur um að þú værir ekki sáttur við það ef þú værir búinn að koma með þitt dót td norður að keppa og við frestum bara fram á þriðjudag :)
-
Það var magnað að ná að klára þessa keppni í dag, eftir tímatökur kom góður skúrir og það var næstum búið að aflýsa 20 mín síðar var allt orðið þurrt og keppni hafin.
1 mínutu eftir að keppni lauk og Lenni fór sína síðustu ferð byrjaði að rigna aftur, það er ekki oft sem það rignir að við sleppum svona snilldarlega :)
Flott ákvörðun hjá keppnisstjóra að láta reyna á þetta, greinilega lítið að marka veðurspár þessa dagana.
-
Já það var magnað að þetta skildi takast, takk fyrir góða keppni!!
Þessi veðurspá var akkúrat þveröfug, átti að vera þurrt á lau til kl 18 og þá átti að rigna langt fram á sunnudag, en var mígandi rigning til 18 á lau og að mestu þurrt eftir það.. Magnað hvað þessir veðurfræðingar vita EKKERT 8-)
-
Herðu dómari!!! Erum við að tala um hunts camaro comeback??
Dómarinn gefur grænt spjald á það
Klárlega.. Og svo mætti Palli líka með Javelin... Nú er búið að sýna það og sanna að þessir bílar sem voru keirðir inn í skúr á síðustu öld geta komist aftur út úr þeim \:D/
Svo bara vona að fleiri taki sér þetta til fyrirmyndar
-
Já þetta var alveg frábært, enginn bilaði svo ég viti allavega þannig að þetta gat ekki farið betur fyrir alla sem voru þarna.
Það var alveg rosalega gaman að sjá bæði Palla á Javelin og auðvitað Hunt´s Camaro-inn koma aftur.
Maður slefaði yfir þessum bílum í imbanum hér einu sinni og alltaf gaman að sjá svona tæki koma aftur... Vonum bara að þeir fari ekki með þá aftur inn í 20 ár þangað til við fáum að bera á þá augu aftur.
Og ekki skemmdi fyrir að hafa náð tveimur ferðum báðar vel undir 10 sec ekkert 9.999999 kjaftæði :mrgreen:
Svo vill ég að sjáfsögðu þakka þeim stór meisturum sem voru að starfa á keppninni og að hafa verið svona þolinmóðir með að taka pásur þegar byrjaði að rigna en ekki að hafa bara pakkað saman og slaufað þessu af.
Nei Stefán það verður erfitt fyrir þann sem vill halda því framm að AMC geti ekki skilað neinu afli eftir þessa heimsókn suður \:D/
Kv
Lenni AMC
-
Gaman að heyra að menn séu ánægðir.
Það væri líka gaman ef úrslit í keppninni væru birt, þ.e. hverjir kepptu, hvernig fór o.s.frv. fyrir þá sem ekki komust á keppnina 😉
-
Já það má sannarlega bæta úr því, það ætti að koma inn strax að keppni lokinni en það má sjá úrslitin í glæsilegu videoi sem Jakob C var að setja inn.
Mikið væri gaman ef Norðurbúarnir kæmust oftar til okkar, sóma keppendur og hristu verulega upp í þessari keppni.
-
http://kvartmila.is/is/read/2016-07-24/urslit-ur-annari-umferd-islandsmotsins-i-kvartmilu-2016/
-
Takk fyrir okkur
Þetta var snildar dagur fyrir okkur Stebba þrátt fyrir vandamál sem fannst út úr um nóttina eftir keppni #-o bara ryð í lömpunum í hausnum á mér og að starta í 3. gír í keppni er allveg út í hött hehehehe. En bara gaman og mæti pottþétt aftur á þessu sumri með bílinn í allt öðru formi :wink:. Lenni þú ert meistari 9,78 á þessum bíl og hvergi nærri búinn og fullt eftir þetta er bara snild og bíllinn og þið feðgar eru fyrirmynd fyrir aðra þarna upp frá.AMC POWER Always.
Palli
-
Greinilegt að Outlaw hugmyndin er að skila sínu og menn strax komnir í vígahug :twisted:
-
Já þetta er einn flottasti flokkur og fyrirkomulag sem hefur komið hjá KK. Algjör snild .
Palli