Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Messages - Hera

Pages: 1 2 [3] 4 5 ... 25
41
Almennt Spjall / Re: Spurning varðandi meðlimagjald 2009
« on: January 18, 2009, 13:30:06 »
Frétti af því í gamladaga þegar einhver gömul stjórn var með f4x4 og þá fór sumt í intrum ef ekki var borgað :/

Vildi bara vera viss :D
Takk fyrir svörin

Það er ekki hægt að senda valkröfu til innheimtu, það stenst ekki löggjöfin  :shock:

42
Almennt Spjall / Re: Spurning varðandi meðlimagjald 2009
« on: January 17, 2009, 15:42:39 »
Í sumum tilfellum (þar sem ég var í stjórn) þá vildu félagsmenn ekki hafa ógreidda kröfu félagsgjalds í heimabankanum ef þeir ætluðu yfir höfuð ekki að borga það árið.

Við tókum það upp þar að þeir félagar sem ekki ætluðu að borga, gætu bara sent póst til gjaldkera og hann tók kröfuna út (Það er ekkert mál að gera það í heimabankanum).

Kanski sniðugt að setja svonu upplýsingar inn í stikký þráð :?:

43
Keppnishald / Úrslit og Reglur / Re: Næsta Sumar
« on: December 29, 2008, 23:20:52 »

En tímin í að koma sér til baka eftir 1/8 ætla allir að aka á fullu gasi eða erum við að lengja tíman að næsta runni?? ef svo er hvaða áhrif mun það hafa á áhorf??

Smá pæling...... kanski alveg út úr kú veit ekki... ( er samt ekki ljóshærð... lengur  :oops:)


44
Almennt Spjall / Re: Góð kynning/auglýsing fyrir KK?
« on: December 29, 2008, 23:16:11 »
Flott hugmynd!! og til að kóróna það þá held ég að krökkunum fyndist nú gaman að fá að sitja í svona tækjum. Hugmynd að mæta með bíla og hjól og leyfa þeim að njóta skemmtunnar um leið og féð yrði afhent ef af þessu verður??




45
jamm bara gaman að sjá að það voru nokkrir sem mættu  :wink:

Flott að auglýsa klúbbin aðeins með því að mæta \:D/


46
Bílarnir og Græjurnar / Re: AF HVERJU???
« on: December 16, 2008, 12:57:20 »
Þessi GM þráður er nýr kanski er verið að vinna í því að flokka þetta eithvað niður??
Held að það sé nú ekki verið að mismuna fólki viljandi hérna inni í bílaþráðnum  :wink:



47
Fyrir þá sem hafa ekki skoðað teikninguna sem var uppkast til að fá svæðið samþykkt sem akstursíþróttasvæði þá er sandspyrnubraut á þeirri teikningu  :wink:
þannig að ég held að það hafi verið og sé hugsað út í það.

En það þarf að fara að teikna svæðið og eins og ég las (einthverstaðar hér á vefnum) þá er víst verið að vinna eithvað í því af kk og Hafnafjarðarbæ að fá arkitekt til að hanna þetta og teikna. Það er grundvöllur fyrir öllum framkvæmdum að þær séu samþykktar.

ég tel það jákvætt að setja sandspyrnubraut á svæðið.
Lengir sumarið og mögulega áhorf og félagsmenn sem þýðir auknar tekjur, sem þýðir meira fé til uppbyggingar á svæðinu = allt jákvætt með það að mínu mati.

En ég er á því að það þurfi að vanda val á forgangsröðun og ekki ana út í neitt sem gæti komið eins og búmerang í hausin á okkur til baka.


48
Almennt Spjall / Re: Myndir frá Lokahófinu
« on: December 16, 2008, 11:43:30 »
Jaja seint kemur sumt en kemur þó  :wink:
Setti inn allar myndirnar þó svo þær væru ekkert spes þá eru þetta þó myndir.

http://www.123.is/honda/pictures/cat/5525/


49
Alls konar röfl / Re: "En einn" Brandara þráður
« on: December 12, 2008, 15:33:08 »
Jólalagið með Baggalút er alger snilld lagið er á þessari síðu: http://www.123.is/ruttla/blog/record/325748/

Mæli með að þið hlustið á þetta  :smt043
Textin er hér:

Allflestar útgönguspár
eru á eina lund;
þetta var skelfilegt ár.
Hér út við heimskautsins baug
hnípin þjóð - þráðbeint á höfuðið flaug.

Allt þetta útrásarpakk
át á sig gat
svo loftbólan sprakk.
Nú eru lífskjörin skert, mannorðið svert,
Hvað hafið þið gert?

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við skellum könnu upp á stól
og Sollu í kjól.
Þrátt fyrir allt
þrátt fyrir verðbólguskot
- þjóðargjaldþrot.

Við áttum íbúð og bens
og orlofshús.
Allt meikaði sens.
Góðgerðir gáfum og blóð
greiddum í - dulítinn séreignasjóð.

En nú er allt þetta breytt og eftir er
nákvæmlega ekki neitt.
Já nú er útlitið dökkt
ljósið er slökkt
og við erum fökkt.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Þó vanti möndlu í graut
og amerískt skraut.
Þrátt fyrir allt
þrátt fyrir háðung og smán
- myntkörfulán.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við étum á okkur gat
af innlendan mat.
Og þrátt fyrir allt
misnotum sykur og salt.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við krössum afmælið hans
- heimslausnarans.
Því að þrátt fyrir allt
drekkum við mysu í malt.



50
Alls konar röfl / Re: "En einn" Brandara þráður
« on: December 12, 2008, 15:28:34 »
Hagnýt ráð við tölvunotkunn nú eða kallinn
Ágæta tæknideild.
Á síðasta ári fékk ég mér uppfærslu úr Boyfriend 5.0 í Husband 1.0.Fljótlega á eftir tók ég eftir því að nýja forritið átti í örðugleikum með að aðlagast þeim forritum sem fyrir voru og takmarkaði til dæmis aðgang minn að blóma og skartgripaskránum sem hafði verið ekkert mál að opna með gamla forritinu Boyfriend 5.0. Ekki nóg með þetta heldur eyddi Husband 1.0 mörgum mikilvægum forritum eins og t.d. Hot-sex 1.0 og Romance 9.9 en setti inn önnur forrit sem ég kærði mig ekkert um eins og NBA 3.0 og Formula 6.0. Forritið Conversation 8.0 virkar ekki lengur og ef ég ræsi upp HouseCleaning 2.6 hrynur kerfið. Ég hef prófað viðgerðarforritið Nagging 5.3 til að laga þetta en ekkert gengur.
Hvað get ég gert ?
Kveðja Baby
Ágæta Baby
 
Hafa ber í huga að Boyfriend 5.0 er eingöngu skemmtiforrit meðan að Husband 1.0 er stýrikerfi. Prófaðu að slá inn skipunina “C:\ITHOUGHT YOU LOVED ME”
og ræsa síðan upp viðgerðarforritið Tears 6.2. Stýrikerfið Husband 1.0 ætti að bregðast við með því að ræsa sjálkrafa upp Guilty 3.0 og Flowers 7.0. Passaðu þig á að ræsa ekki upp Beer 6.1 sem býr til “Snoring Loudly” hljóðskrár eða forritið MotherInLaw 1.0. Ekki reyna heldur að ræsa annað
Boyfriend forrit. Þetta eru forrit sem stýrikerfið Husband 1.0! styður ekki og gætu valdið algjöru kerfishruni. Í stuttu máli er Husband 1.0 frábært forrit, en er með takmarkað minni og er ekki fljótt að læra að vinna með nýjum forritum. Þú gætir prófað að kaupa hjálparforrit til að bæta virkni Husband 1.0. Við hér á tæknideildinni mælum sérstaklega með HotFood 3.0, Lingerie 5.3 og Keep-a-nice-body 10.1
Kær kveðja
Tæknideildin


51
Alls konar röfl / "En einn" Brandara þráður
« on: December 12, 2008, 15:18:51 »
Smá gaman svona rétt fyrir jólinn   :D


Lygasaga frá Ameríkunni.
Kona ein í Ameríku gekk með þríbura. Dag einn fór hún í banka þar sem vopnað rán var framið og lenti hún þá í miðri skothríðinni. Hún fékk þrjú skot í kviðinn en lifði árásina af sem betur fer.
Læknirinn sem skoðaði hana sagði að börnin væru ósködduð og einhvertíma myndu kúlurnar skila sér sjálfar út.
13 árum seinna kom ein stúlkan til mömmu sinnar og sagði;
“Mamma, mamma, ég var á klósettinu og þá kom ein kúla út”.
Þá sagði mamma hennar söguna af skotárásinni og þetta væri alveg eðlilegt og viðbúið.
Næsta dag kom hin stelpan til mömmu sinnar og  sagði sömu sögu og sú fyrri.
Á þriðja degi kom sonur konunnar til hennar og sagði;
“Mamma, mamma, …
og mamman tók framí fyrir honum og sagði;
”Leyfðu mér að geta, þú varst á klósettinu og þá kom kúla út?
Hann svaraði; ”Nei, ég var að fróa mér og þegar ég kláraði, þá skaut ég hundinn”.


Sá Gamli
Það vakti töluverða athygli þegar 75 ára brúðgumi skráði sig inn á hótel með ungri eiginkonu sinni.
Daginn eftir kom sá gamli skokkandi inn í matsalinn og leit mjög vel út, brosti breitt og pantaði sér allt það besta sem hægt var að fá í morgunmat.
Hann hló og sagði brandara og var auðsýnilega í frábæru skapi sem var eitthvað annað en unga konan hans, en hún kom hálftíma á eftir eiginmanninum og leit þreytulega út. Hún pantaði kaffi með svo veikri rödd að þjónninn þurfti að biðja hana að endurtaka pöntunina.
Sá gamli kláraði morgunmatinn, baðst afsökunar og fór. Þjónustustúlkan fékk þá tækifæri til að spyrja brúðina;
“Heyrðu elskan, ég skil þetta ekki. Gamli steggurinn, eiginmaður þinn, lítur út eins og milljón en þú eins og sokkin króna. Hvað er að?”
“Hann fór á bak við mig”, sagði brúðurin, “Hann sagði mér að hann hefði safnað í 50 ár! Og allan tímann hélt ég að hann væri að tala um peninga!”


Gamall maður sem hafði verið heyrnarsljór í mörg ár fór til læknis og fékk nýja tegund af heyrnatækjum. Allt í einu heyrði maðurinn frábærlega. Eftir mánuð kom maðurinn aftur til læknisins, sem vildi vita hvernig fjölskyldan hefði tekið þessari nýjung að hann gæti heyrt!
“Ég hef ekki enn sagt þeim frá þessu, en ég er búinn að breyta erfðarskránni 5 sinnum á þessum mánuði”.


Amman fór með Hrafnhildi í laugarnar sú litla var snögg að klæða sig úr og enn sneggri í sturtu enda hlakkaði hana til að koma í laugar í fyrsta sinn. Hún þaut út horfði undrandi á konur á góðum aldri sem staðsettar voru í einum hitapottinum , eftir smástund kom hún hlaupandi til baka greip í hendina á ömmu sinni og spurði hvort þær ættu ekki bara að fara heim. Amman vildi vita hvað væri að og sú litla  sagði “Þeir sjóða ömmur í potti við hliðina á sundlauginni.”


Tveir ungir menn ákváðu að veðja um hvor þeirra gætu gerð ÞAÐ oftar á einni nóttu. Þeir ákváðu að um sólarupprás að morgni myndu þeir hittast á hótelinu þar sem þeir gistu hvor með sinni dömunni og bera saman bækur sínar.

Sá ákafari af þeim tveim fór með dömuna sína uppá herbergi og byrjaði strax, þegar því var lokið strikaði hann eitt strik á vegginn og eftir næsta skipti setti hann annað strik við hliðina á því fyrra.

Þá tók hann sér stutta hvíld en sofnaði óvart og vaknaði ekki fyrr en um morguninn þegar það var farið að birta og rauk á dömuna, lauk sér af og setti þriðja strikið á vegginn. Það mátti ekki seinna vera því hinn vinurinn var kominn í heimsókn til að athuga hvernig hafi gengið. Hann leit á vegginn og sagði;

“Andsk…..hundrað og ellefu,,,,, þú hefur vinninginn, toppar þessi þrjú skipti mín.”




52
Keppnishald / Úrslit og Reglur / Re: Næsta Sumar
« on: December 01, 2008, 08:39:32 »
En að öðru varðandi næsta sumar....

Á að setja á laggirnar keppnisnefnd :?:
og ef svo hvaða ábyrgðarhlutverk hefur hún er búið að skilgreina það :?:
Er fólk að spá í að bjóða sig fram í keppnisnefnd:?:

Er fólk að spá í breitingar á reglum flokkanna :?:
Er fólk að spá í að bjóða sig fram í stjórn eða nefndir:?:




53
Keppnishald / Úrslit og Reglur / Re: Næsta Sumar
« on: December 01, 2008, 08:35:20 »
jaja 1/8 eða 1/4 er ekki búin að mynda mér skoðun á því þannig að ég sleppi því að tjá mig um það.

En inni í umræðuna er komin sandspyrnubraut og mig langar að tjá mig aðeins um það mál og vil byrja á að segja að ég er hlynt hugmyndinni.
En ég er sammála þeim sem sagði hér í þræðinum að það þarf að forgangsraða rétt.
Fólk er að ræða um að brautin sé slöpp, ekki lengur örugg ofl í þeim dúr.. er það þá ekki forgangsverkefni að lagfæra hana til þess að öryggi sé í lagi :?:

Annað varðandi sandspyrnubraut, ég hef ekki keppt í sandi en comon sence segir mér nú að dýftin þurfi að vera allnokkur, og það gera ansimarga rúmmetra af sandi, viti þið hvað sandur kostar :!: :!: :!:
Fyrir utan að það var nú ekki svo auðvellt að fá menn á vinnuvélarnar síðasta sumar til að ´slétta í kringum brautina (efast um að það breitist á einni nóttu)

Nú svo erum við með svæði sem á að byggja kappakstursbraut á, og sú hugmynd að hendast bara í þetta verkefni og redda þessu er alveg fráleit að mínu mati. Fyrsta skref er að hann svæðið og vita hvar hlutirnir eiga að vera. Það væri frekar sorglegt að vera búin að eyða x mörgum millum í sandbraut og þurfa svo að flytja hana vegna þess að hún er ekki á réttum stað :roll:

Einn hlutur en sem virðist alveg vera týndur í hugum manna er leyfi fyrir brautinnni og staðsetningu hennar auk þess sem AÍH og KK fengu þessu svæði úthlutað saman.
Hefur þetta verið rætt við AÍH eða hafnafjarðarbæ :?: :?:

og einn hlutur en það er blessaða vinafélag okkar hraunavinir sem sáu til þess að ákveðin svæði þarna eru friðlýst sem segir að við getum ekki alveg hent þessari braut niður hvar sem er.

vinsamlegast ekki túlka póstinn minn í niðurrifsstarfsemispóstinn þó svo að ég telji að það þurfi að hugsa, skipuleggja og framkvæma svo, reyndin er að það kostar oft meiri tíma en minni peninga.

54
Almennt Spjall / Re: FUNDUR
« on: November 26, 2008, 15:25:47 »
kemst ekki í kvöld, en veit einthver hvenær á að taka til eftir teitið???

Ég kemst um helgina ef þess þarf :wink:

55
Almennt Spjall / Re: Myndir frá Lokahófinu
« on: November 26, 2008, 15:23:23 »
eigum við sem ekki gátum komið ekkert að fá að vita hver og hverjir voru veitir verðlaunum :?: O:)

Man nú ekki allt en í fljótu bragði:

Íðróttamaður ársins á hjólum var Jón kr íslandsmeistari 1000 standars kom sá og sigraði fyrsta árið í come backinu. (keppti á 3 mismunandi hjólum minnir mig)

Nýliði ársins hjól: Reynir Reynisson??? 2 sæti 1000cc standard.

Íðróttamaður ársins bílar var Stefán eða Davíð  :oops: er á Evónum(?) með einka númerið 303 endilega leiðréttið nafnið og bíltegund þar sem ég er ekki alveg viss :oops:

Nýliði ársins bílar: Regína Einarsdóttir íslandsmeistari í 14:90 flokk.

Svo voru verðlaun fyrir race ársins man ekki hvað mennirnir heita, en minnir að það hafi verið í SE þar sem Harrý og rúdolf skiptust á íslandsmetum og að vinna hvorn annan :wink:

Svo voru verðlau veitt fyrir olíudreyfingu, best snirta meðlimin björtustu vonina sem alltaf er á leiðinni  :lol: ofl skemtilegt sem ég man ekki.

En please leiðréttið nöfn og flokka á bílunum ég er svo  græn þar  :mrgreen:


56
Almennt Spjall / Re: Myndir frá Lokahófinu
« on: November 26, 2008, 15:13:37 »
Update update...

Bjartasta vonin er með BROTINN putta, fer í skurðaðgerð á eftir þar sem verður settur pinni í fingurinn... doksinn tók eftir þessu í morgun!!!

Vona að aðgerðinn gangi vel!


57
Mótorhjól / Re: Stuttir demparar
« on: November 26, 2008, 13:21:46 »
Öðrum til uppl, þá leysti ég málið með framdempurum úr fjórhjóli :)

Svona á að redda sér  :lol:

58
Almennt Spjall / Re: Myndir frá Lokahófinu
« on: November 26, 2008, 09:59:20 »
Edda, hvar eru þínar myndir :D

Enþá í myndavélinni  :oops: skal vera dugleg og reyna að setja þær inn í dag ...

59
Almennt Spjall / Re: Myndir frá Lokahófinu
« on: November 25, 2008, 23:56:32 »
næst á dagskrá  jóla ball eða áramótaskrall  :idea:

Enda ekki skrítið að húsið sé flott ekki fáir klukkutímar sem fóru í þetta hjá fullt af fólki =D>


60
Almennt Spjall / Re: 2008 Motorsport Þættir á RÚV
« on: November 25, 2008, 11:49:32 »
Fyrsti þáttur næsta laugardag kl 12.45 og verður Kvartmíla o.fl í fyrsta þætti.. =D>

Frábært =D> \:D/
En hvar fengust þessar upplýsingar? er til linkur inn á eithvað meira en hér: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/?date-from=2008-11-29

Pages: 1 2 [3] 4 5 ... 25