Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: X-RAY on July 27, 2008, 18:47:37

Title: Tímar
Post by: X-RAY on July 27, 2008, 18:47:37
á ekkert að fara að pósta tímum úr æfingum og keppninni ???   :roll:
Title: Re: Tímar
Post by: Gilson on July 27, 2008, 18:53:38
sæll/sæl


starfsfólk var að koma heim frá keppninni núna rétt í þessu. Mér finnst dónalegt af þér að vera svona ýtinn. Starfsfólk er búið að vera að vinna núna alla þessa helgi og þetta er gríðarlegt álag. Mundu að þetta er sjálfboðavinna :!:. Þetta verður samt komið inn á næsta sólarhring eða svo.

Kv Gísli 
Title: Re: Tímar
Post by: Belair on July 27, 2008, 19:01:25
á ekkert að fara að pósta tímum úr æfingum og keppninni ???   :roll:

(http://www.zwatla.com/emo/2007/gros-emoticones-002/164.gif)
Noob




















(http://www.zwatla.com/emo/2007/gros-emoticones-002/588.gif)
Title: Re: Tímar
Post by: X-RAY on July 27, 2008, 19:24:13
ég bið afsokunar á ef ég hef móðgað einkvern ég var nú svona meira að forvitnast  :-#
Title: Re: Tímar
Post by: Valli Djöfull on July 27, 2008, 19:47:23
ég bið afsokunar á ef ég hef móðgað einkvern ég var nú svona meira að forvitnast  :-#
Þú hefðir þá mátt orða þetta betur, heldur dónalegur tónn :)

En jú, þegar ég fæ tölvuna í mínar hendur ætti ég að geta hent þessu inn.  Og klárað útreikning á stigum og fl.
Title: Re: Tímar
Post by: Harry þór on July 27, 2008, 23:02:27
Hæ. Hvar skildi þessi X-Ray hafi verið í dag. 40 mínútum eftir keppni heimtar hann tíma á netið.Skildi þessi njóli nokkurtíma hafi komið uppá braut og lyft litla fingri :evil:.Það eru alveg ótrúlega margir í þessum klúbb sem aldrei gera handtak. þá meina ég ekki bara þessir ungu cherrios drengir heldur líka hinir sem hafa verið þarna lengi og eru ekki keppendur í dag. Þið þarna sem hafið að vera keppa gegnum tíðina og vitið og kunnið á þetta komið og hjálpið til. Þetta er allt að koma - það eru komin tímaskilti -það er komið rafmagn - það er kominn vegur - en það vantar staff.

mbk Harry
Title: Re: Tímar
Post by: Danni Málari on July 28, 2008, 14:59:37
Ég tekur undir þetta með að hjálpa til, það er ekkert mál þó maður sé að keppa að hjálpa aðeins til í stað þess að bíða bara niðrí pitt og pirrast yfir að hlutirnir gangi ekki nógu hratt.
Ef það væru til dæmis tveir menn í viðbót uppí turn væri auðveldlega hægt að keyra æfingar eftir tímatökur meðan verið er að raða í flokkana, væri sérstaklega fínt fyrir áhorfendur.

Annars gekk þetta merkilega vel í gær sérstaklega í ljósi þess að Valli, Baldur, Arnar og Inga (nánast allt vanalega crewið) voru ekki á svæðinu.

Bíð spenntur eftir stigunum frá Valla. Væri líka vel þegið ef einhver gæti bent mér á hvernig þessi stig eru reiknuð út.
Title: Re: Tímar
Post by: Einar K. Möller on July 28, 2008, 15:03:23
Stigin mættu nú alveg fara að koma....hmm... Valli  :wink:

Annars er stigagjöfin svona Danni: http://www.kvartmila.is/wiki/images/a/a5/IHRA_Stigagjof.doc
Title: Re: Tímar
Post by: Danni Málari on July 28, 2008, 17:26:07
Stigin mættu nú alveg fara að koma....hmm... Valli  :wink:

Annars er stigagjöfin svona Danni: http://www.kvartmila.is/wiki/images/a/a5/IHRA_Stigagjof.doc

Takk fyrir það. Á ég þá að vera að skoða síðustu stigatöfluna í þessu skjali? Ég hélt það væru gefin stig fyrir besta tíma í tímatökum og fyrir íslandsmet líka, er það bara rugl?
Title: Re: Tímar
Post by: baldur on July 28, 2008, 18:41:38
Við förum eftir professional classes stigagjöfinni.