Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: SPRSNK on January 13, 2016, 00:15:29
-
16.04.2016
Hringakstur/Time attack Bikarmót
30.04.2016
1/8 míla Bikarmót Pro Tree/Second Chance
1/8 míla Íslandsmót i götuspyrnu mótorhjóla
14.05.2016
Kvartmíla Íslandsmót Full Tree/Second Chance nema OF
04.-05.06.2016
Afmælishátíð KK Brautardagur Kvartmíla/Drift/Muscle Car dagur
1/8 míla Íslandsmót i götuspyrnu mótorhjóla
24.06.2016
Kvartmíla Bikarmót OUTLAW / Kvöldkeppni
08.-10.07.2016
KOTS 1/8 míla Bikarmót Pro Tree/Second Chance
KOTS Hringakstur/Time attack Bikarmót
KOTS Auto-X Bikarmót
KOTS Kvartmíla Bikarmót Full Tree/Sportsman Ladder
15.07.2016
Drift Íslandsmót Kvöldkeppni
23.07.2016
Kvartmíla Íslandsmót Full Tree/Second Chance nema OF
13.08.2016
Kvartmíla Íslandsmót Full Tree/Second Chance nema OF
1/8 míla Íslandsmót i götuspyrnu mótorhjóla
27.08.2016
Drift Íslandsmót
28.08.2016
Hringakstur/Time attack Bikarmót
17.09.2016
Kvartmíla Brautardagur Lokamót - Metadagur
23.10.2016
Sandspyrna - vígslumót / bikarkeppni
-
Time attack á laugardaginn
Þátttökugjald er 5000 kr.
Mæting keppenda klukkan 11:30
Skráning fer fram í stjórnstöð.
Milli klukkan 12 og 13 verður farið yfir öryggisatriði, labbaður hringurinn sem keyrður verður og ekinn prufuhringur með undanfara.
Keyrsla hefst klukkan 13 og verður keyrt til klukkan 17.
Keyrðar verða 10 mínútna lotur.
Skipt verður milli hjóla og bíla, 3 lotur í senn.
Keppendur eru að keppa við sinn eigin tíma.
Öryggispunktar:
Tryggingarviðauki er skylda fyrir ökutæki á númerum. Óskráð sérsmíðuð keppnistæki þurfa að vera með tryggingar.
Þátttakendum er bent á að notast við nýjan bremsuvökva með hærra suðumark(keppnis bremsuvökva).
Hjálmaskylda - hjálmur þarf að vera löglegur samkvæmt fyrirmælum AKÍS.
Dekk þurfa að vera í góðu ástandi.
Bílar á númerum þurfa að hafa staðist bifreiðaskoðun hjá skoðunarstöð.
Engir vökvar mega leka úr tækjum sem taka þátt. Ekki fæst rásleyfi ef leki kemur upp á ökutæki.
Leyfi þarf hjá keppnisstjóra fyrir myndatöku utan áhorfendasvæða.
Góða skapið skylda og munið að allir eru að læra, ökumenn sem og starfsfólk! :-)
https://www.facebook.com/events/1650345158538665/
-
Er búið að planlegga næstu æfingu á kvartmílubautinni ?
Kveðja Elmar
-
Sæll Elmar
Það hefur ekkert verið ákveðið fyrir 1/8 mótið 30. apríl, en það er ekki útilokað að hægt sé að halda æfingu í vikunni fyrir það.
Það er verið að vinna í því að standsetja brautarsvæðið eftir veturinn og áætlað er að byrja að draga gúmmí í brautina næstu helgi.
-
Frábært, takk fyrir svarið :) maður ætti kannski að fara og dusta rykið af fatinu :)
-
verður ekki haldið kvartmílu æfingar reglulega?