Er að spá hvernig ég losa vökvaundirlyftur, þetta er MMC V6 3.0 vél. Veit einhver hvað ég á að setja sirka mikið af sjálfskiptivökva í olíuna?? Eða kann einhver eitthvað betra ráð??
Ég heyrði auglýsingu á Radio Reykjavík þar sem verið er að auglýsa eftir bílum á sýningu sem á að fara halda í Reykjaneshöllinni, (ég heyrði ekki betur). Var talað um nýja bíla og gamla og sérstaklega gullmola úr bílskúrnum, ef einhver á eða veit um. Vildi bara koma þessu á framfæri, kannski veit einhver meira um þetta. Mér finnst bara gott mál ef það er hægt að nýta þessa stóru rándýru innanhús-sparkvelli undir eitthvað af Viti, annað en að hlaupa á eftir bolta. (þetta er mín skoðun)
Hér er hægt að fá ýmislegt sniðugt fyrir okkur bíladellukallana eins og t.d. boli, peysur, jakka, klukkur, og meira að segja Chevy sófa til að hvíla bensínfótinn. http://www.pacifichotrods.com/
Ég ætlaði að kíkja á myndasafnið og sjá hvort þar væri eitthvað nýtt, en ég finn það bara ekki á forsíðunni.. Kann einhver skýringu á því? Eða er þetta bara ég?
Vil bara benda þeim sem hafa aðgang að kapalkerfi, allavega því sem er hér á suðurnesjum, að finna þessa stöð: http://www.motorstv.com/site/home.php?lg=2 Bílar og bílatengt efni 18-20 tíma á sólarhring. Ég fann hana fyrir tilviljun, var t.d. áðan að horfa á Kvartmílu, frá Ástralíu.
Getur einhver frætt mig um hvar ég fæ uppl um vin númer á japönskum bíl, mitsubishi. Ég fór inn á :carfax.com en fékk það svar að þetta númer væri ekki til. Ég tók reyndar númerið úr skráningarskírteininu.
Getur einhver frætt mig um hvar ég fæ uppl um vin númer á japönskum bíl, mitsubishi. Ég fór inn á :carfax.com en fékk það svar að þetta númer væri ekki til. Ég tók reyndar númerið úr skráningarskírteininu.
Er með eina Toyotu Corollu ´84, 4 dyra, 1600vél ekinn 340þús, fæst á sirka 20þús kall. Ferlega ljótur en alveg í þokkalegu standi, fer alltaf í gang, sennilega bara af gömlum vana. Hálfur tankur af bensíni fylgir meira að segja. Bíllinn er á suðurnesjum. Góður bíll í vinnuna eða skólann.
Var að fletta mogganum og sá þar grein um þennan 1700 hesta Willys´41, sem er verið að standsetja. Ég held að það sé vel þess virði að kaupa blaðið,bara til að sjá þessa rokna græju. Ég held að það verði BARA fjör á mílunni í sumar.
Ég er bara að spá hvort það sé eitthvað bilað spjallið eða hvort þetta er eitthvað rugl í tölvunni hjá mér. Ég á erfitt með að sjá ný innlegg og fæ oftast gamlan tíma líka, munar oft nokkrum klst eða jafnvel dögum. þó að ég geri refresh þá dugar það ekki alltaf og mörg innlegg er merkt sem ný innlegg þótt ég sé marg búinn að skoða þau og refresha. kannast einhver við þetta problem ???
Var að heyra um einhverja grind sem er með 6cyl bmw mótor, kannast einhver við það?? Á kannski einhver mynd af þessu tæki? Þetta er bara svona almenn forvitni