Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Sara on July 26, 2004, 20:41:52

Title: Fyrirspurn til stjórnar KK.
Post by: Sara on July 26, 2004, 20:41:52
Mig langar að spurjast fyrir um reglur sem eiga við OF-flokkinn, ég var búin að leita hérna en fann þær ekki en mig langar að skoða þær og fræðast meira um þetta allt saman og það væri meiriháttar að fá einhvern Gúrúinn til að skella þessu hérna inn sem fyrst.
Með vegsemd og virðingu
Title: Fyrirspurn til stjórnar KK.
Post by: 1965 Chevy II on July 26, 2004, 21:55:06
http://www.kvartmila.is/opinn.html

Opinn flokkur


1. Kennitími er valinn með því að slagrími vélar (cid) er deilt í heildarþyngd ökutækis (USA-pund, 454gr.=1pund) pund á rúmtommu. Miðað er við meðaltal út frá tölum sem birtast í National Dragster. Meðaltalslína er notuð til ákvörðunar á kennitíma. Sjá línurit.

Dæmi:
a)1760 pund(784kg.) grind með 360cid vél. 1760:360 = 4,8pund/cid.Kennitími:7,65 sek b)3200 pund(1454kg.)bíll með 427cid vél 3200:427 = 7,5pund/cid. Kennitími 8,45 sek

1. Allar vélar og tjúnningar leyfðar. Tjúnning breytir ekki kennitíma.
2. Allir gírkassar og skiptingar leyfðir.
3. Bensín og alkahól leyft.
4. Nitro leyft.
5. Allar breytingar leyfðar.
6. Ökutæki verða að vera með hlutfall 10 pund/cid og undir.
7. Um öryggisatriði sjá reglur um spyrnukeppnir.

1. Raunverulegt þyngdarhlutfall keppnistækja skal vera 3,4 til10,0 pund/cid.
2. OF-línuritið verði uppfært árlega miðað við tölur í Competition. (eins og var) þannig að meðaltalslínan miðast við nýjustu tölur ásamt því að miðað verði við flokkana Econo Dragster og Altered.
3. Flokkurinn verði óbreyttur að öðru leyti.
Title: Takk Æðislega!!!
Post by: Sara on July 26, 2004, 22:31:50
:P Takk æðislega kæri Gúrú, fyrir skjót og góð svör!!!