Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: Anton Ólafsson on September 28, 2007, 17:46:54
-
Jæja fórum og skoluðum sandinn af Mustangnum.
http://www.youtube.com/watch?v=m-ODGJCKQWw
-
það heirðist :D
-
Hva...búinn að taka fínu götudekkin undan??? :smt064 :mrgreen:
-
Eitthvað þarf að nota Drag radial-inn, ekki má keppa á honum í götunni og ekki heldur MC
-
Ég mátti til,annars myndi ég vilja að allir væru á eins dekkjum og þú í sandi,snilld að horfa á götubíla loksins hreyfast eitthvað í sandi. 8)
-
Dekkinn mikið dæma menn
Drífa áfram stanginn
Ekki getur lettinn enn
haft Mustanginn.
-
Ég mátti til,annars myndi ég vilja að allir væru á eins dekkjum og þú í sandi,snilld að horfa á götubíla loksins hreyfast eitthvað í sandi. 8)
Sæll, ég hélt að þú hefðir verið að setja út á gömlu "spyrnudekkin" mín, en eftir að hafa verið kærður í sandi á þeim þá notaði ég þau í götuspyrnuna og fékk margar athugasemdir fyrir 8) :lol:
Annars svona til að halda tegunda-togstreytunni í lagi þá hélt ég að þetta snérist frekar um að hafa vélbúnað af réttri sort frekar en skóbúnaðinn 8) 8)
kv
Björgvin
-
Undir töngina hann setti skóflur
og til saka fyrir var hann sóttur
kærður var og illa svaf
þar til í reglum fannst
þetta líka svaka gat
Virkaði þetta hjá mér
:lol: einhvertíma er allt fyrst
-
Góður, ég held að þetta dugi til að Anton og Gaggi taki þig í félagahópinn 8)
kv
Björgvin
-
Tja ég og Gaggi ,eru kannski til í að hleypa þér í kvartmílu vísna hópinn,.
En fimm línnur, engiri stuðlar og höfuðstaðir,,,, og enda rímiiiiiiið,,,,.
Frikki frekar illlar farinn,
Frekar fýldur er hann.
Sáttur ei við skóbúnaðinn
Sættast skalt þú við hann.
-
Undir töngina hann setti skóflur
og til saka fyrir var hann sóttur
kærður var og illa svaf
þar til í reglum fannst
þetta líka svaka gat
Virkaði þetta hjá mér
:lol: einhvertíma er allt fyrst
Þetta kemur með æfingu, eins og betri tímar á brautinni. :)
Einhvern tíma fyrst er allt
ekki sýna hræðslu.
Í stökuhópinn bara skalt
skella þér í fræðslu.
-
Shit þetta tók óratíma,ég les bara vísurnar ykkar :lol:
-
Hehe,,,,,
Drekktu kippu eða (hlest) tvær. og svo kemur þetta.
-
Ég meina, hvaðgetur feilað?
-
Hehe,,,,,
Drekktu kippu eða (hlest) tvær. og svo kemur þetta.
Frikki hann er óvirkur
spurning hvað kom fyrir
stundum fuku sex kippur
ávallt fór jú korter yfir
:shock: :D
-
Já Friðrik þetta er allt að koma til hjá þér.
Friðrik allur kemur til.
Fjandans góur er hann.
Ekki er kominn til,
Ekki er hann kaninn,
-
Frikki og Anton kveðast á
um dekk og bjór og vísur
það væri mjög gott fyrir þá
að skálda bara um skvísur
er þetta ekki flott vísa:D
-
Ég mátti til,annars myndi ég vilja að allir væru á eins dekkjum og þú í sandi,snilld að horfa á götubíla loksins hreyfast eitthvað í sandi.
Finnst alltaf jafn fyndið að heira þetta comment :D
-
Mustang hvítur aurugur
vísusmiður háðugur
úr þeim vellur stöðugur
óttalegur leirburður
-
Vertu ekki mjög hryggur
yfir leirnum Sigtryggur.
Vísan þín hún svínliggur
og Fordinn þvottinn velþiggur.
-
Hveragerðis hausarinn
góður vísnasmiðurinn
ef hvor er betri góurinn
þá upp úr stendur Chargerinn
-
Fairlane þinn er feykimikill bíll,
og fer um kvartmílu á þrettán sex.
En Sporttrackhróið þitt er vonlaus díll
þú hefðir betur keypt þér hundakex.
-
Voff =D>
-
Raggi hann semur og semur
og takkaborðið hann lemur
ég held þó að núna
þú Charger skalt tjúna
ef þú vilt vinna
er Fairlaninn kemur
-
hvað með að búa til ljóðabók :lol: ?
-
Horfi ég á Fordinn - skíthræddur
er Sigtryggur mér mætir - léttklæddur.
Snýr honum í 1000 - óhræddur
ætl' ann sé að verða - úrbræddur?
-
Ég mátti til,annars myndi ég vilja að allir væru á eins dekkjum og þú í sandi,snilld að horfa á götubíla loksins hreyfast eitthvað í sandi.
Finnst alltaf jafn fyndið að heira þetta comment :D
Gott að húmorinn er í lagi :wink:
-
Ljóðabók þegar samin er
um Anton, Gagga og fírinn
þeir brattir spyrna og klóra sér
er Moli þenur bílinn.
Því Molinn kveður þá í reyk
og stingur af með hraði
þeir allir fá sér feitann shake
og fitna heim´á hlaði.
-
Moli ekur um á 68 Fordara,
algjörum dekkjabrennara,
sötrar svo kassa af ölara,
fer svo heim til konunar og barnana.
-
:smt003 :smt003 edsel er allveg að rasskella ykkur gamlingjana !!! meira meira.
-
chewyllys seigir edsel er
alveg að rassskella ykkur
gamlingjana,
og heimtar meira og meira.
-
Moli alltaf mökkandi
Mikið er það gaman
Alltaf er hann akandi
á meðan fordinn helst saman
-
damage er alltaf að aka,
á allt sem á veigi hans verður,
enda er bíllinn hans alltaf beiglaður,
enda damage hann heitir
-
af öllum þessum rímum ég ruglaður var
og vissi ekkert í minn haus
ég held að ég sendi inn svar
því ein af mínum skrúfum er laus
-
MOLI er með mestu kvartmíluköllum
ég mæta mun honum þegar ég get.
Og þó að Chargerinn gangi ei á öllum
þá steiki ég Mola við 60 fet.
Ljóðabók þegar samin er
um Anton, Gagga og fírinn
þeir brattir spyrna og klóra sér
er Moli þenur bílinn.
Því Molinn kveður þá í reyk
og stingur af með hraði
þeir allir fá sér feitann shake
og fitna heim´á hlaði.
-
edsel alltaf skjótandi er
eitthvað út í bláinn
ekki nógu fullur er
til að hætta að stara á skjáinn
-
ekki byrjaður í áfengissullinu enþá,
þó ekki sé lant í það,
vil heldur spara fyrir bensíni í framtíðinni,
en ekki enda á götuni,
eins og damage
-
jæja er þetta ekki að verða gott :D
-
Er þetta ekki að verða gott
sagði mr coverdale
kannski að hann fái tott
eða bara ginger ale
:bjor: :mrgreen:
-
:smt043
-
Er þetta ekki að verða gott
sagði mr coverdale
kannski að hann fái tott
eða bara ginger ale
:bjor: :mrgreen:
:smt043 Fljótur að ná þessu Frikki :smt023
Kv Gunnar B.
-
:D hehe á hvaða töflum eruð þið :lol: :lol: :lol:
-
Þolir ekki leirburðinn
nýbakaði meistarinn.
Tottar bara gott Spurinn
kvartmílulandsliðsmaðurinn.
-
nonni bjarna spyr,
á hvaða töflum eruð þið,
ekki veit hvað hann á við,
skil ég ekkert hvað hann á við
-
jæjajæja strákar er ekki alveg komið nóg af þessum ljóðum.. mér líður eins og ég sé komin aftur í íslenskutíma hjá andreu í grunnskóla :x
-
alltí lagi, ég skal gera pásu á þessu í bili
-
Ljóð og stökur setja saman,
spyrnugraðir mílumenn.
Oftast hjá þeim OF-gaman,
þótt OF-sumar líði senn.
-
Ættum við að hætta senn
og Íbba væl að styrkja?
Nei, höldum bara áfram enn
fyrst Addi kann að yrkja.
-
Djö.... snilld :smt042.
-
Þið eruð nú meiri snillingarnir :smt043 :smt098
-
tveir hlæja dátt,
kanski það fleiri verða,
ef aðeins,
íbbi hættir að væla
-
Íbbi ekki yrkja kann
er hann bara í fýlu
einhver ætti að kæta hann
annars verður hann að grýlu
-
ég ætlaði að segja eitthvað, en áhvað að sleppa því :P
-
Situr á sínum skoðunum,
Íbbi á svörtum pramma.
Liggur víst lítið á ljóðunum,
liftir hann hjólum á Camma?
-
jæjajæja strákar er ekki alveg komið nóg af þessum ljóðum.. mér líður eins og ég sé komin aftur í íslenskutíma hjá andreu í grunnskóla :x
...ég held að slíkur leirburður og hefur verið hafður í frammi hér, af sumum, myndi aldrei viðgangast í íslenskutíma! :smt042
-
Á míluspjalli bulla menn
mig verkjar hreint í magann
Dáldið betra ort í denn
det siger islands-sagan
Skríllinn nú skáldunum refsar
skömm er af braghætti þeim
glaður sem rakki hann glefsar
gleymdur af skömm sendur heim
Um kagga og tól þeir karpa
kýla og gefa þá snarpa
traustir þeir trylla
með tremma oss hrylla
þeir gúmmíi í götuna varpa
Á drekunum runta svo drengir
drjugir svo gorta og keyra
en flakið frá Japan þá flengir
á flótta þeir vilja ei meira
........... ALLT í Góðu
-
Alpina klikkar aldrei þegar kemur að kveðskap 8) :smt041
-
BWahaha þið eruð snillingar strákar.. Ég táraðist úr hlatrí :lol:
-
Fyrr á árum rímnaflóð,
gladdi margan huga.
Nú ég held að kreppuljóð,
verði bara að duga.
Liggja inn'í bílaskúrum,
ölvagnar og græjur.
Skilja oft við sig í túrum
öl og dekkjatæjur.
-
að yrkja er það eina sport
alþýðunni leyfist
bæta skal nú auraskort
með skatt á allt sem hreyfist
-
að yrkja er það eina sport
alþýðunni leyfist
bæta skal nú auraskort
með skatt á allt sem hreyfist
Þetta er alveg hrikalega flott vísa. Ljóðstafir og allur pakkinn. =D>
-
Jú rétt er að vísan er flott ,þó að hún sé reyndar allsekki rétt kveðin