Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: Nonni on June 24, 2010, 15:02:57

Title: Reynsla manna með "lausa" túrbínu
Post by: Nonni on June 24, 2010, 15:02:57
Sælir,

Ég setti túrbínu sem stallar í 2500 í Transaminn, ég var búinn að heyra að ef hún væri "laus" þá myndi skiptingin líklegast skipta sér mjög hratt upp.  Það kom á daginn, ég var kominn í fjórða þrep með lockupi á 60 km hraða (og vélin að lulla á rúmum 1000 snúningum).

Þetta fór svolítið í taugarnar á mér þar sem að hann var alltaf að sleppa lockupinu og taka það aftur og ég ætlaði ekkert að fara keyra neitt mikið hraðar.  Er þetta svona almennt hjá mönnum og ef það er svo, er ég sá eini sem þetta fer í taugarnar á?  ](*,)