Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Valli Djöfull on August 25, 2006, 23:46:07

Title: Mustang
Post by: Valli Djöfull on August 25, 2006, 23:46:07
Veit lítið um þennan bíl.. ég fann myndir hérna heima :)  Svossum bara ykkur til skemmtunar ef þið vitið eitthvað um bílinn  :wink:
Title: Mustang
Post by: Valli Djöfull on August 26, 2006, 00:10:05
svolítið forvitinn um hvernig Mustang þetta er.. númeraplatan segir 1970 svo ég spái því að það sé árgerðin...:)
Title: ja
Post by: dart75 on August 26, 2006, 09:59:13
ja nei þetta er ekki 1970 modelið er ekki alveg vissa hvort etta se 72eða 3 grande mustang
Title: Mustang
Post by: Jói ÖK on August 26, 2006, 15:30:51
á us.is stendur undir Þ1970
Skráningarnúmer:   Þ1970
Fastanúmer:   LF416
Tegund:   SUBARU
Undirtegund:   1800
Litur:   Ljósblár
Fyrst skráður:   25.06.1987
Title: Mustang
Post by: Halldór Ragnarsson on August 26, 2006, 17:42:22
Sýnist þetta vera 1971 Grande
Title: Mustang
Post by: Moli on August 26, 2006, 22:06:52
Quote from: "Jói ÖK"
á us.is stendur undir Þ1970
Skráningarnúmer:   Þ1970
Fastanúmer:   LF416
Tegund:   SUBARU
Undirtegund:   1800
Litur:   Ljósblár
Fyrst skráður:   25.06.1987


Það er heldur ekkert að marka gömlu númerinn ef þú flettir þeim upp í ekjunni. Þessar plötur hér á árum áður fylgdu gjarnan eigendum bílanna og þeir fluttu númerin oft með sér milli bíla. Númerið Þ-1970 var því síðast notað á Subaru 1800, en í millitíðinni á umræddum Mustang.
Title: Grande
Post by: Halli B on August 27, 2006, 13:47:48
er þetta ekki bíllinn sem var rétt fyrir utan akranes fyrir stuttu
í eigu sama náungans og á Gula challann núna
Title: Varðandi Mustang á Akranesi.
Post by: Bingi on August 30, 2006, 22:35:42
Getur einhver sagt mér hvar þessi mustang er sem var verið að tala um að væri við Akranes eða rétt fyrir utan Akranes.
Kveðja Bingi.
Title: Varðandi Mustang á Akranesi.
Post by: Bingi on August 30, 2006, 22:36:09
Getur einhver sagt mér hvar þessi mustang er sem var verið að tala um að væri við Akranes eða rétt fyrir utan Akranes.
Kveðja Bingi.
Title: Re: Varðandi Mustang á Akranesi.
Post by: Moli on August 30, 2006, 22:53:08
Quote from: "Bingi"
Getur einhver sagt mér hvar þessi mustang er sem var verið að tala um að væri við Akranes eða rétt fyrir utan Akranes.
Kveðja Bingi.


Ef að það er verið að tala um ´71 græna Grande bíllinn sem var á einhverjum sveitabæ rétt fyrir utan Akranes, þá skilst mér að það sé verið að rífa hann í annan Grande bíl sem er í uppgerð á Akranesi. Ég fór og skoðaði þennan bíl á sínum tíma, (2001 minnir mig) þá var nýbúið að mála hann en undirvinnan var það léleg að það var allt farið að springa út aftur. Kauði vildi fá um 400.000 fyrir bílinn þá og það var HELLINGUR eftir.

(http://www.mustang.is/album_1/71-73/images/album1_79.jpg)