Kvartmílan => Mótorhjól => Topic started by: Magnus93 on August 21, 2007, 14:58:11
-
Ef ég væri 15 ára með skellinöðrupróf á hverju mætti ég keppa, svona til að hafa þetta á hreinu. Og svo þetta með allt að 120 cc á það ekki bara við fjórgengis og svo er það 90 cc tvígengis. Mætti ég keppa á eitthverju öðru en hjóli ?
-
þú mátt bara keppa á 50cc :? enda það eina sem þú ert með próf á :roll:
-
en hvað mætti ég tjúna 50 cc þá mikið er það 90 cc eða 120 cc
-
það er svo sem eingin sem skoðar það :? en það er bannað að bora út :roll: :lol:
-
bíddu nú við, má ekki bora út? má bara auka rúmtak með því að stróka?
hvaða endemis þvæla er það? það þarf þá heldur betur að vinna til tústrók sílenderinn til að dæmið gangi upp.
er þá ts50 með 70 kitti þá ólöglegt í flokk?
-
en er ekki í lagi að taka orginal 50 hjól og skipta mótornum út fyrir stærri ?
-
Skellinöðrur.
8.2 Vél:
8.2.1 Vél skal upprunalega ekki vera stærri en 49 cc.
8.2.2 Sveifarás og sveifaráshús skal vera upprunalegt.
9.2. Bannað:
9.2.1 Hláturgas og forþjöppur eru bannaðar.
og
Skellinöðrur: SK 50 1 strokka að 120 cc
Einu reglurnar um vél...
-
já ókei þá er þetta allt öfugt sem betur fer.
bara mótorar sem eru upphaflega 50cc leyfðir, ekkert strók leyft max 120cc.
það er svaka stympilstærð á litlum sveifarás
-
já ókei þá er þetta allt öfugt sem betur fer.
bara mótorar sem eru upphaflega 50cc leyfðir, ekkert strók leyft max 120cc.
það er svaka stympilstærð á litlum sveifarás
Td. það er standard formúla á flest öllum 4-gengis "hondu" vélum (þessi sem er á SS50 t.d) Sveifarásinn er gerður til að þola upp í 125ccm en þeir láta bara minni Strokk og hedd.
Annars er 2-gengis 50ccm sveifarásar að þola töluvert líka (been there,done that).
En á einhverju tímabili þá þarf að skifta þessu út... þannig að ég sé ekki neitt af því að skifta út sv.ási á 2-gengis því þeir eru ekkert sterkari .. bara betri legur og ending því hámrkið fyrir 2-gengis er 86ccm í tjúningu. Það þyrfti að endurskoða þessu reglu og hafa það eingöngu að Sveifarhús (vélarblokkin sjálf eigi að vera orginal) annars frjálsar hendur.