Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Topics - SheDevil

Pages: [1]
1
Varahlutir Óskast Keyptir / Hertar undirlyftustangir í 460 !
« on: June 12, 2008, 16:38:46 »
Sárvantar hertar undirlyftustangir, sem allra allra allra fyrst, ef einhver á vinsamlegast hendið á mig einkaskilaboðum =)

2
Hæ þið, það hefur enginn svarað í þræðinum um bílinn minn í bílarnir og græjurnar, en mig sárvantar myndir af spoilernum af mustangnum, þeas listaverkinu sem var áhonum.
Það er svo erfitt að sjá hvernig það var, og er að fara í að re-doa spoilerinn, búin að taka haug af myndum af þessu eins ogþað er í dag en það vantar stóra búta og bletti og langar að sjá hvernig það var áður en ég pússa þetta niður ogundirbý þetta fyrir að vera málað aftur..

Anyone ... ???

3
Bílarnir og Græjurnar / Mustang Mach 1 ´73
« on: June 06, 2008, 02:16:46 »
Datt í hug að kynna mig hér til leiks sem og bílinn minn.

En ég heiti Árdís, og er nú með í skúrnum hjá mér graveyard mustanginn eins og sumir hverjir þekkja hann, fyrrum bíl Valla.



Hann er jú með 460cid (sem ég veit nánast allt um svo ég þarf ekki fleiri pm um sögu vélarinnar), og stendur hún nú á vélarstand inní skúr fyrir framan nefið á þessum stórkostlega bíl. Ég festi mér hann á föstudaginn síðasta, og ók honum heim. Nú er verið að yfirfara allt og gera og græja svo að hann komist út úr skúrnum sem fyrst, ég er nefnilega ekki mikil áhugamanneskja um stopp bíla.

Það var ekki snyrtilegt að horfa ofaní húddið á honum, sem er nú skiljanlegt eftir þessa setu, en það stendur til bóta þarsem það er búið að vinna niður allt ryð í vélarsalnum og verið að gera klárt fyrir að mála þar ofaní.

Búið er að vinna smávegis detail vinnu útlitslega séð, og einnig verða smávegis viðbætur. En á vélina er að fara ál millihedd og afkastameiri olíudæla, og á hana fara hooker super competition flækjur. Svo verður bara spennandi að sjá hvernig þetta verður þegar vélin er komin ofaní aftur, hvort að ég geti ekki opnað húddið með aðeins meira stolti en hefði annars verið án þessara viðbæta.



En það er eitt sem seint verður hægt að setja útá, og það er innréttingin.



En hann á nú eitthvað af ryði þessi elska, og er afturgaflinn nú nánast með öllu horfinn eins og sumir hafa séð. En ég er einnig að vinna í að "lagfæra" gaflinn til tímabundinna saka, svo að það fari ekki meira vatn í skottið á honum, þarsem að þessum bíl verður seint lagt. Þó á hann nú fast bílastæði hér inní skúr  8-)
Það sést nú ekki mikið á þessari mynd hversu ílla gaflinn er farinn, en hér er þó "bossamynd"



Graveyard spoilerinn fann ég í skottinu á honum, og er hann ansi ílla farinn vægast sagt, þeas listaverkið á honum. Sem mér þykir frekar leiðinlegt.



4
Varahlutir Óskast Keyptir / Nasahúdd á 73 mustang mach 1
« on: May 31, 2008, 16:49:24 »
Langar að ath hvort einhver hérna eigi nasahúdd á mach 1, árg 73,
er til í að láta orginal húddið uppí ef einhver áhugi er á því.
Einu kröfurnar sem ég geri til þess er að það sé ekki svo ílla farið að ekki sé hægt að laga það. En alveg sama um yfirborðsryð eða dældir, og verður hvorteðer málað í sama lit og bíllinn verður í.

er að tala um nákvæmlega svona húdd:



Hægt að henda á mig e-mail á rottweiler@rottweiler.is eða pm

Takk kærlega,
Árdís P.

Pages: [1]