Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: Ingó S on August 10, 2007, 22:05:46
-
Jæja, nú er bíllinn minn loks kominn í hlað frá Indianapolis.
Ég var búinn að leita lengi að þessum bíl (1976 TA), átti reyndar svona bíl er ég fékk bílprófið 1991 (Fastanúmerið FN-611).
Þessi er með 70 módel af 455 úr GTO, með Ram Air heddum (þessar vélar áttu að vera um 360 HÖ ef ég man rétt. Hann torkar allhressilega (konan mín fékk að taka í hann áðan og er búin að merkja allflestar göturnar í bænum (hér austur á Selfossi, hvar annarsstaðar).
Ég er búinn að gera mér áhveðnar hugmyndir um hvað ég ætla að gera úr þessum bíl (sennilega munu margir Pontiac menn furða sig á því sem ég mun skrifa núna) en þessi 70 GTO Ram air IV vél er ekki inni í þeirri mynd. Hún er því til sölu með skiptingu, sem er 400. Þetta er ekkert sem liggur á þ.s. ég mun taka mér góðan tíma í að gera þennan bíl upp (flott eintak af´76 Trans am er að verða álíka sjaldgæfur og nánast útdauðar dýrategundir). Ég mun að sjálfsögðu pósta upplýsingum um framvinduna og birta myndir með (vonandi hafið þið bara gaman af).
Síminn hjá mér er 894-9002 ef einhver hefur áhuga á Ram Air fjarkanum.
-
sætur!!!!!!!!!!!! til lukku með gripinn
-
flottur maður, gangi þér vel! 8)
-
flottur 8) til hamingju
-
Flottur Ingo til hamingju og gangi þér vel 8)
P.S. Hvað á að setja í staðin fyrir 455 :?:
-
geðveikur!
-
Gaman að sjá menn koma með eithvað annað en Mustanga og Corvettur. :wink:
-
Er þetta nokkuð SD? :lol:
-
Sorry en ég sé ekkert geðveikt eða fallegt við bílinn en hann virðist þokkalega heill og verður vonandi geðveikislega fallegur þegar þú ert búinn
að gera hann upp :wink:
Til lukku með að hafa valið flottasta boddíið í 2nd gen. 8)
-
til hamingju með bílinn vonandi verður hann fallegur þegar þú ert búinn að taka hann í gegn og henda 455 sleggjuni sem er að mínu mati drasl!!!,þó án efa séu ekki allir sammála því.kv-TRW
-
Gaman að sjá menn koma með eithvað annað en Mustanga. :wink:
:smt041
-
Ingvar Gissurarson Innlegg: 08-11-2007 12:56 Efni innleggs:
Gaman að sjá menn koma með eithvað annað en Mustanga og Corvettur.
:smt078
-
Það skemmtilega við bíladelluna nú til dags er að fyrir mér hefur hún engin landamæri. Það verður að segjast eins og er að margir bílar frá öllum heimshornum eru mjög áhugaverðir.
Persónulega finnst mér samt amerikaninn vera einna fremstur þegar ég hugsa tilbaka (fyrir 1980) hvað varðar áhugaverða bíla. Ég er sammála Frikka "Trans am" um að vera kominn með flottasta 2nd gen bílinn. Það er nákvæmlega það sem ég lagði upp með. Flestum þykir samt Burt Reynolds útgáfan (77 til 78) vera flottust en það er ekkert að plaga mig.
Það sem margir eiga eftir að læra er að það er aragrúi af flottum bílum sem voru og eru framleiddir og allt þetta tal um að Ford sé ónýtt og Chevy 350 sé besta vél í heimi er að mínum dómi úrelt. Sjálfum finnst mér Ford hafa framleitt marga frábæra Mustang bíla, og eins og staðan er í dag þá eru þeir með þvílíkt forskot á markaði því GM gafst upp með F-body framleiðsluna á versta tíma þegar hagvöxtur var þvílíkur að allir fóru að kaupa sér flotta bíla (ætli Mustang hafi ekki selst betur en nokkru sinni undangarin 3 ár?). Hitt er að þessir bílar eru (þetta er staðreynd) skemmtilegir og flottir á að horfa en það fylgir þeim aðeins Harley davidson sindrome; þeir eru hráir og ferlega illa smíðaðir. Enda kosta þessir bílar ekki mikið og hafa aldrei gert. Þetta eru í raun allt svolitlir "poor man´s car" Núna hins vegar er verðið að rjúka upp því margir nýríkir "bíladellukallar" eru að kaupa og bílum á markaði að fækka. Það er e.t.v. skemmtilegt að því leiti að það verður enn skemmtilegra að eiga þessa bíla í góðu standi.
Þessi 76 bíll hjá mér mun væntanlega verða um 500 hö í small blok ls1 með 6 gíra beinskiptingu og þannig frábært leikfang en ég mun samt alltaf gera mér grein fyrir því að ég elti ekkert nýlegan 911 turbo í beygjum.
-
hell yeahh!! þá verðuru með uppáhaldsboddýið mitt og uppáhaldsmótorinn.. þvílík blanda
-
hæ.
Auðvitað eltirðu ekki 911 í beygjum ......... Þú verður langt á undan..
Með smá moddi.
kv. Valur
-
hæ.
Auðvitað eltirðu ekki 911 í beygjum ......... Þú verður langt á undan..
Með smá moddi.
kv. Valur
heyrheyr \:D/
-
Til hamingju með bílinn :D
Það verður gaman að fylgjast með þessu.
Svona til upplýsingar um GTO vélar þá var Ram Air IV framleidd 1969-1970 og var eingöngu fáanleg sem 400cid.
Head casting number 722 fyrir 1969 og 614 fyrir 1970.
Block code fyrir bæði árinn WW og XP .
1970 kom 455 cid til sögunnar, head casting number 15 og block code WA,YC, YH