Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Messages - eva racing

Pages: 1 ... 19 20 [21]
401
Bílarnir og Græjurnar / Ó þið ljósberar. Takk fyrir......
« on: February 02, 2004, 05:19:58 »
Kæru félagar.  

   Takk fyrir að opna augu mín og annarra fyrir þessu þarfaþingi. Og sé ég nú hvurslags villu maður er búinn að vaða að vera að porta og pólera sog greinar og sogport einsog vitlaus maður(sem ég augsýnilega er) þegar ég hefði átt að matta þau og setja fasta viftuspaða til að loftið skrúfist framhjá ventlonum og þjappi sér svo saman í strokkum mótorsins sem ég fékk hjá Ottó gamla.    Ég ætla samt að biðja ykkur um að vera ekki að flagga þessu svo ódælir menn einsog Einar Birgis. komist ekki að þessu og setji svona dúsin af viftuspöðum (eða lofthvirflum eða hvað sem íslenskt orð er) í vélina hjá sér, hendi nitrókútnum og dóli svo í 8,40 og spari 20% bensín á öllu saman.  Það væri ljóti ófögnuðurinn.

   Að maður tali ekki um ef GM kallinn sjálfur kæmist að þessu,  Og gæti hækkað hp um nokkra tugi og haft varanleg áhrif á olíuframleiðsluna í heiminum.

  Og ekki skánaði það ef keppnismenn hefðu upp á þessu. Þar eru menn sem myndu skera af sér vinstri hendi fyrir 2-3% meira afl að maður tali ekki um 15% aflaukningu.  
    Það er vissulega tími til kominn að einhver með þekkingu og opinn huga (sem ég hef víst ekki)  geti tendrað ljósið fyrir okkur hina.    
 
   Ef ég hefði ekki fengið þetta ágæta svar hefði ég kannski haldið þetta áfram, og svarað þessu einhvernvegin svona.:

  Þessar loftskrúfur eru ekki að koma fram á sjónarsviðið nú eða fyrir 14 árum,  heldur hefur þetta sést af og tilí mörg ár.   Ég held að ég muni það rétt að ég hafi fyrst séð svona búnað í 1958-9 Hot rod hjá kunningja mínum sem er fornbílastrumpur,  og hann taldi að þetta væri mun eldra. síðan einhvernsstaðar á milli heimstyrjalda.
   Það eru allskonar patent sem eru að koma aftur og aftur (einsog keðjubréf þar sem allir verða ríkir) T.d. koma alltaf upp "fjölpóla kerti" sem "news flash" þó T mótelið af ford (viljandi með litlum stöfum) hafi verið með svoleiðis búnað.  Þær ágætu bifreiðar (líka með hreyfiafl frá Ottó) voru líka með eitt háspennukefli á strokk (þó margir haldi að SAAB hafi fundið það upp 198?)

   Með þökk fyrir ágætt svar og von um meira gott.

    Valur Vífilss. í góðum gír (hlutlausum)

402
Bílarnir og Græjurnar / "Hype" mánaðarins.
« on: January 30, 2004, 17:43:46 »
Sko.

  Svona trikk hafa komið fram frá fyrstu dögum "bullumótora" og þá oftast frá einhverjum bullukollum.   Í fyrsta lagi, hvernig haldið þið að það sé enn snúningur á loftinu þegar það er komið 2-3 fet frá þessum "tæknibúnaði".  Gegnum þrengra rör eftir krókóttum leiðum að sog ventli.  Að ég tali ekki um ef loftið er búið að fara í gegnum túrbínu sem er náttúrlega ein stór lofthrærivél,.   Hvort loftið snéri til vinstri eða hægri verður ekki merkjanlegt eftir það ferðalag.  

   Það gæti verið til bóta að vera með svona búnað ca 20 millimetra frá sogventli og þá þyrfti loftið að snúast rétt til að auka "skolun og fyllingu vélarinnar.    

   Ekki einusinni horfa á svona,  Það er nokkuð öruggt að þetta væri staðalbúnaður í öllum farartækjum ef þetta virkaði.  Ef þið ætlið að setja K&N loftsíu til að auka flæðið að vélinni. Hvers vegna viljið þið þá setja svona til að tefja það aftur.???

   Ef þið viljið meira power og minni eyðslu skiftið þá úr coke í pepsi max.

  Eða í alvöru takið allar barka hosur sem er við sogkerfi vélarinnar og setjið sléttar hosur og eða rör í staðinn setjið púst sem er "mandrel" beygt þ.e. rörið ekki þrengt í beygjum oftast er sverleikinn nóg en beygjur eru vondar og samsetningar ef um V eða boxer vélar er að ræða.    

     Annars ætlaði ég ekki að missa mig á flug í einhverjum heilræðum það er nóg af fólki til þess.....  Lifið heil,  (eða þannig)

    Valur Vífilss. agndofa

403
Bílarnir og Græjurnar / Hallo.....
« on: January 12, 2004, 17:55:44 »
Sælir ormar.

  Var ekki verid ad tala um buggy....    Og svo erud thid ad tala um ror f. GG trukk.  

    38 mm med 2,5 vegg, i adalboga og svo eitthvad tinnra i allt annad.    Nema thu ætlir ad setja drattarstol og malarflutningavagn...

   afsakid staffffffsetn ...... gallad lyklabord..


   Valur Vifilss,  trukkadriver

404
Keppnishald / Úrslit og Reglur / Almennir mannasiðir.
« on: January 05, 2004, 21:48:29 »
Rétt og gott.

   Almenna reglan er sú að þegar ræsir segir þér að fara inn í geyslann, þá fer maður í hann.  Hinnsvegar ef maður heldur að mótkeppandinn sé í einhverjum vandræðum, þá er maður "kurteis" og hreynsar vélina 2-3 sinnum og les á alla mæla tékkar á beltum og sv. frv.  til að gefa keppinautnum tíma.  Ef maður er viss um að hann er með stæla og trikk og ræsir segir manni að koma sér í ljósin þá fer maður í ljósin.

   Ég hef haft það fyrir reglu í þessum nokkrum keppnum sem ég hef tekið þátt í að láta mótkeppanda vita ef til stendur að taka tvö burn eða nota Moose djús (trak bit) eða eitthavað annað sem getur tekið lengri tíma en venjulegt burn.

  Maður hefur lent í allskonar uppákomum,  Menn gátu ekki tekið burn í beltinu af því line lock takkinn var í mælaborðinu, eða menn ákv´ðu eftir burn að vélin væri ekki nógu heit og voru því að hita vélina eftir að maður sjálfur var kominn í ljósin hvort sem var fyrri eða báða geisla.   Getur verið pirrandi og ókurteisi af viðkomandi.  En sem betur fer eru flestir þarna til að keppa en ekki bara að vinna með einhverjum ráðum.

Pages: 1 ... 19 20 [21]