81
Keppnishald / Úrslit og Reglur / Bikarmót í kappakstri
« on: August 05, 2017, 12:55:53 »
Sunnudaginn 20. ágúst fer fram bikarmót í kappakstri á Kvartmílubrautinni
Skráningu lýkur sunnudaginn 13. ágúst kl 23:00
Seinni skráning verður leyfð til miðvikudagsins 16. ágúst kl. 16:00
Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteini
Skoðað ökutæki
Hjálm
Vera meðlimur í akstursíþróttarklúbb innan AKÍS/MSÍ
Skráð ökutæki þurfa vátryggingarviðauka
Reglur fyrir bíla:
http://www.akis.is/wp-content/uploads/2017/03/Tímaat-kappakstur.pdf
Reglur fyrir mótorhjól:
http://msisport.is/content/files/public/reglur_2016/Reglur_fyrir_timaat_og_kappakstur.pdf
Keppnishald í kappakstri
Keppnin skiptist í 20 mínútna æfingu, 20 mínútna tímatöku og þrjár 10 mínútna kappaksturslotur. Að minsta kosti 15 mínútna bið skal vera milli lota. Merkja má svæði á brautinni þar sem framúrakstur er ekki leyfður ef aðstæður krefjast þess að mati keppnisstjóra. Sú regla skal gilda að ökumenn bíla sem hafa verið hringaðir skulu leitast við að hleypa hraðari bílum framúr á öruggan hátt. Keppnishaldari notar blá flögg til að minna hringaða bíla á að víkja til hliðar við fyrsta tækifæri þar sem framúrakstur er öruggur. Keppnisstjóri getur beitt refsingu séu reglur um framúrakstur ekki virtar. Refsing er 10 sekúndna viðbót við tíma keppandans í viðkomandi lotu. Ákveði keppnisstjóri að brautin sé það blaut að hætta geti hlotist af notkun semislikka eða slikka getur hann krafist þess að öll ökutæki noti regndekk. Regndekk eru dekk með amk. 3 mm djúpum raufum sem veita vatni að ytri brúnum dekksins, líkt og venjuleg götudekk gera. Keppendur fá stig skv eftirfarandi töflu: 1. sæti 25 stig 2. sæti 18 stig 3. sæti 15 stig 4. sæti 10 stig 5. sæti 8 stig 6. sæti 6 stig 7. sæti 4 stig 8. sæti 2 stig 9. sæti og neðar 1 stig. Til úrslita gilda samanlögð stig úr öllum 3 lotum. Ef tveir keppendur eru með jafnmörg stig er sá sigurvegari sem kom á undan í mark í síðustu innbyrðis viðureign þeirramínútur. Allir keppendur keppa í undanrásum, sá helmingur (námunda skal upp í næstu sléttu tölu) keppenda sem nær bestum tíma keppir í niðurskurði og þrír hröðustu keppendur í úrslitum. Ef keppendur eru færri en 8 í flokki skal sleppa niðurskurði í undanrásum. Í undanrásum ræður keppnisstjóri rásröð. Í niðurskurði og úrslitum er sá keppandi sem er með besta tímann í lotunni á undan ræstur fyrst, svo sá sem er með næst besta og svo framvegis.
Flokkar fyrir bíla:
Hot wheels
Götubílar
Breyttir götubílar
Opinn götubílaflokkur
Opinn flokkur kappakstursbíla
Keppnishald í kappakstri Keppnin í SS og SB skiptist í 50 mínútna upphitun, 15 mínútna tímatöku og að lágmarki tvær 17 km kappaksturslotur. Að minnsta kosti 15 mínútna bið skal vera milli lota. Keppnin í M3, M4,R og SM skiptist í 25 mínútna upphitun, 10 mínútna tímatöku og að lágmarki þrjár 10 km kappaksturslotur. Að minnsta kosti 15 mínútna bið skal vera milli lota. Fyrir hverja lotu skal hafa tvo upphitunarhringi sem allir keppendur eru skyldugir til að taka þátt í. Merkja má svæði á brautinni þar sem framúrakstur er ekki leyfður ef aðstæður krefjast þess að mati keppnisstjóra. Sú regla skal gilda að ökumenn hjóla sem hafa verið hringuð skulu leitast við að hleypa hraðari hjólum framúr á öruggan hátt. Keppnishaldari notar blá flögg til að minna hringað hjól á að víkja til hliðar við fyrsta tækifæri þar sem framúrakstur er öruggur. Keppnisstjóri getur beitt refsingu séu reglur um framúrakstur ekki virtar. Ákveði keppnisstjóri að brautin sé það blaut að hætta geti hlotist af notkun keppnisdekkja getur hann krafist þess að öll ökutæki noti regndekk. Regndekk eru dekk með amk. 3 mm djúpum raufum sem veita vatni að ytri brúnum dekksins. Keppendur fá stig skv eftirfarandi töflu: 1. sæti 25 stig 2. sæti 20 stig 3. sæti 16 stig 4. sæti 13 stig 5. sæti 11 stig 6. sæti 10 stig 7. sæti 9 stig 8. sæti 8 stig 9. sæti 7 stig 10. sæti 6 stig 11. sæti 5 stig 12. sæti 4 stig 13. sæti 3 stig 14. sæti 2 stig 15. sæti og neðar 1 stig
Til úrslita gilda samanlögð stig úr öllum lotum. Ef tveir keppendur eru með jafnmörg stig er sá sigurvegari sem kom á undan í mark í síðustu innbyrðis viðureign þeirra.
Flokkar fyrir mótorhjól
Moto 3+ (M3)
Moto 4½ (M4)
Rookie 600 (R)
Supersport (SS)
Superbike (SB)
Supermoto (SM)
Skráningarfrestur.
Skráningu lýkur sunnudaginn 13. ágúst kl. 23:00
Seinni skráning verður leyfð til miðvikudagsins 16. ágúst kl. 16:00 en þá bætast 2.000 kr. við skráningargjaldið
Keppnisgjöld og skráning:
ATH!! skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
Keppnisgjald 6.000 kr. innifalið er keppnisskírteini
Við fyrstu skráningu keppenda á bílum á keppnistímabili bætast við 4.000 kr. gjald vegna slysatrygginga ökumanns.
Skráning bíla á AKÍS síðunni:
http://skraning.akis.is/keppni/76
Skráning mótorhjóla fer fram í þessum tengli:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSeqH5BT0SitAtaHddumBdYO-BGC-TAxE-J0A_QhCMqpeSIQDA/viewform?usp=sf_link
Dagskrá
Mæting 10:00
Nánar kynnt síðar.
Nánari upplýsingar
í síma 8473217 eða jonbjarni@kvartmila.is