Kvartmílan => Mótorhjól => Topic started by: eva racing on February 16, 2012, 13:41:53
-
Hæ.
Svo ég mengi nú ekki kawasaki 2T þráðinn..
Einu sinni átti ég svona Suzuki GT250 ca 82 give or take. Eru til svona tæki ennþá hér hvort sem er í lagi eða kuml.??
það komu nokkur svona hjól. Þóttu ekki mjög karlmannleg (það eru til bolir það sem stendur "karlmenn keyra 500") en ég skemmti mér mjög vel á þessu litla lipra tæki...
Bara svona hugmynd...
Kveðja
Valur Vífilss. bifhjólaáhugamaður....
-
Það er amk til eitt stykki... er búið að vera í góðum höndum í talsverðann tíma og er að mér skilst verið að gera það upp í dag.
-
Hæ.
gott að það er allvega eitt sem er á "góðu heimili"
en er enginn sem veit um svona kuml til uppgerðar sem er fánlegt fyrir "kók og prins" ??
en baráttukveðjur.
Valur Vífilss. kumlfræðingur..