Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Kristján Skjóldal on December 07, 2014, 12:04:19

Title: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Kristján Skjóldal on December 07, 2014, 12:04:19
sælir hvernig er það eru þessi met sem eru á forsíðu hja ykkur. þau sem standa 2014 ? eða á eftir að færa inn ný met ??
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Kristján Skjóldal on December 07, 2014, 21:19:05
 :roll: :?:
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Gretar Franksson. on December 10, 2014, 13:23:29
Það er svo mikið að gera hjá þeim að það virðist ekki vera tími til að sinna þessu. Ég bauðst til þess að hjálpa, meðal annars við þetta en það kom ekkert svar. (Ennþá.)
með bestu kveðjum,
GF.
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: SPRSNK on December 10, 2014, 19:16:51
Strákar!

Það hefur orðið breyting sem þið verðið að fara að átta ykkur á ..... þetta hefur hvorki með KK né BA að gera.
Met eru skráð hjá AKÍS - ekki alltaf vera að berja hausnum við sama steininn!

Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Kristján Skjóldal on December 10, 2014, 20:50:34
ok :D og hvað uppfæra þeir met á ykkar síðu þá ? eða hvar sér maður þetta þá ?
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: SPRSNK on December 10, 2014, 23:13:33
Sérsamböndin eiga að uppfæra metin á AKÍS síðunni fyrir bílana og MSÍ siðunni fyrir hjólin.

Hins vegar er ekkert sem segir að við getum ekki haft þetta aðgengilegt frá klúbbasiðunum líka.
Þá má segja að brautarmet eigi klúbbarnir sjálfir að sjá um að halda utan um og birta.

Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Kristján Skjóldal on December 10, 2014, 23:50:37
þið megið ekki misskilja mig ! ég er ekki að skamma ykkur eða setja út á ykkur :idea: ég var bara að ath hvort met sem standa á ykkar síðu séu rétt svona svo maður viti hvað maður þarf að reina við næsta sumar sko :mrgreen:
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Kristján Skjóldal on December 17, 2014, 09:58:42
nú eru hátt í 250 mans búnir að skoða þennan þráð :mrgreen: veit þetta einhver td met í OF er það ekki nú 4.64  Ingó ????
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Kristján Skjóldal on December 20, 2014, 22:45:21
311 sinnum skoða og eiginn veit neitt :D takk takk allir fyrir uppl =D>
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Kristján F on December 21, 2014, 12:28:24
Sæll Stjáni

það fer nú aðeins eftir hver spurningin er tíminn 4.64 á sem er skráð á Örn Ingólfsson er skráður tími á hraðameti í 1/8 í OF flokki og það er 149,01mph

Islandsmetin í OF snúast um indexið en ekki tímann eins og þú sjálfsagt veist.

Hins vegar sá ég Ingó fara 4.50 sec og á 150mph allt í sömu ferðinni síðasta sumar


 kv
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Kristján Skjóldal on December 21, 2014, 13:57:01
ok þetta er þó svar takk takk. en Ingó fór já 4.58 @ 150 sem ég hefði haldið að væri met í dag :idea: ef það var bakkað upp :wink:
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Kristján Skjóldal on December 21, 2014, 13:59:43
já ok sorrý sé þetta nú Gretar F á of metið í 1/8   :mrgreen: en væri til í að hafa líka tíman sem hann fór en ekki bara tími frá indexi þar sem index stendur ekki við met er það ekki betra strákar :?:
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: SPRSNK on December 21, 2014, 14:44:02
Nú tel ég að það sé komið að sérsamböndunum að setja betri reglur um það hvernig met eru sett sem og hvernig tilkynna skuli og birta íslandsmet.
Þá er ég að tala um hvernig upplýsingarnar eru settar fram og hvernig keppnishaldarar tilkynni um metin.
Einnig þarf að tryggja að sérsamböndin sinni þessu hlutverki sem og öðrum sem þeim eru falin.

Klúbbarnir eiga síðan að halda utan um brautarmetin á sinni braut að mínu mati.

Eitt af þvi sem að kveður á í núverandi reglum er að flokkaskoða eigi tæki þegar met eru sett  
Ég man ekki eftir að það hafi verið framkvæmt sl. ár  :-"

Þetta eru reglurnar sem eru á heimsíðu KK en mig minnir að þær hafi verið teknar upp óbreyttar í reglugerð AKÍS um íslandsmet.
þó er stefnt að því að fella niður lið nr. 13 á næsta þingi.

Reglur um met.
1. Met eru sett undir eftirliti keppnistjórnar og aðeins í gildi séu þau sett í keppni
2. Öll tæki skulu vandlega skoðuð skv. Flokkareglum.
3. Styðji keppandi ekki nýtt met í keppni eru 2 stuðningsferðir heimilar í lok keppni.
4. Stuðningstími sé 1% frá nýjum tíma. Fari keppandi 2 ferðir undir gildandi meti og þær séu ekki innan við 1% frá hvor öðru þá gildir betri tíminn eða meiri hraðinn sem stuðrningur við lélegri tímann og/eða minni hraðann.
5. Í sandspyrnu er stuðningstími 2% frá nýjum tíma.
6. Öll met eru reiknuð uppá 1/1000 úr sekúndu en hraðamet uppá 1/100 kmst.
7. Séu tveir keppendur uppá 1/1000 í sömu keppni, skráist metið á þann er mældist á meiri hraða í þeirri ferð er metið var sett. Sé enn jafnt, gildir metið er fyrr var sett.
8. Sé met jafnað skal sá eiga það er fyrr setti það.
9. Ef tveir eru jafnir með hraðamet, þá á sá metið er fór á bestum tíma í viðkomandi ferð.
10. Hraðamet eru óháð tímametum.
11. Keppandi getur ekki sett með á einu ökutæki og keppt svo á öðru í útslætti.
12. Aðeins er eitt met skráð fyrir hvern flott í lok hverrar keppni.
13. Met eru gild í 2 ár, eftir það eru þau hækkuð um 20/100 og svo 10/100 ár hverju ári eftir það. Reglubreytingar geta ógilt met.
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Kristján Skjóldal on December 21, 2014, 21:10:16
he he þessi neðsta regla hefur aldrey verið notuð :mrgreen: enda finnst mér hún vera bull :D
Title: Re: Islandsmet/ brautarmet
Post by: Dodge on December 22, 2014, 13:12:09
Sælir, það er búið að fella út lið 13 og krafan um flokkaskoðun orðin enn skýrari ef sett er met, það á sennilega bara eftir að gefa þetta út í endanlegri útfærslu.

En ég man ekki eftir að hafa séð metin neinstaðar á síðum sérsambandanna, við þurfum að taka það allt í gegn.