Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Ingimar on February 16, 2014, 10:43:43
-
Sælir, veit einhver hvaða bíll þetta er? Næ ekki að lesa á númeraplötuna?
Skilst að Frændi minn hafi átt hann í den, þessi mynd er tekinn fyrir 1973
Kveðja Ingimar
-
1968 Firebird, mér sýnist vera "505" í númerinu, hvar var bíllinn á landinu og hvað hét eigandinn?
-
er þetta ekki I 5050?
-
Myndi giska á R5050? Bílinn var í Reykjavík, eigandi Ingimar Örn Davíðsson
-
Mér sýnist þetta vera Overhead cam bíllinn sem Eiríkur á að ég held og vélina fékk örugglega Steini í Svissinum. Er ekki númerið G 5050
-
Jú getur verið G5050, er þessi bíll sem sagt ennþá til?
-
Ditto á OHC bílinn....
-
Hér er amk. líklega elsta myndin af bílnum hjá Eirík sem ég hef séð, en ferillinn af honum nær bara til 1977, þetta gæti nú alveg verið sami bíllinn, reyndar kominn með annan hliðarspegil. :wink:
Eigendaferill
8.6.2000 Eiríkur Benediktsson
6.4.1993 Ásbjörn Sigurðarson
1.11.1992 Níels Steinar Jónsson
3.10.1992 Róbert Hans Hjörleifsson
5.8.1992 Sverrir Þór Einarsson
22.7.1992 Ingvar Örn Karlsson
13.2.1991 Guðmundur F Guðmundsson
15.12.1986 Ingi Stefán Ólafsson
11.4.1980 Bragi Bragason
11.4.1980 Alfreð Björnsson
24.1.1979 Sigurborg Ólafsdóttir
4.8.1978 Alfreð Björnsson
4.8.1977 Halldór Sigtryggsson
Númeraferill
7.1.1987 G8695
4.8.1978 R61197
4.8.1977 Y983
Skráningarferill
4.3.1998 Afskráð - Að beiðni yfirvalda
1.1.1900 Nýskráð - Almenn
-
Já ansi líklega sá sami, er hann á númerum og á einhver nýlegri myndir af honum?
-
Hann hefur ekki verið á númerum lengi.
-
Þessi Firebird er merkilegur fyrir þær sakir að vera upphaflega með "Sprint OHC" línu sexu sem var svo sem ekkert sérstaklega merkileg nema þessi tilraun John Deloren hjá Pontiac með OHC heitari ás og fjögurra hólfa blöndung en hestöflin voru svo sem ekki mörg, 207-230 þessi þrjú ár (1967-69) sem þessi vél var framleidd en beinskiptur OHC Firebird átti víst að ná háum 14 sek. á mílunni.
Þessi tiltekni bíll var lengi hérna á götunni í denn og ég spyrnti við hann á gamla 69 Camaroinum mínum með línusexu og beinaður í gólfi og drullutapaði fyrir honum en það var víst eitthvað vandamál með þessar OHC vélar, hvort að knastásarlegurnar entust eitthvað stutt en allavega hvarf þessi bíll af götunum upp úr áttunda áratugnum.
Mér fannst þessi bíll alltaf svolítið spes enda fyrir utan þessa vél var hann beinskiptur (4. gíra?) með læst drif og diskabremsur, ef vel er rýnt í myndirnar minnir mig að á húddinu standi "Overhead camshaft" og mér skilst að núverandi eigandi sé kominn aftur með OCH vélina í hendurnar, það væri gaman ef þessi vél rataði aftur í bílinn og hann sæist fljótlega aftur á götunni.
-
Þeir voru ekki margir svona, þeir kölluðu þá European sprint
-
Snilld, á einhver fleiri myndir af þessum bíl?
-
Aðeins meira.
-
Kærar þakkir fyrir þessar myndir, gaman að sjá. Maður kemur ekki að tómum kofanum hér drengir
-
Hann er helvíti góður á svörtu felgunum þarna. Í hvernig standi er hann í dag?
-
Þrælflottur bíll og mögnuð ohc framleiðsla!
Hvað voru framleiddir margir svona birdar? Settu þeir þessa vél í eitthvað fleira en firebird?
Kv
Anton
-
Var ekki hægt að fá svona í Tempest-Lemans líka ?