Kvartmílan => Fréttir & Tilkynningar => Topic started by: SPRSNK on March 14, 2016, 09:20:34

Title: Blúskvöld - laugardagskvöld 19. mars kl. 20:00
Post by: SPRSNK on March 14, 2016, 09:20:34
Laugardaginn 19. mars ætlum við að halda mikla skemmtun í félagsheimilinu okkar.

 Hljómsveitin Katanes mun spila ljúfa blústóna fyrir okkur.
 Hljómsveitina skipa: Sigurður Sigurðsson munnharpa og söngur, Einar Rúnarsson hammond, Friðrik Jónsson á gítar, Páll Elvar Pálsson á bassa og Jón Borgar Loftsson á trommur
 Hljómsveitin hefur gefið það út að einungis verða spiluð skemmtileg lög!

 Húsið opnar kl. 20:00 og mun hljómsveitin byrja að spila um 21:30.

 Kvartmíluklúbburinn selur guðsveigar á staðnum og einnig verður eitthvað til í sjoppunni.

 Við hvetjum alla til að gera sér glatt kvöld með okkur og mæta!
Title: Re: Blúskvöld - laugardagskvöld 19. mars kl. 20:00
Post by: SPRSNK on March 19, 2016, 12:44:46
Kvartmíluklúbburinn minnir á Blúskvöldið í kvöld með Bogga og félögum

Frítt inn!!

Allir mæta á kagganum sem geta :-)