Þá er gæðabensínið komið.
En því miður er eingöngu hægt að kaupa það á 200 lítra tunnum til að byrja með. Það er ekki hægt að setja það á dælu vegna hættu á uppgufun sem rýrir gæðin. Og einnig má ekki selja það á dælu þar sem það er fyrir utan þá staðla sem gilda fyrir allment eldsneyti til almennings. Bensínið er 106 okt. og er búið að gera tilraunir með það í nokkrum tækjum og hefur það staðið fyllilega undir væntingum og rúmlega það.
Hægt er að panta þessar 200 lítra tunnur í þjónustuverinu hjá N1 eða senda mail á
magnusl@n1.is Það er síðan afgreitt úr vöruhúsinu hjá þeim að Bíldshöfða. Einnig senda þeir tunnuna frítt heim að dyrum á stór Reykjavíkursvæðinu. Einnig verður hægt að fá þetta afhent í verslunum þeirra á landsbyggðinni. Tunnan kostar 76.000 sem er 380 kr líterinn.
Menn geta auðvitað tekið tunnu saman ef þeir treysta hvor öðrum í lítrum talið. Ég keypti fyrstu tunnunna og ætla að nota hana í sumar og jafnvel blanda við 98 svona til daglegs brúks.