Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: helgim on July 18, 2013, 03:48:39

Title: Pöntun á nýrri V8
Post by: helgim on July 18, 2013, 03:48:39
Sælir.
Ég er í smá vandræðum... málið er að ég er með Lincoln Mark Viii sem ég er að dunda við að koma í það stand sem hann verðskuldar að vera í.
Persónulega finnst mér hann verðskulda töluvert fleiri hestöfl en þessi 4.6 vélin var með þarna árið ´95.

Upphaflega hugmyndin var að fara í stroker kit en svo er spurning hvort maður eigi ekki að kaupa bara almennilega vél í þetta.
Eina vandamálið er að ég hef ekki hugmynd um hvar ég kaupi vél í svona kvikyndi... einhverjar hugmyndir?
Title: Re: Pöntun á nýrri V8
Post by: íbbiM on July 18, 2013, 18:40:33
í þessu tilfelli myndi ég fara í blásarakit
Title: Re: Pöntun á nýrri V8
Post by: einarak on July 18, 2013, 23:07:31
Það er merkilega almennileg vél í þessu, 4.6l sem er tæp 300hö, álblokk og 4v álhedd. En það er frekar dýrt að tjúna þetta. Ef þú ætlar í alvoru power þá ferðu í forced induction (blásara/turbo). En ef þú villt bara aðeins hressa hana, þá geturu byrjað a longtubes, cobru milliheddi og aftermarket knastásum. Annars er vinsælt að svappa blowermótor úr 03 Cobra, hann passar beint í, en kostar bara 10.000$
Skoðaðu spjallið á modularmustangs.com þar er fullt af upplýsingum
Title: Re: Pöntun á nýrri V8
Post by: helgim on July 19, 2013, 16:56:07
Takk fyrir góð svör.
Ég var að hugsa blower reyndar... en mér fannst það vera frekar dýr aðgerð þar sem mér finndist þá eina vitið að taka mótorinn upp í leiðinni þar sem hann er ekinn rúmlega 100.000 mílur.

Er ekki blower alltaf í kringum milljón kominn í sirka?
Hvað hafa menn verið að borga fyrir að taka upp mótor núna í kreppunni? Með efni og vinnu...

Title: Re: Pöntun á nýrri V8
Post by: einarak on July 20, 2013, 23:42:34
blower kittin byrja í svona 4000$ (t.d. www.vortech.com (http://www.vortech.com)  www.kennebell.net (http://www.kennebell.net)). Orginal mark viii mótorinn þolir ekkert boost, þannig að það þarf að skipta um sveifarás, stangir og stimpla. Rotating Assembly byrjar í svona 1300$ (t.d. http://www.modularmustangracing.com/ (http://www.modularmustangracing.com/)  http://www.modmaxracing.com/ (http://www.modmaxracing.com/)). Svo er bara spurning hvað þú vilt gera, hvað þú villt eyða í þetta osf. Kraftmesta svona 4.6 4v vélin er einhversstaðar upp undir 2600hp á 65psi og 10.000rpm svo möguleikarnir eru þónokkrir...

Þessi er með stock block (4.6l álblokk) og orginal hedd (B-head, úr Mark VIII eða 96-98 cobra).
JOHN MIHOVETZ 6.05 @ 241MPH in ACCUFAB Mustang (http://www.youtube.com/watch?v=E7m9S-AIvg8#)
Title: Re: Pöntun á nýrri V8
Post by: íbbiM on July 21, 2013, 01:58:55
Takk fyrir góð svör.
Ég var að hugsa blower reyndar... en mér fannst það vera frekar dýr aðgerð þar sem mér finndist þá eina vitið að taka mótorinn upp í leiðinni þar sem hann er ekinn rúmlega 100.000 mílur.

Er ekki blower alltaf í kringum milljón kominn í sirka?
Hvað hafa menn verið að borga fyrir að taka upp mótor núna í kreppunni? Með efni og vinnu...




jú getur alveg reiknað með milljón fyrir blásarakit,  þú sleppur nú síst ódýrar ef þú ætlar að ná í hestöflin N/A
Title: Re: Pöntun á nýrri V8
Post by: arnarkr on August 19, 2013, 19:05:48
á eina v8 5.4 úr 2008 Lincoln Navigator handa þér! Er allt með henni nema alternatorinn minnir mig, ennþá plöstuð á bretti frá USA.

Kveðja, Arnar