Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Maverick70 on April 03, 2012, 11:26:07

Title: eru einhvejrir sem selja efni til þess að húða bensíntanka
Post by: Maverick70 on April 03, 2012, 11:26:07
sælir, er með gamlan bensíntank sem þarf að húða að innan, veit að grettir gerir þetta, er var að velta fyrir mér hvort að einhver selji þessi efni hérna?
Title: Re: eru einhvejrir sem selja efni til þess að húða bensíntanka
Post by: baldur on April 03, 2012, 13:17:15
Ég hef nú gert þetta með kvistalakki með góðum árangri, ryðhreinsaði tankinn að innan með súr-x og fosfórsýru, þurrkaði vel og setti svo dass af kvistalakki í tankinn og hristi vel, hellti svo restinni úr. Eflaust er enn betra að nota epoxy lakk.
Title: Re: eru einhvejrir sem selja efni til þess að húða bensíntanka
Post by: firebird400 on April 05, 2012, 17:20:17
Fyrirtæki sem heitir Dæluhúðun tekur svona að sér
Title: Re: eru einhvejrir sem selja efni til þess að húða bensíntanka
Post by: Harry þór on April 06, 2012, 01:40:07
Grettir - af hverju að vera að finna upp hjólið þegar að fagmenn kunna að gera þetta. Fáðu bara einhvern til að fara með tankinn fyrir þig.

mbk Harry Þór
Title: Re: eru einhvejrir sem selja efni til þess að húða bensíntanka
Post by: Maverick70 on April 06, 2012, 09:19:30
takk fyrir svörin strákar, vesneið felst nú ekki í því að fara með tankinn, heldur að spara smá aur, þar sem að þessi tankur þarf bara að endast sumarið, er ekki allveg til í að rífa upp 20-25þús fyrir húðun
Title: Re: eru einhvejrir sem selja efni til þess að húða bensíntanka
Post by: forsetinn on April 06, 2012, 17:20:45
Kvistalakk ekki spurning veit um nokkur dæmi sem það hefur verið notað án vandræða og er mjög ódírt fín bráðabyrðaredding