Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: 1965 Chevy II on July 11, 2004, 23:54:06
-
Úrslit í kvartmílu fyrsta og önnur umferð.
MC flokkur
Fyrsta umferð.
1. sæti. Ómar Nordal
2. sæti. Þröstur Guðnason
3. sæti. Smári Helgason
Önnur umferð.
1. sæti. Ómar Nordal
2. sæti. Harry Herlufsen
3. sæti. Smári Helgason
Super Pro ( braket)
1. sæti. Benidikt Eiríksson
2. sæti. Sigurður Jakobsson
3. sæti. Magnús Bergsson
Önnur umferð.
1. sæti. Benidikt Eiríksson
2. sæti. Sigurður Jakobsson
3. sæti. Magnús Bergson
GT flokkur
Fyrsta umferð
1. sæti. Daníel Hlíðberg
2. sæti. Jón Gunnar
3. sæti. Ingólfur Arnarson
-
Takk fyrir þetta.
En eru nokkuð tímar. (jafnvel með viðbragði og indexi t,d, í bracket)
Náði Davið að fara undir meti
Og Viðar hvað fór hann best (ekki væri verra að fá 60 ft, á þessum táningum.)
Frétti að Challangerinn hefði sett met.????
Með fyrirfram þökk og von um góðar undirtektir.
-
Þetta fékk ég sent frá Forma eins og það er hér skrifað,hef ekki meira info því meeeður.
Með eftirá ekkert að þakka og fúlar undirtektir.
-
Hæ Hó hér eru tveir miðar til að glugga í.
Banannabáts kveðjur. Gísli Sveinss.
-
Það er aldeilis, eldgamla SE metið fallið,til lukku með árangurinn Gísli.
P.S Hvar er besti bananabáturinn í bænum?
-
Sæll Frikki,banannabátur aðhætti Kalla Málara :D eru langbestir á Skalla.
kv. Gísli Sveinss
-
ef að Gísli greyið fengi einhverja keppendur þá væri metið fallið, hvar eru allir keppendurnir ?? allir að mæta í næstu keppni, alltof fáir síðast
-
Það þarf ekki keppendur til sagði Hálfdán mér,hann á rétt á ferðum til að bæta met í þeim flokki sem hann skráir sig í og svo 3 ferðir að mig minnir til að bakka upp metið.
Ekki það að flokkurinn hefur breyst síðan Einar setti metið með "smallaranum" 8) en þetta er samt svona prinsip mál að sjá þetta met slegið á SE bíl hvort sem það er í race við einhvern eða single ferðir.
-
Já og fleiri keppendur takk :o
-
http://www.foo.is/gallery/kvartmila-2004-07-11/DSC04294
Flottir tímar Gísli en S/E spec dekk ??
-
Amk ekki malarvegs spec dekk...
(http://www.kvartmila.is/spjall/files/puntera__sm_kku_.jpg)
-
Sæll Einar góður punktur eða myndataka,annar M/T GÖTUSLIKKIN var
vindlaus eftir siðust timatökuferð,svo ég varð að henda GoodYear undir
í staðin til að keyra via la Bracket :?
Engu að síður náði ég 10,48 ferðinni M/T götuslikkum :D
p.s pungteraði svo að lokum Good Year slikkan áður en ég komst á
Keflavíkurvegin :cry:
kv.Gísli Sveinss
-
Nú þá er bara Congrats og alles, svo er bara að fara neðar með Challann.
131,760 MPH he he "SBC-glide-1600kg-dælubensín"
-
Ég er ofsa sáttur við SAABinn og glaður yfir því að hafa náð aftur hraðametinu í RS-flokki sem Gulli náði svo glæsilega af mér á laugardaginn þegar hann fór á 114 mílum. Ég bústaði þá aðeins meira á sunnudaginn og fór á 12,100 á 115 mílum og SAABinn var þrátt fyrir það hinn hressasti og hefur skilið eftir gúmmí um víðan völl síðan þá.
Myndir af slippum á http://www.icesaab.net
Kv. Nóni
-
Já, það væri nú gaman að sjá fleiri bíla á brautinni. Það verður að teljast lélegt þegar hvorki næst að keppa í RS eða GT flokki. Nóg er allavega til af bílum sem gjaldgengir væru í þessa flokka. Við óskum Nóna til hamingju með hraðametið og góðan tíma á mílunni. Hann fær allavega að halda því í nokkrar vikur, en við lofum því ekki lengur. Metið í RS flokki var bætt lítillega á laugardaginn af 555 Imprezunni og er núna 11,732 sek. Það var bakkað upp með tímanum 11,747 sek. Mesti hraði sem hún náði var 114,2 mílur. Þessi tími og hraði verður bættur í ágúst. Nú er verið að undirbúa bílinn fyrir keppni í Englandi 1. ágúst. Þar keppir Gulli í keppni sem heitir "Ten Of The Best 3 (TOTB3)" en í henni taka þátt tíu bestu götubílar of hverri tegund í Bretlandi auk nokkurra sem boðið er að taka þátt. Keppendur eru tæplega 130. Keppt er í þremur greinum; kvartmílu, hámarkshraða á 1,25 mílu og tímatöku í braut. Í þessari keppni eru þrír flokkar; framdrifs bílar, afturdrifs bílar og bílar með drif á öllum hjólum. Sigurvegari verður sá sem fær besta samanlagða árangur í öllum greinunum þremur; í hverjum flokki og síðan heildarsigurvegari allra keppenda. Allir bílar verða að vera löglegir til aksturs á götu. Teg. eldsneytis er frjáls, nítró er leyft, en dekk verða að vera lögleg til götuaksturs með E eða DOT merkingu og lágmarks dýpt á munstri er 1,6 mm. Keppnin fer fram á stóru flugvallasvæði, sem heitir Elvington Airfield.
Með von um aukin fjölda keppenda í kvartmílu á Íslandi.
Halldór Jónsson
Team 555
-
Ég óska ykkur góðs gengis í UK. 8)
-
ég ætla að óska 555 feðgum bara til hamingju með sigurinn fyrir fram á milli imprezu manna :D , það eru ansi fáar imprezur í heiminum sem geta staðist í 555 miðað við brautina hér og loftslag (miðað við tímann) þó það eru alltaf einhverjir sem halda upp samkeppninni.
allanvega ég óska ykkur góðs gengis og vonandi sést til íslendings á vinningspallinum og ofarlega á listanum.. vonandi efst , það væri virkilega gaman ef 555 myndi ná að hirða "gullið" frá bretum ;)