Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Bird on September 18, 2005, 02:46:31
-
Það var 1971-´72 Plymouth Roadrunner/satellite á Akranesi fyrir ca. 20, "appilsínugulur" með svörtum röndum ( var alltaf niðri á vesturgötu ), hvað varð um þennan bíl og leynist kannski einhver eintök ennþá einhvern staðar í bílskúr hérna á klakanum?(http://)
-
Gæti verið Runnerinn hans Andersens?
-
Gæti verið Runnerinn hans Andersens?
Er þetta ekki hann?
(http://www.internet.is/bilavefur/album/mopar/RoadRunner_O_236.jpg)
-
sæll Geiri, þetta er bíllinn hans Sigurjóns, hann er vel á veg kominn í uppgerð að mér skilst, meðfylgjandi er mynd sem Gísli Sveinss. tók í janúar á þessu ári.
(http://www.kvartmila.is/spjall/files/camaro_2005_ni_urrif_083.jpg)
-
Mig minnir nú að Roadrunnerinn sem var hér á Skaganum hafi ekki verið með renurnar að framan, toppurinn var ekki svartur og engin mynd á húddinu!
-
Mig minnir nú að Roadrunnerinn sem var hér á Skaganum hafi ekki verið með renurnar að framan, toppurinn var ekki svartur og engin mynd á húddinu!
Það passar, þeir eru/voru tveir mjög svipaðir.
Andersen er búinn að eiga sinn í 100 ár þannig hann hefur ekkert verið á Skaganum.
-
Þetta er bíllin sem Plli átti 340 bíll Oli Grís á Kjalanesi átti hann svo hann málaði hann plum crazy fjólublán og ætlaði að setja Hemi í hann núna er þessi bíll í eigu Gulla Emils á flúðum og hann á Hemi vélinna líka.Kv Árni Kjartans
-
Palli sem var með Radíóhúsið átti þennan bíl í gamla daga... grætur hann ennþá held ég....
Hann var ekki með svörtu þaki heldur Orange lituðu að mig minnir.
Þessir bílar eru nú alveg helvíti flottir og vonandi maður fái að sjá bílinn sem oftast hjá Gulla.
-
Ég held bara að þetta séu þeir báðir. 8)
-
Man eftir þessum bíl ofan af skaga,stóð alltaf við horn hús á vesturgötunni og var ekki með strípurnar yfir húddið!
HK RACING
S 822-8171
-
hann var með númerið E-1881(ef það hjálpar eitthvað) ég átti heima á móti honum þegar ég var gutti
kv
beisó