Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: ingo big on August 26, 2005, 00:59:47
-
Ari Gíslason Kom á Litla hvíta camaro hann fór best í kvöld á
13,46 @ 99.99
Einar Kristjánsson á Firebird fór best í kvöld á 14,22 @ 97,61
Freyr Sigurðsson Fór á sinni prezzu 13,60 @ 95,94
Gunnar Bjarnasson á Hondu Del sol ( úr 1600 flokki rallýcross brautar ) var að fara skrýtna tíma eins og hér segir 15,28 @ 87,88
Gunni golf fór ekki margar ferðir en fór samt ;) 15,11 @ 89,99
Kristinn á Dodge ( NEON ) Sr4 fór á litlum 14,25 @ 96,77
Kristinn kristinsson á bmw 14,66 @ 93,36
Elli á primeru Turbo 12,75 @ 105,88
Valli á Vti supercharger 14,47@ 92,78
Sævar á Golf III Vr6 var að fara á 14,91 @ 88,06
Hjól Rautt 11,27 @ 123,29
Hjól Blátt 10,12 @ 136,37
Sorry hjóla strákar ritarinn fór eithvað á mis með nöfnin á ykkur en það er hægt að lagfæra það :)
Það var snemma sem starfskrafturinn mætti og gerði klárt fyrir kvöldið
spáð var köldu og vindurinn var hvassur í byrjun en dró svo úr honum og varð að golu , Fyrstu bílarnir mættu um átta leitið og þar fremst í hópi var Honda civic/Crx Del sol Rauð á litinn og Rallycrossari úr 1600cc flokknum en við skulum ekkert ræða mikið um Rallycross á kvartmíluvef , allanvega kom fljótlega í ljós að hann Valli á civic væri kominn með supercharger og hann gerði sinn að hraðskreiðasta Civic á landinu út míluna gera aðrir betur ;) , Fljótlega mætti Wannabe SR20DE Primeran blá að litinn og menn mega rífast um hvort þetta sé raunverulega SR20DE eða Venjuleg , allanvega mættu margir bílar og flottustu slædd kvöldins var frá Gm drengjunum á Rauðum Firebird og Hvítum Camaro enda sömu stóru slikkarnir undir þeim bara skiptust á hehe , Sjónvarpið var komið upp enda sýndi það sig að menn eru mættir á ný á þessa fundi okkar :)
Hætt var upp úr hálf ellefu æfingunni enda var myrkrið skollið á en auðvita fóru menn ekki af Fundinum fyrr en seinna um kvöldið.
Þakkir fær Einar K Möller fyrir þessa fallegu 27.2 kg gjöf sína til kvartmíluklúbbsins , það voru fullt af blöðum sem koma í góðar þarfir enda margur fróðleiki í þeim
Því miður skortari hana Söru okkar og við vonum að hún átti góðar stundir við vinnu og allir söknuðu hennar rosalega mikið
Davíð og Ingó óska ykkur öllum þakkir fyrir ánægjustundir við lestur og vonandi drepur enginn þann sem skrifar þennan texta hehe ;)
-
flott lýsing 8)
ef einhver segir hefði átt að vera meiri þá leist mér ekkert á vinnuaðstöðuna og vildi forða mér heim til að lúlla hehe
-
Og það voru nokkrir góðir gestir sestir niður við sjónvarpsgláp og blaðalestur. Mjög hlítt og notalegt í klúbbnum.
Ég þakka ykkur öllum vel fyrir hjálpina við að reka þennann klúbb, strákarnir í sjoppunni og þið fyrir utan hús í þessum skítakulda. Takk takk.
stigurh
-
Aðeins 27.2kg... ég á örugglega 3kg til, svona til að ná uppí 30kg.
En vonandi hafa menn gagn og gaman af þessu.
-
iss hvað ég hefði geta tekið spólurnar og alla þessa árituðu safngripi og bílamódel með en hvort ég hefði komist upp með það hehe.
annars meðan fiskarnir fá ekki bíladótið þá er það svo sem í lagi hehe
Einar ég skal alveg koma og ná í þessu 3 kg.
-
Sorrý að ég kom ekki, ég ætlaði að koma eftir vinnu en svo.......bauðst annað sem innihélt ekki kulda og golu :oops: en ég lofa að koma næst og hlakka til að sjá alla á svæðinu!
-
Sorrý að ég kom ekki, ég ætlaði að koma eftir vinnu en svo.......bauðst annað sem innihélt ekki kulda og golu :oops: en ég lofa að koma næst og hlakka til að sjá alla á svæðinu!
Vinna já það er betra að fá peninga fyrir vinnuna sína :roll:
-
Sko ég fæ vel borgað í sjoppunni, og þegar maður hefur fleiri en einn gogg til að setja mat í þá verður maður stundum að setja áhugamálið til hliðar og skrapa upp aura, þó að það sé ekki alltaf gaman! En þú veist þetta allt saman Ingó honný :lol:
-
Þetta var virkilega skemmtilegt kvöld, en mikið helvíti voru þessir slikkar þungir :oops:, nú verður maður bara að fara að tjúna til að höndla slikkanan, flottir tímar hjá ara á camaronumm og ella á primerunni,
takk fyrir mig.
flott frásögn ingó, gaman að þessu :D