Tek undir með öllum sem hér hafa skrifað:
Þakka mjög öllum sem hafa staðið að keppnishaldi í sumar fyrir okkur sem keppum. Af öllum ólöstuðum vil ég sérstaklega nefna Valla, Adda, Jóakim og Gísla. Athugið góðir hálsar að tveir þeir síðarnefndu fá bílpróf á næsta ári. Kvartmílan verður þeirra...
Sérstaklega er ég ánægður með svakalegan keppinaut í MC-inu, Harry Hólmgeirss sem gerði þessa keppnistíð þá skemmtilegastu, mest spennandi, ögrandi fyrir mig frá því ég fór fyrst brautina 1983 á 273 Dart á 16.42. Vil líka nefna sérstaklega frábæran þennan 10.55 Evo tíma og Frikkatímann; alltaf gaman að sjá Transinn reysa sig.
Þarna var samankomið harðkjarnalið sem bauð öllu krepputali birginn og átti ánægjulegan dag með Mister A, Stígsson gleiðbrosandi sem leader of the pack. Nú losnar brátt Seðlabankastjórastaða og þá finnst mér
alls ekki að hann eigi að verða fyrir valinu þótt eflaust verði eftir leitað
. Auðunn á nefnilega bara heima á kvartmílubrautinni og sem annálaður sögumaður hvar sem hann tyllir niður rassi.
Góðar stundir
Óver and át (mikið át)
Ragnar