Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: siggik on March 09, 2004, 19:29:09
-
Var að spá hvort þið vissuð hvort það séu margar gangandi impölur hérna og hvort einhverjar séu í uppgerð og kannski með myndir eða síður ?
alltaf gaman að skoða gamla klassíska bíla á klakanum :wink:
EDIT: tók mynd af þessum í sumar http://www.skonsa.biz/gallery/album03/DSC00029
-
það eru þónokkrar til, ein ef ekki tvær sem ég veit um sem eru til sölu, önnur þeirra er hvít árgerð ´63 með númerið BB-300, hún var til sölu einhverntíman í haust eða vetur og það þurfti að laga hana aðeins til samt ekkert stórvægilegt. Hin er árgerð ´64 og er sett á hana 1.400.000 læt fylgja mynd af henni...
(http://www.bilasolur.is/bisImageServer.aspx?img=13340316&size=fullsize&watermark=)
-
Sælir
Er ekki forláta svartur Camaro í myndasafninu hjá þér, væri ekki ónýtt fyrir okkur sem höfum ekkert að gera að vita hvar hann staddur svo við getum eitt okkar tíma í að skoða hann. Kv. TONI
-
sæll Toni, þú ert væntanlega að meina þennan?
(http://www.internet.is/bilavefur/bird.jpg)
er þetta annars ekki ´68 Firebirdinn hans Sævars Péturss. sem stendur núna uppi á gám fyrir utan verkstæðið hans? :roll:
-
Já það var svo sem auðvitað að þegar maður ættlaði að vera gáfulegur kemur það svona út. Er þetta bíll sem er ónýtur eða hver eru eða verða afdrif hans. Önnur heimskuleg athugasemd, hvar er þetta verkstæði. Kv. TONI
-
ég talaði við son Sævars sl. sumar og sagði hann að bíllinn væri langt frá því að vera til sölu, Sævar væri búinn að eiga bílinn lengi og það væri á dagskránni að gera hann upp, þrátt fyrir að vera í mjög slæmu ástandi. Verkstæðið ku vera í Njarðvík beint á móti ÓB bensín, bíllinn sést frá Fitjabraut þegar þú keyrir inn í Reykjanesbæ. :wink:
-
Er þetta bíllinn sem var í umræðunni hér fyrir nokkrum mánuðum síðan.
-
má vera, ég var að spurjast fyrir um einhverja Firebirda fyrir einhverju síðan þar á meðal var þessi.. fékk lítil viðbrögð en þráðurinn er hérna -----> http://www.kvartmila.is/spjall/viewtopic.php?t=6639
-
Það var eitthvað mun eldra (kuml) gæti verið ár síðan, maður bíður frúnni í rómantíska ökuferð að kíkja á gripinn, hún hefur alltaf svo gaman af því :lol:
-
Moli ef þú er enn að velta því fyrir þér hvort að þessi græni sé bíllinn hans Sævars þá get ég sagt þér það að bíllinn hans Sævars er og hefur að ég best viti ávallt verið svartur. En ef einhver gæti sagt manni hvaða og hvernig bíll þessi rauði er þá væri það fínt, Er þetta nokkuð 73 transinn hans halla í garðinum.
-
En ef einhver gæti sagt manni hvaða og hvernig bíll þessi rauði er þá væri það fínt, Er þetta nokkuð 73 transinn hans halla í garðinum.
Neibb!
Þetta er venjulegur Firebird 1973 með 350 pontiac. Hann var örugglega fluttur inn nú í seinni tíð (1991 held ég). Hann var seldur um daginn og gott ef það var ekki kvennkyns vera sem verslaði hann.
Bíllinn er ekki mjög mikið ryðgaður, en það vantar í hann afturgaflinn, framrúðuna og afturstuðarann.
-j
-
Moli ef þú er enn að velta því fyrir þér hvort að þessi græni sé bíllinn hans Sævars þá get ég sagt þér það að bíllinn hans Sævars er og hefur að ég best viti ávallt verið svartur.
jú mikið rétt, ég komst seinna að því að þessi græni var var bíll sem þeir bræður Benedikt og Jón Eyjólfsynir áttu, bíllinn var rifinn fyrir nokkrum árum (líklega af Sævari Péturss) eftir að bíllinn hafði í mörg ár staðið fyrir utan Vagnhjólið/Bílabúð Benna.
en veit nokkur hvar þessi mynd er tekin? er þetta ekki múkki í skúrnum þarna fyrir aftan? :roll:
(http://www.internet.is/bilavefur/stuff/firebird_2.jpg)
-
Moli ef þú er enn að velta því fyrir þér hvort að þessi græni sé bíllinn hans Sævars þá get ég sagt þér það að bíllinn hans Sævars er og hefur að ég best viti ávallt verið svartur.
jú mikið rétt, ég komst seinna að því að þessi græni var var bíll sem þeir bræður Benedikt og Jón Eyjólfsynir áttu, bíllinn var rifinn fyrir nokkrum árum (líklega af Sævari Péturss) eftir að bíllinn hafði í mörg ár staðið fyrir utan Vagnhjólið/Bílabúð Benna.
(http://www.internet.is/bilavefur/stuff/firebird_2.jpg)
Þessi græni...var þetta ekki V6 bíll? með vinyltopp?
-
Ég veit til þess að Sævar var með annann rifinn 68 firebird en það er ekki þessi græni, sá bíll er/var ljós blár. Ég hélt að þessi græni væri í fínu standi einhverstaðar fyrir norðann, og ef mig minnir rétt er þetta einmitt 6 cyl. bíll en er nú kominn með 400 mótor.

jæja, það getur svosem vel verið, ég var búinn að heyra aðra sögu, átti ekki formaður BA dökkgrænan ´68 bíl getur ekki verið að þessi ljósgræni sé hann? :roll: