Kvartmílan => Ford => Topic started by: jón ásgeir on February 28, 2010, 20:04:35
-
Sælir við sáum þennan Mustang hjá Bílageiranum hér fyrir Sunnan..
Ef við hefðum ekki kíkt á hann þá veit ég ekki hvernig hann hefði orðið að innan því bílstjóra hurðinn var hálf opinn á honum og hann var fullur af snjó.Svo við skófum mesta snjónn úr honum.
Og lokuðum Hurðinni.
Læt nokkrar myndir fylgja
P.S veit einhver hver á þennan
-
Held að þetta sé PI-U46, innfluttur 2008 og í eigu Jón Þórs í Keflavík sem flutti inn 6cyl '65 ljósbláa fastbackinn.
-
Ég skal alveg taka það að mér að eignast þennan :mrgreen:
-
Hann er meira að segja á sömu felgum og dekkjum og ljósblái 6cyl fastbackinn sem hann (Jón Þór) flutti inn. :wink:
-
Ég á þennan núna :)
-
Til hamingju kjartan!
-
til hamingju með það verð að kíkja á þig við tækifæri og skoða 8-)
-
Já sæll!! Til hamingju með það!!
Kveðja,
Björn
-
Þessi fór á númer í dag og fékk fulla skoðun.
Búið að fara slatti af tíma og peningum í græjuna. Allt nýtt í stýrisbúnaði og fjöðrun (fyrir utan gorma og dempara), nýtt stýri, ný öryggisbelti, ný afturrúða, búið að laga til rafmagn.
Svo er ég búinn að kaupa þau ryðbætistykki sem ég sé að þarf, þ.e. bita aftast og fjaðrahengsli, hvalbak og fremra gólf. Einnig er ég búinn að láta gera við bensíntankinn þar sem hann lak.
Í vetur fer hann svo í frekari skverun hvað body og málningu varðar.
-
og nokkrar fleiri myndir
-
Góður, til hamingju Kjarri. :wink:
-
Vetrar (og reyndar hugsanlega lengra :)) projectið komið á fullt
Mótorinn kominn úr, búið að rífa af bílnum.
-
Kominn í sandblástur, eitt eða tvö göt á honum :)
-
Og nokkrar til...
-
þetta verður snilld hjá þér 8-)
-
Laglegt !
-
Kemur þessi á götuna 20.apríl 2012? :wink:
Kveðja,
Björn
-
Flott Kjarri, hver blés hann fyrir þig?
-
Þeir hjá blastur.is
Gerðu þetta bara ansi vel svo ég segi sjálfur frá.
Flott Kjarri, hver blés hann fyrir þig?
-
Bíllinn kominn heim í skúr og búið að grunna þar sem ég kemst ekki með hann strax í ryðbætingu
-
Kemur þessi á götuna 20.apríl 2012? :wink:
Kveðja,
Björn
Það væri amk. ekki leiðinlegt :)
En hugsanlega frekar bjartsýnt
-
Aðeins að dunda í mótor...
Mótorinn í bílnum er 1968 302 Ford
-
Smá meira mótordund. Flækjur og ventlalok komin á öðru megin.
-
glæsilegt =D>
-
Búið að skipta út gólfinu (fyrir utan frampartinn) og byrjað á afturhluta.
-
Þetta verður alveg stórglæsilegt. Er bíllinn sem sagt komin til Magga í ryðbætingu?
-
Þetta verður alveg stórglæsilegt. Er bíllinn sem sagt komin til Magga í ryðbætingu?
Já, bíllinn er þar núna :D
-
Allt á réttri leið greinilega! 8-)
-
Bitinn fyrir neðan afturrúðuna fór af í gær ásamt ristinni yfir hvalbakinn.
-
Bitinn fyrir neðan afturrúðuna farinn í, afturendinn (og reyndar fleira) farinn af :)
-
Afturgaflinn kominn í ásamt öllu skottinu. Annað afturbrettið er einnig komið á og hitt farið af.
-
Þá er afturendinn alveg klár, skipt um bæði afturbretti, afturgafl, allt í skotti, hluta af hjólaskálum ásamt bita fyrir neðan afturrúðu. Einnig búið að klára hvalbakinn farþegamegin ásamt öllu því tengt.
-
Gaman að benda á það að bíllinn er kominn með Torque box farþegamegin (sést á mynd 4 í síðasta pósti), fer líka í bílstjóramegin á næstu dögum.
-
glæsilegt =D>
-
Það virðist á þessum myndum að "grunninn" af bílnum hafi nánast verið hægt að taka í nefið!
Greinilega nóg að gera!
-
Jæja er þessi þá loksin kominn í hús ryðbættur og fínn?Þetta virðist hafa verið mikil vinna hjá Magga og gaman að sjá hann endurfæðast.
-
Jæja, þá er maður aðeins farinn að dusta rykið af græjunni.
Fékk á sig smá grunn og svo lit í vélarsal og skott í gær. Næst á dagskrá er að mála gólf og botn. Henda svo mótornum í ásamt nýju rafkerfi.
-
Þetta boddí er flott í svörtum lit 8-)
(http://farm8.staticflickr.com/7074/7363221366_cf16bd70c5_z.jpg)
Kveðja,
Björn
PS. veit að þessi á myndinni er ´65 en hann lúkkar svipað :wink:
-
Það er rétt, þessi er ekki slæmur :)
Þetta boddí er flott í svörtum lit 8-)
(http://farm8.staticflickr.com/7074/7363221366_cf16bd70c5_z.jpg)
Kveðja,
Björn
PS. veit að þessi á myndinni er ´65 en hann lúkkar svipað :wink:
-
Hvernig vél er þetta og árgerð?
-
Kjartan þú átt að hafa hann dökk bláann ekkert að vera að spá í svona svart.
-
Reyndar er Midnight Mist Blue alveg klikkaður :wink:
(http://farm8.staticflickr.com/7046/6990341839_6878c6b282_z.jpg)
Kveðja,
Björn
-
Gamla rafkerfið komið úr og rétt byrjaður á því nýja.
-
Rafkerfið meira og minna komið í bílinn. Skipti um köggul í hásingunni og allt nýtt komið í bremsur (þ.m.t. allar lagnir)
-
Mótor kominn í ásamt nýjum Hooker flækjum. Það er enginn afgangur af plássi meðfram svona flækjum verður að segjast.
-
Tvær til
-
Tvær myndir frá Mustang sýningunni.
Síðan þær voru teknar er bíllinn orðinn gangfær og búið að smíða undir hann púst. Pústið var smíðað hjá BJB og saman stendur af Hooker long flækjum, Bassani X-Pipe og Cherry bomb glasspack kútum.
-
Fékk lánaðar Torq Thrust II felgur undir bílinn, rétt til að máta. (Mynd 1: Torq Thrust, Mynd 2: Felgurnar undir bílnum núna, Mynd 3: séð aftan frá)
-
Torq Thrust II ekki spurn 8-)
-
Export brace og monte carlo bar komið í.
-
Bretti komin á ásamt ljósarömmum og framsvuntu.
Skipti líka um einn ljósabotn
-
Þessi fékk að rúnta á milli skúra í dag. Náði aðeins að strika göturnar líka.
Næst á dagskrá er smá sparsl, grunnur og jafnvel málning og glæra
-
Rosalega flottur.... þó að ég sé ekki Mustang fan... þá finnst mér það virkilega :mrgreen:
Ég á samt bágt með að verjast orða.... hvaða drif er þetta eiginlega, finnst þetta voðalega pjáturslegt ?
-
Þetta er bara ósköp hefðbundin 8" Ford Mustang hásing.
-
Ok, finnst differential carrier-inn eitthvað svo weak að sjá...
En lystilega flottur bíll :)
-
Þetta skríður áfram
-
=D>
-
Glæsilegur bíll....
-
Smá skemmtun... Milljónasti Mustanginn var framleiddur 23. febrúar 1966, sem er sami dagur og minn var framleiddur.
-
Kominn litur á bodyið
-
8-)
-
Þessi fékk nýja skó í dag.
-
Gaman að sjá hvernig Mustanginn hefur þróast frá því að þú byrjaðir að gera hann upp.
Hann er orðinn mjög flottur hjá þér!
-
Gaman að sjá hvernig Mustanginn hefur þróast frá því að þú byrjaðir að gera hann upp.
Hann er orðinn mjög flottur hjá þér!
Takk fyrir það Ingimundur.