Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Topics - ElliOfur

Pages: 1 2 3 [4]
61
Varahlutir Til Sölu / Chevy van til sölu
« on: October 28, 2004, 23:15:27 »
Til sölu vélar og skiptingalaus chevy van. Annars allt með, fyrir utan bremsudælu vinstra megin að framan (hún er í og virkar fínt, ég bara á hana ekki og þarf að skila henni)
Fín innrétting, talsvert ryðgaður, alveg á mörkunum að honum sé bjargandi, en samt gerlegt. Síðast skoðaður 03, hefur ekki verið á númerum síðan. Árgerð '79.

Verð 30 þús, nánast engin skipti skoðuð, nema ekki sé fræðilegur möguleiki fyrir mig að hafna því :D

myndir:
http://adsl7-194.simnet.is/chevy/

Allt sem fylgir bílnum sem sýnt er á þessum myndum fylgir, ma krómfelgur, (þó það sé komið smá brúnt í þær)

Nánari upplýsingar í síma 8666443

62
Almennt Spjall / biluð 350 ssk
« on: October 21, 2004, 23:36:45 »
Ég er með 350 skiptingu sem hegðar sér furðulega. Ég var með þessa skiptingu í vaninum mínum, og hún virkaði fínt þar. Svo setti ég hana í annan bíl við sömu vél, og þá virkuðu bara 1 gír og R , hvað gæti verið að ?
Svo annað, ég er með aðra skiptingu sem er með styttri stút að aftan, hvernig eru þessar skiptingar teknar í sundur á réttan hátt .. svo ég klúðri ekki einhverju? :)

63
Almennt Spjall / Toy tercel '88 með 350
« on: October 13, 2004, 00:44:50 »
Sælir drengir.
Fékk hugmynd, og framkvæmdi, langaði að deila því með ykkur.
Á laugardaginn hringdi ég í frænda minn sem er/var með gamla uber flotta tercelinn minn í láni. Ég spurði hann hvort honum væri ekki alveg sama þó hann hefði 350 mótor í tercelnum ... það kom hik á drenginn og svo spurði hann mig hvort ég væri með svima (wonder where that came from :D ) Ég náði í kvikindið, reif 1.6 vélina sem ég setti í hann fyrir hálfu ári (úr toy carinu II '89, flækjur, opið 2" púst og green cone sía)

Ég reif vélina úr vaninum mínum helgina áður, ætlaði að setja hana í torfærugrindina mína, og ætla raunar enn, en langaði að grínast eitthvað smá með hana fyrst. Þetta er nánast alveg original vél úr chevy van 79 model, bara búið að skrúfa 4 hólfa blöndung ofaná hana. Þessu TRÓÐ ég í tercelinn, þurfti reyndar að skera hálfan hvalbakinn úr, og soldið af gólfi yfir skiptingunni (stock 350 skipting). Vélin komst í að þessum breytingum loknum, ásamt stóru sleggjunni í hvalbakinn til að kveikjan hefði pínu svigrúm. Þá kom smá babb í bátinn, PÚST!! hvorki greinar né flækjur komust fyrir. Úbbosí.. braut heilann í smá stund og fattaði svo að það er hægt að snúa þeim öfugt :) Og já, þær koma upp og fram. Vatnskassinn og olíukælarnir fyrir skiptinguna ná soldið framfyrir ljósin, lofthreinsarinn blockar soldið útsýni, ekkert alvarlegt, hef séð það verra.
Merkilegt hvað bíllinn seig lítið, eitthvað rétt um eða innan við tommu lægri að framan. Er með original tercel afturhásinguna, bíllinn er svo léttur að þegar ég er búinn að setja basíska 100% rafsuðulæsingu, þá held ég að þetta verði enginn æsingur, líka þar sem vélin er skítköld og stock utan 4 hólfa blöndungsins og flækjanna.
Á sunnudagskvöld þá skilaði ég frænda mínum bílnum aftur, og hann notar hann til að komast í vinnu :)

læt 2 myndir fylgja af kvikindinu




Margt brallað í sveitinni  :twisted:

64
Varahlutir Til Sölu / Til sölu og skipti.
« on: September 30, 2004, 23:33:38 »
Er með 79 model af chevy sport van 20
Allt til sölu úr kvikindinu nema forláta 350 vélin. Ég veit ekki ennþá hvernig skipting er í honum, en geri ráð fyrir að hún sé frekar öflug þar sem bíllinn er að heildarþyngd 3700kg (2,2t burðargeta) samkvæmt skráningarskírteini. Allir hlutir seljast sér, eða í sitt hvoru lagi. Myndir á http://adsl7-194.simnet.is/chevy/

Vantar aðra skiptingu og/eða millikassa á mína skiptingu til að hafa í hobbytorfærugrind

Einnig til sölu ford 302 ásamt skiptingu (C4) og millikassa sem er í torfærugrindinni. Þar er eitthvað búið að velgja ásinn og setja stærri tor á.

Skipti framogtilbaka, jafnvel til í að láta allt ford dótið fyrir góða skiptingu og kassa við 350

email: therock@simnet.is phone: 8666443

65
Almennt Spjall / Græjan hans Þórðar
« on: July 28, 2004, 19:52:55 »
Mílufólk.

Ég frétti af þessum flotta árangri hjá þórði á heimi hunter græjunni.
Mig langar að vita specs, sjá myndir, og helst langar mig að fá að skoða græjuna í bak og fyrir einhverntíman :)
Vitið þið hvort hann kemur á næstu mílu, sem mér reiknast til með að sé væntanlega um þarnæstu helgi, 8. ágúst (correct me if im wrong)

Takk

66
Almennt Spjall / Geymsla á bílum
« on: July 23, 2004, 19:22:25 »
Sælir drengir og stúlkur.
Nú vill nú svo til, að ég hef aðgang að gróðurhúsi sem er búið að úrelda.
Á svæðinu eru nokkur gróðurhús, og eitt af þeim er nýlega búið að rífa glerið úr og gera það að reiðskemmu.
Nú var ég að spá, hvort það væri grundvöllur fyrir mig að kaupa húsið (fæ það væntanlega á góðu verði, fjölskyldutengsl) og skella bárujárni á það í þeim tilgangi að hýsa bíla fyrir mann og annan.
Það eru til ágætar þykkar steinhellur sem hægt væri að skella á gólfið eftir jarðvegsskipti og gera húsið algjörlega mannhelt/vatnshelt/vindhelt.
Að sjálfsögðu er nógur jarðhiti á staðnum, þannig að húsið getur verið jafn heitt/kalt eins og menn vilja. (þegar glerið er í þá er leikandi hægt að hafa 30 gráðu hita þar inni þó það sé frost úti, semc, upphitað)
Þetta er ~100km frá reykjavík, á svæði þar sem er lítil umferð og mjög lítil þjófahætta.

Haldið þið að það væri grundvöllur fyrir svona bílageymslu, hvað haldið þið að sanngjarnt verð/mán væri fyrir svona, og hverjir/hverjar ykkar væru til í að láta svona góða hluti gerast?
Þeir sem mundu vilja nota sér svona aðstöðu, réttið upp hendi :)

Kveðja, Elli

Pages: 1 2 3 [4]