jæja ég var að fá mér annað "verkefni" bíl til að druslast á um meðan Mustang er í viðgerð..
fékk þennan bíl á mjöög góðum prís. ef maður talar í tölum þá hefur hann verið að kosta svona 45þús kall.
skipti á honum og 3ára gömlu 42" medion lcd sjónvarpi sem kostaði nytt 149þus..
en um er að ræða Jeep Grand Cherokee Ltd. árgerð 1996. ótrulega heill og fallegur bíll.
hann er með rafmagn í öllu. leðri. viðarinnréttingu, dökkum rúðum svo eitthvað sé nefnt..
hann er ekinn 205þús km og er með kílometramæli.
hann er fluttur inn frá kanada einhvertiman snemma á æfiferli sinum
því miður er þessi bara með L6 High output (192Hp) motornum en ekki V8 218hp eins og hinir 2cherokee-arnir sem ég hef átt. en ég er samt sáttur með jepplinginn
hann er silfurgrár með ljósblárri perlu. og breytir því um lit í ákveðnu ljósi..
vandamálið með þennan bíl þó. er að hann er pínu klesstur að framan. en ekki er það mikið. mig vantar á hann frammstuðara. grill vinstra frammljós, vinstra bretti og húdd.
en svo virðist vera að ég sé buinn að redda mér þessu í gegnum HKracing2 herna á spjallinu..
ég á nu engar myndir eins og er af bilnum. en ég tek þær í kvöld þegar myndavelin min kemur heim frá svíþjóð
(ég lanaði hana)
þegar ég keyrði bílinn heim í gærkvöldi þá hlakkaði í mér einhvernveginn..
fannst eins og ég væri kominn heim aftur með að vera kominn aftur á cherokee.
þetta mun vera þriðji Grandinn minn, og annar Limited grandinn minn
þetta er flottur beater á meðan Mukkinn er í vetradvala eða inn í skúr í yfirhalningu