Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Bílaklúbbur Akureyrar on August 23, 2012, 23:17:32

Title: Skráning í sandspyrnu - Umferð II
Post by: Bílaklúbbur Akureyrar on August 23, 2012, 23:17:32
Skráning í aðra umferð Íslandsmeistaramótsins í sandspyrnu sem fram fer á Akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar laugardaginn 1. September n.k. er nú hafin. Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu ba@ba.is og lýkur skráningu mánudaginn 27. Ágúst kl. 23:59.-

Það sem koma þarf fram við skráningu er: Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb.

Keppnisgjald er krónur 5. þúsund og skal greiðast inn á reikning 565-26-580 kt. 660280-0149. Vinsamlegast athugið að skráning telst ekki gild nema keppnisgjald sé greitt áður en skráningu lýkur. Reglur og flokka fyrir sandspyrnu má sjá hér http://www.ba.is/static/files/sandspyrna2012.pdf (http://www.ba.is/static/files/sandspyrna2012.pdf)

F.h. Spyrnudeildar BA

Stefán Örn Steinþórsson
dodge@ba.is