Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Jón Þór Bjarnason on March 01, 2011, 13:06:17
-
Ég vil óska nýrri stjórn Kvartmíluklúbbsins til hamingju. =D> =D> =D>
Einnig vil ég þakka fyrir mig í þau 4 ár sem ég hef fengið að starfa í stjórn Kvartmíluklúbbsins og 2 1/2 ár þar á undan sem óbreyttur fastur starfsmaður.
Frábærir tímar framundan og fullt af skemmtilegum verkefnum sem liggja frammi fyrir nýrri stjórn. =D> =D> =D>
Mun reyna mitt besta til að aðstoða upp á braut í sumar.
-
Er annars ekkert að frétta frá þessum aðalfundi?
Einhverjar reglubreytingar?
Skipað í reglunefnd?
Eitthvað annað skemmtilegt?
-
Hér eru helstu púnktarnir af fundinum :)
http://kvartmila.is/is/frett/2011/02/26/adalfundur_2011
-
Hér eru helstu púnktarnir af fundinum :)
http://kvartmila.is/is/frett/2011/02/26/adalfundur_2011
Muna ng og nk regluna Jón Bjarni :-" :)
-
Hér eru helstu púnktarnir af fundinum :)
http://kvartmila.is/is/frett/2011/02/26/adalfundur_2011
Muna ng og nk regluna Jón Bjarni :-" :)
ég er bara rafvirki ekki íslenskufræðingur :lol:
-
Er annars ekkert að frétta frá þessum aðalfundi?
Einhverjar reglubreytingar?
Skipað í reglunefnd?
Eitthvað annað skemmtilegt?
Neinei, ekkert fjör!
Stjórn skipar í reglunefnd og sér um endanlega ákvörðun á reglubreytingum.
Það voru bara breytingar á félagsgjöldum.
-
Hér eru helstu púnktarnir af fundinum :)
http://kvartmila.is/is/frett/2011/02/26/adalfundur_2011
Ég var búinn að sjá þetta, taldi bara að afrakstur aðalfundar hefði kannski verið eitthvað meiri.
En þetta hefur sumsé bara verið stuttur og þægilegur fundur.
Besta mál
-
Ritari BA, Anton Ólafsson er eins og grár köttur allt í kring um og inni í félagsheimilinu okkur, hvort heldur er á fimmtudagskvöldum eða á Blús uppákomum. Þið í BA ættuð nú að taka ykkur til og splæsa KK félagsskírteini á Tóna, sem getur þá "rapporterað" vikulega til ykkar :mrgreen:

Svona komment dæma sig sjálf og eru hvorki til að hjálpa klúbbnum né hobbýinu..
Kveðja Frank
-
Eg er sammála, Anton er velkominn hvar sem er og drekkur mikið kaffi hjá okkur Mustangmönnum og er það gott mál.
-
Ég veit ekki betur en að Anton hafi lagt 5.000 kr í Steypusjóð KK, þannig að svona skot eru algjörlega óþörf.