Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Jón Bjarni on October 31, 2013, 10:07:13

Title: Félagsfundur 12 nóvember
Post by: Jón Bjarni on October 31, 2013, 10:07:13
http://www.kvartmila.is/is/frett/2013/10/31/felagsfundur_thridjudaginn_12_nov (http://www.kvartmila.is/is/frett/2013/10/31/felagsfundur_thridjudaginn_12_nov)

Vöfflur og kaffi í boði :)
Title: Re: Félagsfundur 12 nóvember
Post by: Jón Bjarni on November 12, 2013, 10:07:16
Við minnum á þennan fund...

Title: Re: Félagsfundur 12 nóvember
Post by: Jón Þór Bjarnason on November 13, 2013, 19:18:43
Fáum við ekki einhverjar upplýsingar sem gátum ómögulega mætt á fundin?
Er alveg hrikalega forvitinn.
Title: Re: Félagsfundur 12 nóvember
Post by: Jón Bjarni on November 14, 2013, 12:59:58
jújú það má kannski eitthvað segja um fundinn :P


Það var farið yfir samkomulagið sem KK var að gera við ÖÍ, Í helstu atriðum var gert samkomulag um að ökukennarar fái svæðið sem liggur á milli vegsins upp að félagsheimil og brautarinnar til að gera svæði sem nýtist þeim í kennslu fyrir ökuskóla 3 og að það verði hannað þannig að það verði fyrsti vísirinn að hringakstursbraut á KK svæðinu.

Síðan var rennt yfir nýjar almennar keppnisreglur sem AKÍS var að gefa út, þetta eru reglur sem KK er búið að vera kalla eftir að séu gerðar og þær lýta þolanlega út, en það þarf að gera eitthverjar nokkrar athugasemdir við þær af okkar hálfu.

Síðan var rætt um að það þarf að uppfæra indexið í OF, það var síðast uppfært 2005 eða 6 held ég og það er kominn tími að til að uppfæra það.

Síðan var farið yfir flokkabreytingar og rætt aðeins um það. Helsta breyting verður að TD,TS og HS verða opnaðir til muna og tímamörkun breitt.  Þetta er gert til að fleiri eigi möguleika á að keppa í þessum flokkum og geti notað hvaða aðferð sem þeim dettur í hug til að komast niður að tímamörkunum.
Einnig verða uppfærðir gömluflokkarnir,  Það er ósamræmi og ruglingur í mörgum af þessum flokkum sem þarf að taka út og gera skiljanlegri.  Markmiðið í þessum breytingum er að halda inntakinu í flokkunum eins og það er í dag en minnka regluruglið í þeim.  Einng þarf að taka allar öryggisreglur úr flokkunum.

Þetta er svona það helsta sem ég man eftir :)
Title: Re: Félagsfundur 12 nóvember
Post by: Jón Þór Bjarnason on November 14, 2013, 17:50:21
Glæsó og takk nafni.  :smt023