Kvartmílan => Muscle Car deildin og rúnturinn. => Topic started by: Moli on February 21, 2007, 18:08:41

Title: Krúser hópurinn sýnir 2006 Mustang GT
Post by: Moli on February 21, 2007, 18:08:41
Bílaklúbburinn Krúser heldur áfram að sýna nýinnflutta, eða bíla sem ekki hafa sést lengi á fimmtudagskvöldum sem fyrr að Bíldshöfða 18.

Næstkomandi fimmtudagskvöld 22. Febrúar kl: 20:00 verður sýndur nýinnfluttur 2006 Ford Mustang GT

Glimrandi tónlist í anda sjöunda og áttunda áratugarins, og fyrir slikk er hægt að fá ískalt CocaCola og súkkulaði með til að seðja hungrið.

Miklar breytingar hafa átt sér stað á félagsaðstöðu Krúser manna, og meðal annars er búið að setja upp skjávarpa, fjarlæga milliveggi og eldhús, ofl. ofl.

Sannir bílaáhugamenn láta sig ekki vanta!

Með kveðju,
Krúsers-hópurinn
komnir til að vera.
Bíldshöfða 18.