Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: Nonni on February 03, 2006, 11:39:28
-
Vegna mismunandi notkunar á RON, MON og (RON+MON)/2 hérlendis og fyrir vestan lendir maður stundum í vafa hvaða oktantölu maður á að nota. Er einhverstaðar til tafla sem hægt er að fletta þessu upp?
Það væri fróðlegt að vita hvað t.d. 88 okt og 92 okt samsvarar á pumpunni hér á klakanum.
-
Well skv evrópustaðli þá er 95RON = 91 octan eftir ameríkustaðlinum.
98RON á að vera 93 AKI.
-
Kanarnir nota í lang flestum tilfellum PON ( (RON+MON)/2 ), það sem við sjáum á dælunum okkar er RON, s.s. 95, 98 og 99 (markaðsfræðis bull, meira er betra).
Til að reikna út hvað okkar bensín er í PON gerum við eftirfarandi..... Munurinn á RON (research octane number) og MON (motor octane number) eru 9-10 octane stig. En við viljum vita PON (pump octane number) sem er bara meðaltal RON og MON eins og áður kom fram.
við tökum 9.5/2= 4.75, 98RON - 4.75 = 93.25PON o.s.frv.
-
Akkúrat það sem ég þurfti að vita :)
Þannig að ef vélin krefst 92 PON þá jafngildir það 96,75 RON og þá kemur 98 okt aðeins til greina.
Takk
-
Þarf nýja 383 vélin á 98oct bensíninu að halda :wink: :?: Mín þarf það allavegana :o
-
Það virðist vera, maður er nú hættur að brúka hann dagsdaglega svo það ætti að vera í lagi :)
-
350 cu. vél með compr.ratio 9.0 :1.
Hvaða bensín ætti ég þá helst að nota á hana ? :?:
-
95 oktan.
-
við hvaða þjöppuhlutfall liggja þá mörkin á 95 og 98
-
Bannaður
Við erum að tala um 95 okt er upp að 9,00 og 98 okt er upp í 10,00 en samnt fer þetta mikið eftir headum og lögun sprengirýmis . Einnig spilar inn í hvernig stimpillinn er í laginu svo sem með kolli eða ekki .
Shadowman
Frekar þjappaður
-
Það má vel nota 95 upp að svona 10:1 og hærra á vélum sem eru með góða hönnun á brunarýminu.
-
Góðan dag
UUU hvað stendur í póstinum fyrir ofan ddöööö :roll:
Shdowman
allveg ruglaður í SPRENGRÝMUM
-
DCR og SCR eru tvö ólík fyrirbæri sem segja nokkurnveginn til um lágmarks octantölu á vél miða við þjöppu
-
Ég er að spá í vél, hún er með 9,8 í þjöppu.
Sá sem setti hana saman segir hana þurfa "Premium pump gas"
Er það 98 oct. eða gæti 95 oct. dugað.
Kv.HG
-
það er 98oct
-
Það má vel nota 95 upp að svona 10:1 og hærra á vélum sem eru með góða hönnun á brunarýminu.
BMW E39 M5 er með 12,7 OEM þjöppu.... 95okt, no problem....
Ég á 13,7 þjöppu stimpla í svoleiðis vél ef að menn hafa áhuga á að kaupa :lol:
annars þykir mér þetta hið furðulegasta mál, en ég notaði einmitt ekki 13,7 stimplana sjálfur vegna pinging vandamála :-"