Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Gulag on March 04, 2009, 16:12:55

Title: Aðvörun !!!
Post by: Gulag on March 04, 2009, 16:12:55
Mig langar bara að vara alla hérna við, að ef þið þurfið af einhverjum ástæðum að skilja bíl eftir á Reykjanesbrautinni í einhvern tíma, að panta frekar kranabíl eða fá félaga til að draga bílinn til byggða.

Ég ek Brautina á hverjum degi milli Keflavíkur og Hafnarfjarðar, og hef séð að ef það er bíll skilinn eftir yfir nótt er í 90% tilfella búið að brjóta ALLAR rúður í bílnum daginn eftir, og sjálfsagt búið að skemma eitthvað fleira.

Title: Re: Aðvörun !!!
Post by: Elmar Þór on March 04, 2009, 16:44:56
sérlega ef hann stendur á bilinu milli kef og svona voga.
Title: Re: Aðvörun !!!
Post by: Gulag on March 04, 2009, 17:12:52
já, ég hef tekið eftir því..
Title: Re: Aðvörun !!!
Post by: ADLER on March 04, 2009, 18:28:08
Er þetta ekki bara Stapadraugurinn  :-"
Title: Re: Aðvörun !!!
Post by: Arason on March 04, 2009, 19:58:31
Sáuð þið kopar sanseraða... Volvoinn? var það ekki annars volvo... í gær? Snjóaði á fullu inn um bílstjóra rúðuna sem hafði verið brotin!

Ætli fólk geri sér ekki grein fyrir því hvað þetta er dýrt dæmi?

Title: Re: Aðvörun !!!
Post by: Elmar Þór on March 04, 2009, 23:39:19
Eða C bensinn sem var þarna um daginn, hann var nær hafnarfyrði reyndar ! Þetta er svakalegt að það fær ekki nokkur skapaður hlutur að vera í friði
Title: Re: Aðvörun !!!
Post by: dodge74 on March 05, 2009, 00:35:20
já þið seigið nokkuð vonandi lendir maður alldrey í þvi að kaggin bili eða eitthvað álika enda mundi maður alldrey skilja hann eftir vá það er satt það fær alldrei nokkur skapaður hlutur að vera í friði :-(
Title: Re: Aðvörun !!!
Post by: kiddi63 on March 05, 2009, 06:32:16
Er þetta ekki bara Stapadraugurinn  :-"

(Stapadraugurinn kann ekki á bíl, hann sagði mér það sjálfur. 8-))

En þetta er alveg rétt, reynið ALLT til þess að þurfa ekki að skilja bíl þarna eftir.
Ég veit dæmi þess að bílar hafa hreinlega horfið þarna og ekki fundist aftur, sennilega verið notaðir í varahluti.
Kranabíll er kannski dýr en samt er það þess virði

Title: Re: Aðvörun !!!
Post by: snipalip on March 18, 2009, 09:38:07
http://visir.is/article/20090318/FRETTIR01/325935732

Magnað :shock:
Title: Re: Aðvörun !!!
Post by: Kristján Ingvars on March 18, 2009, 18:37:58
Hyski